Morgunblaðið - 22.10.2019, Qupperneq 20

Morgunblaðið - 22.10.2019, Qupperneq 20
20 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 22. OKTÓBER 2019 Fundir/Mannfagnaðir ses.xd.is Samtök eldri sjálfstæðismanna, SES Hádegisfundur SES Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir dómsmálaráðherra verður gestur á hádegisfundi SES á morgun, miðvikudaginn 23. október kl. 12:00, í Valhöll, Háaleitisbraut 1. Húsið opnað kl. 11:30. Boðið verður upp á súpu gegn vægu gjaldi, 1000 kr. Allir velkomnir. Með kveðju, stjórnin. Félagsstarf eldri borgara Aflagrandi 40 - Opin vinnustofa kl.9:00-12:30, nóg pláss og allir vel- komnir - Hreyfisalurinn opinn milli kl.9:30-11:30, líkamsræktartæki, lóð og teygjur - Boccia kl.10:15 - Tálgað í tré kl.13:00 - Postulínsmálun kl.13:00, með leiðbeinanda - Vatnslitun, ókeypis og allt til staðar - Bíó í miðrými kl.13.15 - Kaffi kl.14:30-15:20 - Árskógar Smíðar, útskurður með leiðb. kl. 9-16. Leikfimi með Hönnu kl. 9. Leshringur kl. 11. Bridge kl. 12. Handavinnuhópur kl. 12-16. Kóræfing, Kátir karlar kl. 12:45. MS-fræðslu- og félagsstarf kl. 14-16. Opið fyrir innipútt. Hádegismatur kl. 11.40-12.50. Kaffisala kl. 14:45- 15.30. Heitt á könnunni, Allir velkomnir. s: 535-2700. Áskirkja Spilum félagsvist í kvöld kl 20 í Dal, neðra safnaðarheimili kirkjunnar Allir velkomnir Safnaðarfélag Áskirkju Boðinn Þriðjudagur: Leikfimi kl. 10:30 fellur niður. Fuglatálgun kl. 13:30. Bridge og Kanasta kl. 13:00. Fella og Hólakirkja Kyrrðarstund kl. 12 í umsjá Kristínar djákna og Arnhildar organista. Eftir stundina er boðið upp á kjötsúpu að hætti húsmæðra kirkjunnar, Kristínar og Jóhönnu Freyju. Félagsstarf eldri- borgara kl. 13. Tónleikar í kirkjunni með Særúnu Harðardóttur söngkonu, undirleikari Arnhildur Valgarðsdóttir. Verið velkomin við tökum vel á móti ykkir. Félagsmiðstöðin Hvassaleiti 56-58 Morgunkaffi og spjall frá 8:30- 10:30. Útvarpsleikfimi kl. 9:45. Hádegismatur alla virka daga kl. 11:30- 12:20 og kaffi kl. 14:30-15:30. Bridge í handavinnustofu 13:00. SVIÐAVEISLA Á FÖSTUDAGINN – SKRÁNING Í GANGI. Félagsmiðstöðin Hæðargarði 31 Kaffi, spjall og blöðin við hring- borðið kl. 8:50. Myndlistarnámskeið kl. 9-12. Thai Chi kl. 9. Leikfimi kl. 10. Spekingar og spaugarar kl. 10:45-11:45. Hádegismatur kl. 11:30. Salatbar kl. 11:30-12:15. Kríur myndlistarhópur kl. 13. Bridge kl. 13. Leiðbeiningar á tölvur kl. 13:10. Enska kl. 13. Síðdegiskaffi kl. 14:30. U3A kl. 16:30. Allir velkomnir óháð aldri. Nánari upplýsingar í síma 411-2790. Félagsmiðstöðin Vitatorgi Glerlist kl. 9:00. Bútasaumshópur hittist kl. 9:00. Hópþjálfun með sjúkraþjálfara kl. 10:30. Bókband kl. 13:00. Frjáls spilamennska kl. 13:00. Opin handverkstofa kl. 13:00. Söngstund kl. 13:30. Bókaklúbbur kl. 15:00. Hádegismatur frá 11:30 til 12:30 alla daga vikunnar og kaffi frá 14:30 til 15:30 alla virka daga. Ve- rið öll velkomin á Vitatorg. Garðabæ Gönguhópur fer frá Jónshúsi kl. 10:00. Bónusrúta fer frá Jónshúsi kl. 14:45. Vatnsleikf. kl.7:30/15:15. Qi-Gong í Sjál. kl. 8:30. Liðstyrkur Ásg. kl. 11:15. Karlaleikf. Ásg. kl.12:00. Boccia í Ásg. kl. 12:45. Línudans. Sjál kl. 13:30/14:30. Smíði í Smiðju Kirkjuh. kl.09:00/13:00 