Morgunblaðið - 22.10.2019, Page 28
28 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 22. OKTÓBER 2019
Óseyrarbraut 12, 220 Hafnarfirði | Klettagörðum 5, 104 Reykjavík | stolpigamar@stolpigamar.is
Gámaleiga
Er gámur lausnin fyrir þig?
Við getum líka geymt gáminn fyrir þig
568 0100
stolpigamar.is
HAFÐU
SAMBAND
Búslóðageymsla z Árstíðabundinn lager z Lager z Sumar-/vetrarvörur
Frystigeymsla z Kæligeymsla z Leiga til skemmri eða lengri tíma
Böðvar Páll Ásgeirsson
bodvarpall@mbl.is
Ný myndlistarsýning Hörpu Árna-
dóttur, Djúpalogn, var opnuð í
Hverfisgalleríi laugardaginn síð-
asta og stendur yfir til 23. nóv-
ember. Á sýningunni eru blýants-
teikningar og málverk, lítil sem
stór, og er lognið ásamt minningu
um staði við-
fangsefnið.
Bíldudalur og
Arnarfjörður,
sem dalurinn
stendur við,
skipa stóran sess
í sýningunni.
„Vestfirðingar
tala um svarta-
logn, mér hefur
alltaf fundist það
svo fallegt,“ seg-
ir Harpa um nafn sýningarinnar.
„Fjörðurinn verður svo myrkur,
það er að segja hafið, það verður
eins og svart á litinn. Það er svo
mikil veðurblíða þarna og fjörð-
urinn verður dimmur og dökkur
þegar fjöllin speglast í vatninu.
Þau eru svo há að þetta er eins og
pottur á Bíldudal,“ segir Harpa en
hún er fædd í Bíldudal og eyddi
mörgum sumrum þar ung að aldri.
Flöskublágrænn fjörður
Harpa fékk vinnuaðstöðu hjá
frændfólki sínu á fæðingarstaðnum
og var að eigin sögn þar meira og
minna í allt sumar, þar sem hún
teiknaði, málaði og skrifaði. „Ég
hafði verið að skrifa um lognið í
allt sumar og þessa veðurblíðu sem
var. Ég fékk lognið bara á heilann
og hætti ekkert að undrast þetta.
Ég varð ofandottin og undrandi á
logninu þegar ekki hreyfðist vindur
dögum saman,“ segir Harpa.
Hún fór víða um á Bíldudal í
sumar, hafði vinnuaðstöðu á þrem-
ur stöðum og á einum þeirra var
útsýnið ekki af verri endanum.
„Þar horfði ég beint ofan í fjörðinn
og fór að velta fyrir mér þessum lit
á hafinu; hann er einhvern veginn
síbreytilegur. Þegar gengið er um
Arnarfjörðinn er liturinn víða túrk-
ís eða flöskublágrænn. Ég velti
fyrir mér hvort það væri hægt að
ná þessum lit en hann sleppur ein-
hvern veginn undan og ég næ aldr-
ei fullkomlega litnum sem maður
upplifir sjálfur í kyrrð og logni,
þessari óendanlegu og gríðarlegu
fegurð sem er þarna fyrir vestan,“
segir Harpa, sem hefur greinilega
mikið dálæti á æskuslóðunum.
Harpa nefnir hvali sem hún varð
vör við í sumar. „Maður sér þá
mjög langt í burtu og sér sporðana
þegar þeir sletta þeim upp og
hverfa aftur ofan í djúpið. Ég hafði
ekki séð hvali áður í Arnarfirði og
það er víst eitthvert nýtt fyrir-
brigði að þeir séu komnir inn í
fjörðinn,“ segir hún, en jafnvel
elstu menn muni ekki eftir slíku.
Finnur lognið á kinnunum
Náttúran sem umlykur þá staði
sem fólk dvelst á úti á landi skapar
mikinn frið, að sögn Hörpu. „Svo
er maður einhvern veginn kominn
heim líka,“ segir hún. „Ég kannast
svo vel við mig í þessum aðstæðum.
Svo skipta minningarnar líka máli,
ég hef mikið verið að skrifa um
það. Það eru svo margar sögur úr
Arnarfirði, bæði harmur og gleði.
Maður hefur nógan tíma til að
hugsa um það þegar setið er og
málað eða teiknað.“
Harpa segir verk sín vera á
mörkum þess að vera óhlutbundin
og hlutbundin og segja megi að
landslag sé í verkunum.
„Það er þessi þráhyggja fyrir
hafinu, sjóndeildarhringnum og
þessu sem við erum alltaf að horfa
á og reyna að koma því frá sér í lit.
Þetta er eins og að horfa niður fyr-
ir fætur sér á allt sem er að gerast
í fjörunni eða í flæðarmálinu og svo
hvarfla augun út eftir sjóndeildar-
hringnum. Til dæmis eftir regn
þegar fjöllin birtast eftir að hafa
horfið handan fjarðar í regninu.
Ætli ég sé ekki að skapa ástand
með teikningum mínum. Þetta
snýst um tilfinningu, lit og ástand.
