Morgunblaðið - 22.10.2019, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 22.10.2019, Blaðsíða 14
14 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 22. OKTÓBER 2019 Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/ Ígær var kosiðtil þings íKanada. Kosningavikurnar hafa þótt spenn- andi, því að kann- anir hafa sýnt að mjög mjótt sé á munum á milli tveggja stærstu flokkanna, Frjáls- lynda flokks Trudeaus og Íhaldsflokksins sem leitt hef- ur stjórnarandstöðuna. Þessir tveir flokkar mælast nú með rétt rúmlega 30% fylgi hvor flokkur og hafa síðustu vikurnar skipst á að vera sjón- armun stærri en hinn, og er sá munur þó jafnan vel innan allra skekkjumarka. Kosning- arnar í Kanada lúta sömu lög- málum og gilda t.d. í breskum kosningum og eru þau áþekk reglum í ýmsum greinum íþrótta. Sá sem kemst lengst, hversu lítill sem munurinn er á milli hans og næsta manns, er einn sigurvegari og fær þingsætið eina í viðkomandi kjördæmi. Önnur atkvæði „falla dauð“, eins og kallað er, og til þeirra getur talist veru- legur meirihluti greiddra at- kvæða í kjördæminu. Þess vegna er ekki útilokað að annar hvor flokkurinn gæti náð meirihluta á þingi með svo naumt fylgi eins og þeir stærstu eru nú að mælast með. Í síðustu kosningum var Trudeau rísandi stjarna, þótti myndarlegur ef ekki með súkkulaðisjarma af þeirri gerð sem einkennir helst goðsagna- kennda leikara hvíta tjaldsins. Myndaðist góð stemning með framboði hans. Hann naut þess einnig að faðir hans, Pierre Trudeau, hafði gegnt embætti forsætis- ráðherra Kanada í tvígang með stuttu hléi á milli, fyrst í fjögur ár og svo í rúm 11 ár. Hann þótti gáf- aður og harðsnú- inn stjórnmála- maður en hafði um leið „popúlista- takta“, þótt nafngiftin hafi ekki verið komin í þá tísku eins og nú er og að auki var hann vinstra megin við miðju stjórnmálanna, svo að nafn- giftin hefði ekki verið notuð honum til hnjóðs heldur. Justin sonur hans hefur hins vegar mörg einkenni léttavigtarmanns í stjórn- málum og hefur gert marg- vísleg mistök sem hafa skaðað trúverðugleika hans nokkuð. Fari svo að hvorugur „stóru“ flokkanna nái hreinum meirihluta verður reynt að mynda minnihlutastjórn. Fréttaskýrendur virtust á kjördag telja heldur líklegra að Frjálslynda flokknum gæti lukkast betur en Íhalds- flokknum að ná hreinum meirihluta á þingi, þrátt fyrir mjög svipað heildaratkvæða- magn, og horfðu þá til dreif- ingar fylgis á einstök kjör- dæmi og mátu hvor flokkurinn yrði með fleiri ónýtt atkvæði eftir að hafa unnið sigur í ein- stökum kjördæmum. Á þjóðþinginu í Ottava sitja 338 þingmenn og hlaut Frjáls- lyndi flokkurinn 184 þingsæti í síðustu kosningum en Íhalds- flokkurinn 99 og aðrir færri. Trudeau forsætisráðherra var því með mjög traustan meirihluta á nýliðnu þingi. Og þótt að svo færi, að eftir lok spennandi kosninganætur væri hann enn með meirihluta þar, þá þykir nokkuð ljóst að sá verði miklum mun tæpari á því nýbyrjaða en því nýliðna. Vænta má spenn- andi kosninganætur í Kanada enda mjótt á munum á milli stærstu fylkinga} Spennandi kosningar í Kanada Í gær var kynnt-ur niður- skurður á reglu- verki sem er góð tilbreyting eftir að sigið hafði á ógæfuhliðina í þessum efnum hér á landi á mörgum liðnum árum. Stundum stærir for- ysta þingsins sig jafnvel af því að moka í gegn miklum fjölda mála og ráðherrar mæla störf sín í lengd mála- lista. Eins og komið er fer betur á því að ráðherrar taki til, einfaldi og fækki lögum og reglum. Meðal þess sem kynnt var í gær eru breytingar á reglum á sviði