Gerðuberg 3-5 111 RVK Þriðjudagur Opin handavinnustofa kl.08:30-16:00. Keramik málun kl.09:00-12:00. Leikfimi gönguhóps kl. 10:00-10:30. Gönguhópur um hverfið kl. 10:30-. Leikfimi Maríu 10:30- 11:15. Yoga kl. 11:00-12:00 Glervinnustofa m/leiðb. kl 13:00-16:00 Allir velkomnir. Gerðuberg 3-5 111 RVK Þriðjudagur Opin handavinnustofa kl.08:30-16:00. Keramik málun kl.09:00-12:00. Leikfimi gönguhóps kl. 10:00-10:30. Gönguhópur um hverfið kl. 10:30-. Leikfimi Maríu 10:30- 11:15. Glervinnustofa m/leiðb. kl 13:00-16:00 Bridge 13:00-16:00 Allir velkomnir. Gjábakki kl. 9.00 Handavinna, kl. 9.45 Stóla-leikfimi, kl. 13.00 Hand- avinna, kl. 13.30 ZUMBA, kl. 13.30 Alkort-spil. Grafarvogskirkja Opið hús fyrir eldri borgara kl. 13:00 – 15:30. Star- fið hefst á samsöng og helgistund. Í kjölfarið verður Helga Þórunn Si- gurðardóttir, tómstunda- og félagsmálafræðingur, með fyrirlestur um betri heilsu. Þá er boðið upp á spil og handavinnu. Samverunni lýkur með kaffi kl. 15:00. Grensáskirkja Alla þriðjudaga er opið hús í Grensáskirkju kl. 12-14. Fyrst er kyrrðar- og fyrirbænastund í kirkjunni, síðan léttur hádegisverður gegn vægu gjaldi og spjall. Opna húsinu lýkur eftir kaffisopa um kl. 14. Gullsmára Mánudagur: Postulínshópur kl.9.00. Jóga kl. 9.30 og 17.00. Handavinna og Bridge kl.13.00, Félagsvist kl. 20. Þriðjudagur: Myndlistarhópur kl.9.00 Boccia kl. 9.30. Málm-og silfursmíði. Canasta Trésmíði kl 13.00. Leshópur kl. 20.00 fyrsta þriðjudag hvers mánaðar. Miðvikudagur: Myndlist kl 9.30. Postulínsmálun. Kvennabridge. Sil- fursmíði kl. 13.00. Línudans fyrir lengra komna kl 16.00 Hraunbær 105 Kaffiklúbbur og spjall, allir velkomnir í frítt kaffi kl. 9. Handavinna með leiðbeinanda kl. 9-11:30. Hádegismatur kl. 11:30. Félagsvist kl. 13:15. Kaffi kl. 14:15. Hraunsel Ganga í Kaplakrika alla daga kl 8.00- 12.00 Dansleikfimi kl 9.00 Qi-gong kl 10.00 Bridge kl 13.00 Gaflarakórinn kl 16.00 Korpúlfar Listmálun kl 9 í Borgum og postulínsmálun kl 9:30, Boccia kl 10 og 16 í Borgum, helgistund í Borgum kl 10:30 og leikfimshópur Korpúlfar í Egilshöll kl 11:00 og spjallhópur kl 13 í Borgum, sundleik- fimi í Grafarvogssundlaug kl 13:30 og minnum á Vestmanneyjadaginn á morgun 23. okt. kl. 13:00 í Borgum með hátíðardagskrá og söng al- lir velkomnir í Eyjaskapi. Korpúlfar Listmálun kl 9 í Borgum og postulínsmálun kl 9.30. Boccia kl 10 og 17 í Borgum. Leikfimishópur undir leiðsögn Ársælls kl 11 í Egilshöll. Spjallhópur í listmiðjunni í Borgum kl 13:00 og sundleikfimi í Grafarvogssundlaug kl 13:30 í umsjón Brynjólfs, heimanámskennsla í bókasafninu í Spöng. Neskirkja Á Krossgötum kl. 13. Gríma Huld Blængsdóttir öldrunarlæknir fjalalr um mataræði og hreyfingu fólks á efri árum. Boðið er upp á kaffi og kruðerí. Norðurbrún 1 Morgunkaffi kl.8.30,trésmiðja 9-12, Trésmiðja kl.9-16, opin listasmiðja kl. 9-16, morgunleikfimi kl.9.45, upplestur kl.11, kaf- fihúsaferð kl.14, Hugleiðslan kl.15.30. Uppl í s 4112760 Seltjarnarnes Vatnsleikfimi í sundlauginni kl. 07.10. Kaffispjall í króknum kl. 10.30. Pútt í Risinu Eiðistorgi kl. 10.30. Kvennaleikfimi í Hreyfilandi kl. 11.30. Bridge í Eiðismýri 30, kl. 13.30. Karlakaffi í sef- naðarheimilinu kl. 