Morgunblaðið - 22.10.2019, Síða 25

Morgunblaðið - 22.10.2019, Síða 25
ÍÞRÓTTIR 25 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 22. OKTÓBER 2019 Smiðjuvegi 66 • 580 5800 • landvelar.is Loftpressur af öllum stærðum og gerðum SKRÚFUPRESSUR Mikð úrval af aukahlutum NBA Gunnar Valgeirsson Los Angeles Á síðustu 35 keppnistímabilum síðan undirritaður hóf þessa NBA- pistla höfum við séð nokkur yfir- burðalið sem voru ávallt líkleg að verja meistaratitilinn. Í upphafi voru það viðureignir Los Angeles Lakers og Boston Celtics með þá Magic Johnson og Larry Bird í fararbroddi á níunda áratugnum. Detroit Pistons brúuðu síðan tímabilið inn í níunda áratuginn þegar Chicago Bulls og Michael Jordan réðu ríkjum. Þegar Lakers fluttu síðan í Stapl- es Center 1999 urðu þeir yfirburða- lið, en San Antonio Spurs var einnig með titla inni á milli. Undanfarin áratug hefur það síðan verið hvaða lið sem LeBron James spilar með og loks Golden State Warriors undan- farin fimm ár. Í sumar urðu hinsvegar miklar breytingar í styrkleika margra lið- anna vegna liðsskiptinga nokkurra stærstu stjarna deildarinnar, en eins og bent var á í pistlum undirritaðs um helgina á mbl.is gætum við átt von á að slíkar sviptingar á sumrin í deildinni verði reglan frekar en und- antekningin, þar sem toppleikmenn veigra sér við að gera langtíma- samninga við lið sín. Fyrir margt stuðningsfólk liðanna er þetta leiðinleg þróun. Það vildi frekar að leikmannahópi liðs sín yrði haldið saman. Markaðslögmálin og þar með frelsi leikmanna til að velja vinnuveitanda gera þann stöðug- leika erfiðan. Leikmenn elta pening- inn eins og margir aðrir á vinnu- markaðnum, þannig að búa verður við þessa stöðu að óbreyttu. Fyrir marga aðra eru pælingar um leikmannaskipti og allt sem í kringum þau bara hið besta mál. NBA-eðjótar hafa sínar eigin skoð- anir og fjölmiðlar og samfélags- miðlar eru á fullu allt sumarið í pæl- ingum um hvaða leikmenn séu á hreyfingu, sem allt í einu gefur stuðningsfólki margra liða von um gott sæti í úrslitakeppninni þar sem allt getur gerst. Um leið er deildin í sviðsljósinu tólf mánuði á ári. Tvær stjörnur, þrjár stjörnur Mestu athyglina í sumar vöktu liðsskiptin í Vesturdeildinni þar sem bæði Kawhi Leonard, frá Tor- onto Raptors, og Paul George (ég kalla hann sjálfur Paul George John og Ringo!) frá Oklahoma City Thunder, fóru báðir yfir til Los Angeles Clippers, sem um leið gerði liðið að meistarakandídat. Russell Westbrook fór einnig frá Thunder til Houston Rockets í leik- mannaskiptum, þar sem hann á ný verður samherji James Harden. Westbrook setur Rockets í stöðu til að berjast um titilinn enn eitt árið. Loks voru það leikmannaskipti Los Angeles Lakers og New Or- leans Pelicans sem gerðu Lakers kleift að ná í Anthony Davis sem samherja LeBron James. Auk þessara toppleikmanna var að sjálfsögðu fullt af öðrum leik- mannaskiptum, en þau ættu ekki að hafa eins mikil áhrif á baráttuna um meistaratitilinn – jafnvel ekki samningarnir sem Kyrie Irving og Kevin Durant gerðu við Brooklyn Nets. Durant verður frá næstum allt – ef ekki allt – keppnistímabilið. Án hans mun liðið eflaust gera það gott, en ekki blanda sér í toppbar- áttuna. Þessir stjörnuleikmenn voru allir að reyna að koma sér í þá stöðu að vera í liði sem gæti gert atlögu að meistaratitlinum. Frá þeirra sjón- arhorni þarf lið allavega tvær – ef ekki þrjár – stórstjörnur til að geta blandað sér í toppbaráttuna. Milwaukee og Denver róleg Á meðan á öllu þessu stóð sátu tvö lið frekar róleg og ákváðu að halda í sinn hóp, viss í trú sinni á að leik- mannahópurinn sem þau hefðu væru nógu góður til að vinna titilinn. Í Austurdeildinni er Milwaukee Bucks enn með leikmann ársins, Grikkjann Giannis Antetokounmpo, og annars sterkan leikmannahóp. Vestanmegin heldur Denver Nugg- ets áfram að byggja liðið í kringum Serbann Nikola Jokic. Þessi tvö lið hafa ekki vakið mikla athygli sam- anborið við liðin sem voru virk á markaðnum í sumar, en að mínu mati verða bæði þessi lið með í bar- áttunni um meistaratitilinn. Galopin Austurdeild Rétt eins og í fyrra er keppnin austanmegin galopin, enda LeBron James löngu farinn vestur. Milwaukee Bucks virðist vera það lið sem flestir sérfræðingar telja muni ná toppsætinu í Austurdeild- inni í vetur og er erfitt að efa það mat. Antetokounmpo var leikmaður ársins í deildinni síðasta keppnis- tímabil og hann hefur góðan leik- mannahóp til stuðnings. Þjálfarinn Mike Budenholzer var kosinn þjálf- ari ársins eftir síðasta keppnis- tímabil og hann breytti leik liðsins í sókninni í þriggja-stiga maskínu. Liðið skoraði yfir helmingi fleiri þriggja-stiga körfur en leiktímabilið árið áður og það opnaði pláss í vítat- eignum fyrir Antetokounmpo að at- hafna sig. Þetta mun sjálfsagt áfram virka vel fyrir liðið í vetur. Philadelphia 76ers og Boston Celtics ættu að fylgja hér fast á eftir, enda bæði lið með trausta liðshópa. 