samkeppn- iseftirlits. Sam- keppniseftirlit kann að hafa hlut- verki að gegna, en hefur síst beitt sér þar sem helst skyldi. Það hefur verið upptekið af ýms- um smámálum og einstaka fyrirtækjum. Þá hefur eftir- litið gjarnan kært mál sem það tapar áfram til dómstóla og með þeim hætti haldið vafasömum málarekstri áfram árum saman. Með því að fella þá heimild á brott er stuðlað að heilbrigðara sam- keppniseftirliti og bættu samkeppnisumhverfi. Frumskógur regluverksins þolir grisjun} Góð tilbreyting S taða ríkissjóðs er sterk, hagvöxtur hefur verið mikill á Íslandi síðustu ár og atvinnuleysi lítið í alþjóð- legum samanburði. Heildarskuldir ríkisins hafa lækkað mjög hratt frá fjármálahruni; þær voru um 90% af landsframleiðslu en eru nú um 30%. Stöð- ugleikaframlög, aðferðafræði við uppgjör föllnu bankanna og öguð fjármálastjórn síð- ustu ára hafa átt ríkan þátt í því að þessi hagfellda staða er uppi í ríkisfjármálum. Hrein erlend staða, erlendar eignir þjóð- arbúsins umfram erlendar skuldir, hefur þó aldrei verið betri. Staðan var jákvæð um tæplega 630 ma.kr. eða 22% af landsfram- leiðslu í lok annars ársfjórðungs þessa árs og batnaði um 10 prósentur á fyrri hluta ársins. Þrátt fyrir góð teikn ríkir töluverð óvissa um innlenda efnahagsþróun á komandi misserum bæði af innlendum orsökum og sakir aukinnar óvissu um al- þjóðlegar hagvaxtarhorfur og þróun á alþjóðlegum fjár- málamörkuðum. Ríkisfjármálin taka mið af þessari stöðu og stefnt er að því að afgangur af heildarafkomu ríkissjóðs sem hlutfall af vergri landsframleiðslu verði að lágmarki í jafnvægi árin 2020 og 2021, en afgangur verði um 0,3% árið 2022. Brýnt er að mæta þörfum efnahagslífsins til samræmis við breyttar horfur án þess þó að vikið verði tímabundið frá fjármálareglum um afkomu og skuldir eins og lög um opinber fjármál heimila. Vegna góðrar stöðu ríkisfjármála verður til svigrúm sem veitir stjórnvöldum tækifæri til að vinna gegn niðursveiflu með öflugri opin- berri fjárfestingu og ráðast í ýmsar innviða- fjárfestingar á næstu misserum. Spá Seðla- banka Íslands gerir ráð fyrir að fjár- festingar hins opinbera aukist á næstu árum. Meðal innviðafjárfestinga sem tengjast mennta- og menningarmálaráðuneytinu má nefna byggingu Húss íslenskunnar sem nú er í fullum gangi, byggingu félagsaðstöðu við Fjölbrautaskóla Suðurnesja, viðbyggingu við Fjölbrautaskólann í Breiðholti, uppbygg- ingu við Menntaskólann í Reykjavík og við menningar- hús á Sauðárkróki og Egilsstöðum. Meðal annarra mik- ilvægra fjárfestingaverkefna má einnig nefna máltækniáætlun stjórnvalda. Margar þessara fram- kvæmda eru löngu tímabærar og markmið þeirra allra að efla menntun og menningu í landinu. Lilja Alfreðsdóttir Pistill Fjárfest til framtíðar Höfundur er mennta- og menningarmálaráðherra. STOFNAÐ 1913 Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík. Ritstjóri: Davíð Oddsson Aðstoðarritstjóri: Karl Blöndal Ritstjóri og framkvæmdastjóri: Haraldur Johannessen FRÉTTASKÝRING Sigurður Bogi Sævarsson sbs@mbl.is Auðvitað höldum við skjól-stæðingum okkar utanvið þessar deilur hér. Aðstjórn stofnunarinnar hafi sagt upp forstjóra og fram- kvæmdastjóra lækninga og að nokkrir læknar séu á förum hefur þó óhjákvæmilega haft áhrif á starfsandann; valdið ólgu, reiði og sorg,“ segir Þórunn Hanna Hall- dórsdóttir, talmeinafræðingur og fulltrúi í fagráði Reykjalundar. Í gær sendi fagráðið frá sér yfirlýsingu þar sem stjórn Reykja- lundar er gagnrýnd og áhyggjum af stöðu mála á endurhæfingar- stöðinni lýst. Í ráðinu sitja fulltrúar ýmissa þeirra stétta