14.00. Munið skráninguna í ferðina í Hruna og á Flúðir 31. okt. Kynning á Flúðasveppum, og sælkeramáltíð á Farmers Bistro. Skráning í síma 8939800. Sléttuvegur 11-13 Selið á Sléttuvegi er opið frá kl. 10 – 16. Heitt á könnunni frá kl. 10 – 11 og hægt er að líta í blöðin. Hádegismatur er frá kl. 11.30 – 12.15 og panta þarf matinn daginn áður. Bókabíllinn ke- mur kl. 13.15 og Bónusbíllinn kl. 14.40. Kaffi og meðlæti er til sölu frá kl. 14.30 – 15.30. Allir velkomnir. Síminn í Selinu er: 568-2586. Smá- og raðauglýsingar Sumarhús Sumarhús – Gestahús – Breytingar  Framleiðum stórglæsileg sumarhús í ýmsum stærðum.  Tökum að okkur stækkun og breytingar á eldri húsum.  Smíðum gestahús – margar útfærslur.  Sjáum um almennt viðhald á sumarhúsum og sólpöllum.  Setjum niður heita potta og smíðum palla og skjólveggi. Áratugareynsla – endilega kynnið ykkur málið. Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn, sími 892-3742 og 483-3693, www.tresmidjan.is Bókhald NP Þjónusta Sé um liðveislu við bókhaldslausnir o.þ.h. Hafið samband í síma 831-8682. Byggingavörur Harðviður til húsabygginga Sjá nánar á www.vidur.is Vatnsklæðning, panill, pallaefni, parket, útihurðir o.fl. Gæði á góðu verði. Nýkomnar Eurotec A2 harð- viðarskrúfur. Penofin harðviðarolía. Indus ehf., Óseyrarbraut 2, Hf. Upplýsingar hjá Magnúsi í símum 660 0230 og 561 1122. Húsviðhald FLÍSALAGNIR - MÚRVERK FLOTUN - SANDSPARSL MÁLUN - TRÉVERK Ásamt öllu almennu viðhaldi fasteigna Áratuga reynsla og þekking skilar fagmennsku og gæðum Tímavinna eða tilboð Strúctor byggingaþjónusta ehf. S. 893 6994 Vantar þig pípara? FINNA.is Það er sorglegt að þurfa að kveðja þig svona snemma. Í raun er það óskilj- anlegt og ósanngjarnt að hraust- menni eins og þú sért farinn. Sumarið var erfitt og eftir snarpa baráttu þurftum við að sætta okkur við ósigur. Eftir standa góðar minningar og þakklæti fyr- ir að hafa haft þig með okkur í líf- inu. Það var gæfuspor hjá ykkur mömmu þegar þið ákváðuð að eyða lífinu saman og innsigluðuð ykkar ást og hamingju með gift- ingu fyrir um 30 árum. Annað eins ljúfmenni og gull af manni er ekki auðvelt að finna. Þú tókst okkur systkinin að þér eins og við værum þín eigin og þó að ég hafi aldrei búið á ykkar heimili var ég alltaf sonur þinn. Heimilið ykkar var fallegt og þangað var alltaf gott að koma hvort sem það var óvænt í kvöld- mat svo ekki sé talað um veisl- urnar. Áramótin voru alltaf einstök í Reyðarkvíslinni. Eftir margrétta veislu hjá mömmu tók við goð- sagnakennd flugeldasýning sem hönnuð var af þér. Við bræðurnir vorum áhugasamir aðstoðar- menn og dældum flugeldum í sérbúinn flugeldapall sem þú varst búinn að sérsmíða og sjóða saman á verkstæði þínu. Þetta var á tíma fyrir allar flugeldakök- Guðmundur Ásgeirsson ✝ GuðmundurÁsgeirsson fæddist 22. maí 1949. Hann lést 29. september 2019. Útför Guð- mundar fór fram 10. október 2019. ur og þá vorum við með langbesta „show“ á Íslandi. Ég skil bara ekki af hverju hjálpar- sveitirnar voru ekki mættar til að fá þig í að stýra flugelda- sýningum. Síðan bættist við sumarbústaður sem við eyddum góðum stundum saman og þar varst þú á heimavelli. Alltaf varstu á fullu í verkefnum