Morgunblaðið - 22.10.2019, Síða 22

Morgunblaðið - 22.10.2019, Síða 22
22 DÆGRADVÖL MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 22. OKTÓBER 2019 60 ára María ólst upp í Maryland-ríki í Bandaríkjunum en flutti til Íslands 2007. Hún er með BA-gráðu í germönskum tungu- málum og bók- menntum frá Háskól- anum í Maryland. Hún vinnur við tæknistýringu hjá Icelandair. María hef- ur gaman af silfursmíði, að vefa og bólstra. Börn: Vilhjálmur Ásgeir Maríuson, f. 1986, og Tómas Pjetur Mitchell, f. 1988. Foreldrar: Ásgeir Pétursson, f. 1926, d. 1991, flugmaður í Reykjavík og Mary- land, og Björg Einarsdóttir, f. 1924, d. 2014, húsfreyja í Reykjavík og Maryland, síðast búsett í Reykjavík. María Ásgeirsdóttir Stjörnuspá 21. mars - 19. apríl  Hrútur Þú leggur þitt af mörkum, hvort sem beðið er um það eða ekki. Þú reynir að sjá það jákvæða í því sem ungt fólk er að gera. 20. apríl - 20. maí  Naut Yfirmaður þinn eða yfirboðari er tilbúinn að ræða launamálin. Þú ert tilbúin/n að stíga stóra skrefið og bíður eftir bónorðinu. 21. maí - 20. júní  Tvíburar Sýndu fjölskyldunni þolinmæði og þeim sem þú býrð með. Leitaðu allra leiða til að nýta það sem þú átt fyrir. Einhver býður þér í veislu. 21. júní - 22. júlí  Krabbi Rómantík er hægt að kalla fram ef viljinn er fyrir hendi. Taktu þér smá frí áður en þú snýrð þér að öðru. 23. júlí - 22. ágúst  Ljón Þú lumar á ás og ert tilbúin/n að láta hann út. Oft er það eina í stöðunni að gera sitt besta og vona hið besta. 23. ágúst - 22. sept.  Meyja Ef þú vilt endilega heyra sann- leikann verður þú að vera maður til þess að taka honum. Þér finnst einhver vilja valta yfir þig. 23. sept. - 22. okt.  Vog Lokaðu þig ekki af frá umheiminum þótt þú sért ekki upp á þitt besta. Kannski þarftu að skipta um umhverfi til þess að fá að dafna. 23. okt. - 21. nóv. Sporðdreki Forðastu að lenda í þeirri aðstöðu að þurfa að taka afstöðu með einhverjum. Hvort sem það er dagsferð, nýtt áhugamál eða andleg upplifun muntu finna fyrir eldmóð innra með þér. 22. nóv. - 21. des. Bogmaður Þótt fjölskyldan eigi hug þinn allan eru erfiðleikar annarra innan hennar að sliga þig. Allt er mögulegt ef þú bara vilt. 22. des. - 19. janúar Steingeit Þótt þér séu allir vegir færir skaltu varast að láta velgengnina stíga þér til höfuðs. Leggðu þig heldur fram um að bæta samskiptin. 20. jan. - 18. febr. Vatnsberi Það er alltaf smáa letrið í samningunum sem þarf að lesa hvað best. Réttu fram hjálparhönd. 19. feb. - 20. mars Fiskar Hafðu ekki áhyggjur af því þótt þér finnist þú vera farin/n að ryðga í fræðunum. Jákvæðnin fleytir þér langt. kennari við ýmsa háskóla hérlendis og erlendis. Rannsóknir, kennsla og fræðaskrif Jóhönnu eru á sviðum upplýsinga- og skjalastjórnar, þekk- ingarstjórnunar, gæðastjórnunar og flokkunaraðferða og flokkunarkenn- inga. Aðrar rannsóknir hennar hafa beinst að því að kanna persónulega samfélagsmiðlanotkun starfsfólks á skjalastjórnarkerfa frá Háskólanum í Tampere. Hún er fyrsti Íslending- urinn til þess að hljóta doktorsgráðu í upplýsinga- og skjalastjórn. Um síðustu aldamót var Jóhanna ráðin lektor við Háskóla Íslands (HÍ), dósent 2007 og frá 2008 hefur hún starfað þar sem prófessor í upplýs- ingafræði. Þá hefur hún verið gesta- J óhanna Gunnlaugsdóttir fæddist í Skeiðháholti, Skeiðum, 22. október 1949 og ólst upp með fjölskyldu sinni þar og á höfuðborg- arsvæðinu. „Mikinn hluta bernskuár- anna dvaldi ég hjá ömmu og afa í Skeiðháholti. Þeim á ég mikið að þakka fyrir ástúð og gott uppeldi.“ Jóhanna gekk í Vogaskóla þar til hún hóf nám í Verzlunarskóla Íslands eftir annan bekk. Á þeim tímum var skólinn sex ár. „Á fyrstu tveimur Verzlunarskólaárunum var ég á Raufarhöfn í sumarfríum, saltaði síld og vann í Sídubúð sem Sída amma mín rak með myndarbrag.