76ers misstu tvær skyttur, en náðu í miðherjann Al Horford frá Boston. Hann og Joel Embiid verða erfiðir viðureignar í vetur. Liðið er með hávaxið, sérstaklega þegar tek- ið er tillit til þess að leikstjórnandinn Ben Simmons er einnig mjög hávax- inn í þeirri stöðu. Þetta er sterkt varnarlið. Stóra spurningin er hvort liðið hafi nóg af skorun úr þriggja- stiga skotum. Ég er ekki viss um að Tobias Harris muni nægja hvað það varðar. Gott að losna við Irving? Miklar vonir voru bundnar við Boston Celtics á síðasta keppn- istímabili, en þær brustu allar þegar í úrslitakeppnina kom. Brad Stevens var talinn einn af bestu þjálfurunum í deildinni, en hann var gagnrýndur fyrir að hafa litla stjórn á leik- mannahópnum þegar í harðbakkann sló seint á leiktímabilinu. Kannski mun brotthvarf Kyrie Irving til Bro- oklyn bæta málin hér, en hann er boltahákur, sérstaklega seint í leikj- um. Celtics mun sjálfsagt reyna að dreifa boltanum meira í sóknar- leiknum, en Kemba Walker sem kom frá Charlotte Hornets í sumar er einnig vanur að vera mikið með boltann. Hann er hinsvegar betri samherji en Irving, þannig að Stev- ens ætti ekki að eiga í eins miklum erfiðleikum með liðið í ár. Brott- hvarf miðherjans Al Horford til Philadelphia mun hinsvegar verða skarð sem erfitt verður að fylla fyrir Celtics. Indiana Pacers, Brooklyn Nets og meistarar Toronto Raptors munu einnig blanda sér eitthvað í barátt- una austanmegin í vetur, en verða væntanlega ekki í toppslagnum á endanum.  Seinni hluti umfjöllunarinnar þar sem farið er yfir Vesturdeild NBA birtist í blaðinu á morgun. Á mbl.is/sport/korfubolti er jafnframt greinin: Um skoðanafrelsi og pen- inga. gval@mbl.is Sviptingar verða að reglu  Keppnin í NBA-deildinni í körfuknattleik hefst í kvöld  Mikið um leikmanna- breytingar í sumar og mörg lið tilnefnd  Milwaukee talið líklegast í Austurdeild AFP Stjörnuleikmaður Giannis Antetokounmpo, 24 ára gamall Grikki, hefur gert lið Milwaukee Bucks að einu þeirra sterkustu í NBA-deildinni, enda ótrúlega fjölhæfur leikmaður sem auk þess er 2,06 metrar á hæð. Ég verð ekki oft veikur. Sér- staklega ekki í seinni tíð. Það gerist nánast aldrei. Kollegi minn á íþróttadeild Morgunblaðsins mætti galvaskur til leiks á mánu- degi fyrir ekki svo löngu. Hann var allur hinn hressasti þegar ég kvaddi hann rétt fyrir hádegi til þess að fara á blaðamannafund hjá KKÍ. Þegar ég kom svo til baka þá var allt annað hljóð í manninum. Ég mætti honum í matsalnum þar sem hann starði á gólfið. Þegar ég spurðu hann hvort hann væri ekki í góðu lagi þá stundi hann því upp úr sér að hann væri eitthvað slappur. Skemmst er frá því að segja að hann sagði ekki orð við mig það sem eftir lifði dags, eða allt þangað til hann fór ælandi á kló- settið, klukkutíma síðar og svo beint heim á beddann. Kollegi minn þjáðist af alvar- legri upp-og-niður-veiki. Það heyrðist ekki mikið í honum næstu daga. Það eins sem komst að hjá mér var hins vegar sú staðreynd að daginn sem hann fór veikur heim tók hann viðtöl við bæði Alfreð Finnbogason og Jóhann Berg Guðmundsson, landsliðsmenn í knattspyrnu, sem voru á leið inn í mikilvægan leik gegn heimsmeisturum Frakka á föstudeginum. Ég var með þetta á heilanum alla vikuna og beið eftir fréttum úr herbúðum landsliðsins um að Alfreð og Jóhann væru með svæsna magakveisu. Það var þungu fargi af mér létt þegar Er- ik Hamrén tilkynnti að allir leik- menn liðsins væru heilir heilsu á blaðamannfundi daginn fyrir leik. Ég vaknaði svo ferskur á föstudeginum, meira en tilbúinn í landsleikinn á Laugardalsvelli. Ég endaði hins vegar á því að fara veikur heim upp úr hádegi með upp-og-niður-veikina. BAKVÖRÐUR Bjarni Helgason bjarnih@mbl.is

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.