hvort sem það var við smíðar eða í gróðursetningu. Síðan í lok dags var farið að grilla og þar varst þú meistarinn. Allir sem hafa staðið við hlið þér við grillið eru grill- meistarar útskrifaðir af Mumma. Allt var gert af natni og virð- ingu sem skilaði sér í grillmat sem Michelin-kokkar væru full- sæmdir af. Það var í eitt og eitt skipti sem mamma sendi okkur til baka til að hafa suma bitana fyrir þá sem vildu „well done“, við vorum samt alltaf sammála um hvernig þetta átti að vera. Það var alltaf auðvelt að leita til þín með hjálp. Hvort sem það var með bílinn eða þegar eitthvað þurfti að laga á heimilinu. Þú varst alltaf fyrsta símtalið og svarið var alltaf: Ég skal kíkja á þetta. Í gegnum tíðina voru þeir ófáir bílarnir sem komu inn á verkstæðið til þín. Þetta var aldr- ei neitt vandamál fyrir þig og síð- asti bíllinn fór inn á verstæðið hjá þér í vetur þegar ég kom með bíl dóttur minnar Söru. Vandamál með bremsur var leyst eins og fyrsti bíllinn fyrir um 30 árum. Ekki nóg með það sem við ætluðum að laga heldur var farið yfir bílinn allan og ýmis- legt annað lagfært sem þurfti að gera. Að auki voru þau ófá gólfin sem voru lögð parketi með þinni einstöku verkstjórn og ná- kvæmni hjá okkur systkinunum. Enda kallaður Mummi milli- meter vegna þess hversu vand- virkur þú varst og ávallt var allt sem þú gerðir vel gert og entist lengi. Síðustu dagana baðstu mig um greiða og enn og aftur vil ég staðfesta að ég mun standa mig í því verkefni. Það verður alltaf okkar á milli. Minning þín mun ávallt eiga stað í hjarta okkar. Þinn Guðmundur H. Pálsson (Gummi). Þegar raunir þjaka mig þróttur andans dvínar þegar ég á aðeins þig einn með sorgir mínar. Gef mér kærleik, gef mér trú, gef mér skilning hér og nú. Ljúfi drottinn lýstu mér, svo lífsins veg ég finni láttu ætíð ljós frá þér ljóma í sálu minni. (Ómar Ragnarsson/ Gísli á Uppsölum) Góður vinur er fallinn frá. Við kynntust Guðmundi fyrst sem unglingar í skátunum og eig- um góðar minningar úr skáta- starfinu. Seinna varð hann mað- urinn hennar Ernu æskuvinkonu okkar. Margar góðar stundir áttum við saman með þeim hjónum í sumarbústaðnum þeirra og eins á mörgum ferðum okkar til Ten- erife. Með þessum orðum kveðjum við með söknuði góðan vin sem skilur eftir sig stórt skarð í vina- hópnum. Kveðja frá saumaklúbbnum, Anna, Bára, Erla, Fanney, Margrét og makar. Á einum falleg- asta degi haustsins kvaddir þú elsku Svava. Sólin skein og baðaði umhverf- ið gullnum ljóma, litadýrð nátt- úrunnar svo undurfalleg, já náttúran skartaði sannarlega sínu fegursta á kveðjustund þinni. Vinátta okkar hefur varað í áratugi, en hún hófst þegar við störfuðum allar saman við hjúkrun og aðhlynningu á Heilsustofnun og Dvalarheim- ilinu Ási í Hveragerði, og verð- ur nú stórt skarð höggvið í hóp- inn við fráfall þitt elsku vinkona. Mikið eigum við eftir að sakna þess að hafa þig ekki lengur, sakna símtalanna þegar þú hringdir og stakkst upp á að hittast í kaffi og spjalli, ferð- anna sem við fórum í sumarbú- staði eða hittumst heima hjá hvor annarri, kaffihúsaferð- anna, já það var alltaf fjörugt og mikið hlegið þegar við hitt- umst. Þú varst svo ótrúlega góðum kostum búin, einlæg