sem á Reykja- lundi starfa að endurhæfingu sjúkra. Má þar nefna hjúkr- unarfræðinga, lækna, iðju- og sjúkraþjálfara, næringarfræðinga og fleiri sem eru ekki sáttir við hvernig starfsemin og bragur hennar hefur þróast að undan- förnu. Í yfirlýsingunni segir að áhyggjuefni sé að stjórn SÍBS geti haft óskorað vald yfir rekstri Reykjalundar og ógnað faglegri starfsemi. Óánægja starfsmanna eigi sér þó margar ástæður. Tveir læknar hafa sagt upp störfum og þrír til viðbótar segjast á förum sitji stjórnin áfram. Óttast eðlisbreytingar „Ég óttast að til standi að gera eðlisbreytingar á starfsemi Reykjalundar. Starfið hér hefur verið í föstum farvegi um árabil og viðkvæmum sjúklingahópum sinnt. Ef til stendur nú að sinna öðrum hópum en verið hefur þarf slíkt að vera á faglegum for- sendum,“ segir Þórunn Hanna í samtali við Morgunblaðið. Væring- arnar nú segir hún að hafi byrjað í sumar þegar nýtt skipurit á Reykjalundi var innleitt. Þar hafi þótt rangt að málum staðið enda hafi læknaráð Reykjalundar og Félag endurhæfingarlækna gert athugasemdir. „Ólgan braust svo út með því að tveir æðstu yfirmenn hér voru látnir fara nú í byrjun október. Við sættum okkur ekki við hvern- ig staðið var að uppsögnum þeirra,“ segir Þórunn. Bætir hún við að starfsfólk sé jafnframt ósátt við að sett hafi verið fram í fjöl- miðlum ummæli um samstarfsfólk og vegið að heiðri þess. Fagráðið á Reykjalundi starf- ar samkvæmt lögum um heil- brigðisþjónustu og á að vera for- stjóra og framkvæmdastjórn til ráðuneytis um fagleg atriði. Til þess ber að leita um ákvarðanir sem varða þjónustu stofnunar- innar, sem tekið er fram að ekki hafi verið gert í álitamálum á Reykjalundi undanfarið. „Okkur finnst fagráðið afskipt í þeim mál- um sem nú eru uppi á stofnuninni. Okkar sjónarmið þurfa að heyrast, því hópvinna og jafnræði starfs- stétta sem sinna endurhæfingu eru aðalsmerki Reykjalundar,“ segir Þórunn. Áhyggjur af teymisvinnu „Fagráð hefur miklar áhyggj- ur af teymisvinnu á Reykjalundi í þeirri stöðu sem upp er komin. Í framkvæmdastjórn vantar sér- fræðiþekkingu og reynslu af þver- faglegri endurhæfingu sem er hryggjarstykki starfseminnar. Uppsagnir lækna eru mikið reið- arslag þar sem stofnunin er að glata mikilli sérfræðiþekkingu sem við sjáum ekki fram á að hægt sé að sækja annað þar sem fáir end- urhæfingarlæknar eru starfandi á Íslandi,“ segir í yfirlýsingunni. Vald yfir rekstri ógn- ar faglegri starfsemi Morgunblaðið/Sigurður Bogi Reykjalundur Samvinna ólíkra fagstétta sem sinna endurhæfingu hefur verið aðalsmerki endurhæfingarstöðvarinnar, segir talsmaður fagráðs. Þórunn Hanna Halldórsdóttir „Vissulega höfum við áhyggj- ur af stöðu mála á Reykja- lundi og fylgjumst vel með framvindunni,“ segir Kjartan Hreinn Njálsson, aðstoð- armaður Landlæknis. Hlut- verk þess embættis er eink- um og helst eftirlit með heilbrigðisþjónustu í landinu og eftirfylgd með því að sjúk- lingar fái þá þjónustu sem þeim ber. „Á þessu stigi er ekkert sem bendir til þess að mis- brestur sé á þjónustu. Að minnsta kosti höfum við ekki fengið neinar upplýsingar um slíkt en munum senda bréf á Reykjalund og óska skýringa á vissum atriðum. Vissulega er áhyggjuefni ef reynt starfsfólk, læknar og aðrir, er á förum. En hvort stjórn SÍBS hefur orðið ráðandi áhrif á starfsemina og faglega þætti þar; það er einfaldlega rekstrar- og innanhúsmál á Reykjalundi sem Embætti landlæknis getur ekki haft nein afskipti af.“ Þjónustan hefur haldist LANDLÆKNIR FYLGIST MEÐ

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.