“ Næstu fjögur sumur vann Jóhanna í Skóg- ræktarstöðinni í Fossvogi þar sem hún naut sín vel. Eftir stúdentspróf var hún ritari ritstjóra Morgunblaðs- ins – „sú vinna var einstaklega lær- dómsrík og átti eftir að skila sér síðar á lífsleiðinni“. Árið 1971 fluttist Jóhanna til Minnesota með eiginmanni sínum sem stundaði háskólanám þar. Hún vann sem stjórnunarritari við inn- kaupadeild Háskólans og sótti þar námskeið í ensku og blaðamennsku. Eftir heimkomuna, 1974, vann hún við ýmislegt tilfallandi s.s. próf- arkalestur, þýðingar og bréfaskriftir fyrir ýmsa aðila. Þá vann hún á Bóka- safni Garðabæjar og kenndi við Garðaskóla. Lengstan hluta starfs- ævinnar, frá 1984, starfaði hún, ásamt Kristínu Ólafsdóttur Hagalín upplýsingafræðingi, hjá Gangskör sf., ráðgjafarfyrirtæki um upplýsinga-, skjala- og bókasafnsmál. „Samstarf okkar Kristínar var einstaklega far- sælt og gefandi og við unnum saman í um 25 ár fyrir liðlega 100 fyrirtæki og stofnanir.“ Þær Kristín héldu einnig námskeið og fyrirlestra fyrir ýmsa aðila s.s. sem Stjórnunarfélag Ís- lands, Endurmenntun Háskóla Ís- lands, Félag um skjalastjórn, ráðu- neyti og háskóla. Jóhanna lauk BA-prófi í bóka- safnsfræði og sagnafræði frá Háskóla Íslands, MSc (Econ) í stjórnun og rekstri með áherslu á upplýsinga- stofnanir og upplýsingakerfi frá Há- skólanum í Wales og doktorsprófi í notkun og innleiðingu rafrænna vinnutíma og viðhorf almennings til upplýsingagjafar stjórnvalda. Jóhanna hefur verið í stjórn ýmissa félaga og samtaka m.a. um bókasafns- og upplýsingamál. Hún var einn af stofnendum Félags um skjalastjórn árið 1988, sat í stjórn þess um árabil og var gerð að heiðursfélaga 2008. Þá hefur hún starfað í hinum ýmsu nefndum og starfshópum innan HÍ m.a. á vegum háskólaráðs/rektors s.s. markaðs- og samskiptanefnd, starfs- hópi um endurskoðun málstefnu HÍ, starfshópi um mótun stefnu HÍ um opinn aðgang, málnefnd, gæðanefnd og stýrihópi HÍ um máltækni. Hún situr í stjórnarnefnd Þjóðskjalasafns Íslands og hefur verið formaður tækninefndar hjá Staðlaráði Íslands um þýðingu ISO 15490-1, staðli um upplýsingar og skjalastjórn. Áhugamál Jóhönnu eru garðrækt, skógrækt, sögur og klassísk tónlist. „Helsta áhugamálið er þó að sinna dásamlegu barnabörnunum mínum fjórum og fjölskyldunni. Þá hef ég einnig mikla ánægju af fræða-, rit- og nefndarstörfunum hjá HÍ og víðar og þá ekki síst þátttöku í nýju fjölþjóð- legu rannsóknarverkefni þeirra, sem Jóhanna Gunnlaugsdóttir prófessor – 70 ára Ljósmynd/Nærmynd Fjölskyldan Stödd fyrir utan heimili Jóhönnu og Árna í Garðabæ síðastliðið vor. Fyrsti doktorinn í skjalastjórn Ljósmynd/FOCAL Prófessorinn Jóhanna á opnun ráðstefnu um samfélagsmiðla árið 2010. 50 ára Björg er Keflvíkingur og býr í Reykjanesbæ. Hún er sjúkraþjálfari að mennt frá Háskóla Íslands og á og rek- ur Sjúkraþjálfun Suð- urnesja í félagi við annan. Áhugamál Bjargar eru íþróttir fyrst og fremst. Maki: Ágúst Þór Hauksson, f. 1967, húsasmíðameistari og starfar sjálf- stætt. Börn: Thelma Dís, f. 1998, og Andri Fannar, f. 2004. Foreldrar: Hafsteinn Guðnason, f. 1939, fyrrverandi skipstjóri, og Eydís B. Eyjólfsdóttir, f. 1940, húsmóðir. Þau eru bús. í Keflavík. Björg Hafsteinsdóttir Til hamingju með daginn Laugavegi 178 | 105 Reykjavík | Sími 551 3366 | Opið virka daga kl. 10-18, laugardaga kl.10-14 Misty WARMWARE Síðerma bolur S-XL Verð 6.990,- Rúllukragabolur Stærðir S-XL Verð 6.990,- Leggingsbuxum Stærðir S-XL Verð 7.990,- Börn og brúðhjón Á opnunni „Íslendingar“ í Morgunblaðinu er sagt frá merkum viðburðum í lífi fólks, svo sem stórafmælum, hjónavígslum, barnsfæðingum og öðrum tímamótum. Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum borgara eða mynd af brúðhjónum fá fría áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð. Hægt er að senda mynd og texta af slóðinni mbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.is

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.