vinátta þín, umhyggja þín og áhugi fyrir okkur vinkonum þínum og fjöl- skyldum okkar, glaðværð þín og jákvæðni svo einstök að margir mættu mikið af því læra. Alltaf tókst þér að sjá spaugilegu hlið- arnar á málum, neikvæðni, kvart og kvein var ekki til í þinni orðabók. Þú varst einstök vinkona og einstaklega góður vinnufélagi, þú annaðist skjól- stæðinga þína af virðingu og Svava Eiríksdóttir ✝ Svava Eiríks-dóttir fæddist 28. nóvember 1943. Hún lést 28. sept- ember 2019. Útförin fór fram 9. október 2019. umhyggju. Það var alltaf tilhlökkun að vinna með þér elsku Svava. Þitt einstaka jafnaðargeð kom svo glöggt í ljós í þínum erfiðu veik- indum, en jafnvel þá gastu gantast með ástandið og tókst á við hlut- skipti þitt af ótrú- legu æðruleysi. Við þökkum þér af alhug yndislega vináttu og kveðjum þig með sorg í hjarta, en mun- um alltaf minnast þín með gleði. Við sendum fjölskyldunni þinni, sem var þér svo kær og hefur nú misst svo mikið, inni- legar samúðarkveðjur og styrk á kveðjustund. Hvíldu í friði og Guð blessi minningu þína elsku vinkona. Ragnheiður, Kristín, Unnur og Rannveig. Elsku Svava vinkona, mér finnst sárt að kveðja þig og ætla að skrifa örfá orð til þín. Minningarnar eru svo margar og skemmtilegar sem ég fékk að njóta með þér, öll gleðin og hvað þú gerðir gott úr öllu og gantaðist með ólíklegustu hluti. Þú hafðir alveg sérstaklega góða nærveru og göngutúrarnir okkar um Hellisheiðina eru eft- irminnilegir, þrjár ferðir í Mar- ardalinn, Skarðsmýrarfjallið, nokkrar ferðir inn í Reykjadal- inn, auk þess sem við fórum með starfsfólki Heilsustofnunar. Og nú ylja ég mér við minn- ingarnar og skoða þessar mynd- ir og rifja upp þær yndislegu samverustundir. Þú elskaðir að vera úti í náttúrunni og í garð- inum þínum heima. Gleðin, já- kvæðnin og alltaf þetta fallega bros hvort sem var í vinnu eða utan hennar, mikið hlegið og gert grín að sjálfum sér. Þú varst líka með svo græna fingur, garðurinn þinn var svo fallegur og skipulagður. Þú varst alltaf að hlúa að jurtunum eins og fjölskyldunni sem var alltaf efst á blaði. Kæri Örn, Egill, Eyrún, Eva og allir í fjölskyldunni, ég votta ykkur mína dýpstu samúð. Guð gefi ykkur styrk í sorginni. Elsku Svava, hafðu þökk fyr- ir allar samverustundirnar. Hvíl í friði, elsku vinkona. Far þú í friði, friður Guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt. … (Valdimar Briem) Valgerður Baldursdóttir (Valla). Lengd | Minningargreinar sem birtast í Morgunblaðinu séu ekki lengri en 3.000 slög. Ekki er unnt að senda lengri grein. Lengri greinar eru eingöngu birtar á vefnum. Hægt er að senda örstutta kveðju, HINSTU KVEÐJU, 5-15 línur. Ekki er unnt að tengja viðhengi við síð- una. Formáli | Minningargreinum fylgir formáli sem nánustu aðstandendur senda inn. Þar koma fram upplýsingar um hvar og hvenær sá sem fjallað er um fæddist, hvar og hvenær hann lést og loks hvaðan og klukkan hvað útförin fer fram. Þar mega einnig koma fram upplýsingar um foreldra, systkini, maka og börn. Ætlast er til að þetta komi aðeins fram í formálanum, sem er feitletraður, en ekki í minningargreinunum. Minningargreinar

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.