Hvernig það er að standa í logni og
stara úr sér augun. Hvernig það er
að upplifa lognið.“
Harpa segir enn fremur að titill-
inn, Djúpalogn, eigi svolítið að
skila þessari tilfinningu. „Hvernig
það er að upplifa lognið í Arnar-
firði þegar lognið er svo mikið að
þú finnur það á kinnunum,“ segir
hún og hlær. „Þessi mýkt.“
Sömu pælingar öld áður
Vatnslitamynd af Bíldudal eftir
Ásgrím Jónsson fær að njóta sín á
sýningunni. „Hann bjó og starfaði
á Bíldudal þegar hann var ungur
maður en í kringum aldamótin
[1900] var svo mikla vinnu þar að
fá,“ segir Harpa.
„Þegar ég var að undirbúa þessa
sýningu var mér sýnd þessi mynd
og mér fannst hún svo mikil opin-
berun. Þetta málverk er af Bíldu-
dal, firðinum og þessu logni og
þessum græna lit sem ég er búin
að pæla svo mikið í. Ég hugsaði
með mér að það væri yndislegt að
sýna þetta verk því mér fannst ég
verða fyrir áhrifum af því,“ segir
Harpa, en hún fékk myndina að
láni og fékk að hafa á sýningunni
og segir að lokum merkilegt að
uppgötva að merkur listamaður
sem var á Bíldudal fyrir svo mörg-
um árum hafi verið í svipuðum
hugleiðingum og hún.
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Ástand „Þetta snýst um tilfiningu, lit og ástand,“ segir Harpa Árnadóttir um verk sín í Hverfisgalleríi.
„Ég fékk lognið á heilann“
Ný myndlistarsýning Hörpu Árnadóttur nefnist Djúpalogn og var opnuð um liðna helgi Harpa
notar fæðingarstaðinn Bíldudal sem innblástur Vatnslitamynd eftir Ásgrím Jónsson meðal verka
Harpa
Árnadóttir
Kvartett söngkonunnar Rebekku
Blöndal heldur tónleika í kvöld á
Kex hosteli en á þriðjudögum er
þar djasskvöld. Kjartan Valde-
marsson leikur á píanó í kvart-
ettinum, Sigmar Þór Matthíasson
á kontrabassa og Matthías Hem-
stock á trommur. Á efnisskránni
verður swing, blús, bebop og jafn-
vel scat ef söngkonan verður í
stuði, eins og segir í tilkynningu.
Rebekka hefur komið víða við
og þykir ein af efnilegustu
djasssöngkonum landsins um
þessar mundir, hefur m.a. komið
fram í djasstónleikaröð Jómfrúar-
innar.
Leikar hefjast kl. 20.30 og að-
gangur er ókeypis. Kex hostel er
á Skúlagötu 28.
Kvartett Rebekku
á djasskvöldi Kex
Djass Kvartett Rebekku mun leika swing,
blús, bepob og jafnvel scat.
Hin sögufræga teikning ítalska
endurreisnarmeistarans Leonardos
da Vinci verður sýnd á umfangs-
mestu sýningu á verkum hans í lista-
safninu Louvre í París, þrátt fyrir
tilraunir þess efnis að koma í veg
fyrir að teikningin yrði send þangað
frá Feneyjum. Ítalskur dómstóll
vísaði þeirri kröfu hópsins Italia
Nostra frá 16. október síðastliðinn.
Italia Nostra helgar sig varðveislu
og verndun ítalskra menningardýr-
gripa. Menningarmálaráðherrar
Ítalíu og Frakklands sömdu um að
teikningin yrði lánuð, en hún þykir í
afar viðkvæmu ástandi. Töldu tals-
menn Italia Nostra að hún ætti held-
ur að vera áfram í sýningarsölum
Accademia í Feneyjum.
Vitrúvíu-maðurinn er í safni 16
verka í safninu og afar dýrmætur.
Samkvæmt ítölskum lögum má ekki
senda úr landi og lána dýrmæt lista-
verk sem þykja of viðkvæm fyrir
flutninga og loftslagsbreytingar,
samkvæmt frétt BBC. Sýningin í
Louvre er haldin í tilefni af 500 ára
ártíð listamannsins.
Vitrúvíu-maðurinn
sýndur í París
Fræg Blekteikning da Vinci, Vitrúvíu-
maðurinn, er mikil gersemi.
Þrír sænskir
tónlistarmenn
koma fram með
söngkonunni
Stínu Ágústs-
dóttur á tón-
leikum djass-
klúbbsins
Múlans í Hörpu
annað kvöld kl.
21, þeir Henrik
Linder, sem er
þekktur sem bassaleikari Dirty
Loops, Carl Mörner Ringström
gítarleikari og Jonathan Lundberg
trommuleikari. Þeir munu einnig
halda námskeið í dag á vegum
FÍH og MÍT og Carl Mörner verð-
ur með svokallaða gítarklínik í
Hljóðfærahúsinu í dag kl. 14.
Þrír sænskir í
Hljóðfærahúsinu
Bassaleikarinn
Henrik Linder