Morgunblaðið - 22.10.2019, Qupperneq 32
Fjórði fyrirlestur haustsins hjá
Sagnfræðingafélagi Íslands verður
haldinn í dag kl. 12.05 í fundasal
Þjóðminjasafns Íslands. Sverrir
Jakobsson flytur fyrirlesturinn
„Jesús Kristur í ljósi kenninga um
menningarlegt minni“ og rekur í
honum þróunarsögu hugmynda um
Jesúm út frá kenningum um menn-
ingarlegt minni. Sverrir er prófess-
or í miðaldasögu við sagnfræði- og
heimspekideild Háskóla Íslands.
Jesús í ljósi kenninga
ÞRIÐJUDAGUR 22. OKTÓBER 295. DAGUR ÁRSINS 2019
Sími: 569 1100
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is
Í lausasölu 670 kr.
Áskrift 7.240 kr. Helgaráskrift 4.520 kr.
PDF á mbl.is 6.420 kr. iPad-áskrift 6.420 kr.
Glódís Guðgeirsdóttir, fyrrverandi
landsliðskona í hópfimleikum, segir
að íslensku landsliðskonurnar sem
unnu Evrópumeistaratitla árin
2010 og 2012 hafi þurft að greiða
æfingagjöldin, æfingaferð erlendis
og keppnisferðina sjálfa úr eigin
vasa. Hver landsliðskona fyrir sig
hafi borgað um hálfa milljón króna
til að vera með. »26
Landsliðskonurnar
greiddu allt sjálfar
ÍÞRÓTTIR MENNING
Nýtt tímabil í NBA-
deildinni í körfuknatt-
leik hefst í kvöld.
Miklar sviptingar
hafa verið á leik-
mannamarkaði
deildarinnar í sumar
og mörg lið eru
nefnd til sögunnar þeg-
ar möguleg meistaraefni
eru til umfjöllunar.
Gunnar Valgeirsson er að
hefja 36. tímabil sitt sem
sérfræðingur Morgun-
blaðsins í NBA-deildinni
og í dag fjallar hann um
leikmannakaupin og um
stöðu mála í Austurdeild-
inni þar sem útlit er fyrir
tvísýna keppni. »25
Sviptingar á leik-
mannamarkaði NBA
Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
Kristinn Örn Guðmundsson tók við
Innrömmun Guðmundar á Eiðistorgi
af föður sínum fyrir nokkru, útvíkk-
aði starfsemina og heitir fyrirtækið
nú 3ernir. „Nafn fyrirtækisins er vís-
un í millinafn mitt og þrívíddar-
hönnun, sem ég starfa mikið í ásamt
kvikmyndagerð,“ segir hann.
Guðmundur Kristinsson vann lengi
við innrömmunina og Kristinn var
honum til aðstoðar þegar á þurfti að
halda. „Nú hafa hlutverkin snúist
við,“ segir listamaðurinn og bætir við
að þótt hann hafi tekið við innrömm-
uninni hafi gerð skipamódela ekki
fylgt með. „Pabbi heldur áfram að
dunda sér við þau, en ég get gripið í
það þegar þörf er á.“
Kristinn lærði þrívíddarhönnun í
Lundúnum á Englandi. Að námi
loknu var nóg að gera í innrömm-
uninni og eitt leiddi af öðru. „Allt í
einu var ég tekinn við og það var
minni breyting en ætla mætti enda
held ég áfram að vinna við það sem
ég hef verið að gera.“
Kristinn notar stafræna tækni við
listsköpun sína, blandar saman efni
úr grafík, þrívíddarhönnun, ljós-
myndum og mismunandi bak-
grunnum. Hann hélt sýningu á Ítalíu
fyrir tveimur árum og hefur haldið
tvær sýningar hérlendis auk þess
sem 60 listaverk eftir hann eru á
Landhóteli, lúxushóteli skammt frá
Hellu. Sérstakt þema er fyrir hverja
hæð hótelsins og vann Kristinn verk
sín með hliðsjón af því, en myndir af
ýmsum verkum hans má sjá á heima-
síðu hans (iceon.art).
Skemmtileg vinna
„Gott er að dreifa huganum og ég
hef gert svolítið af því að gera myndir
fyrir fyrirtæki,“ segir Kristinn. Hann
hefur líka gert kvikmyndir, meðal
annars heimildamyndina Bréfmiða til
Páls, sem er um Pál á Húsafelli og
var sýnd á sínum tíma á ÍNNTV og
kvikmyndahátíðinni Reykjavík
Shorts & Docs í Bíó Paradís. „Kvik-
myndagerðin hefur reyndar vikið fyr-
ir öðru að undanförnu enda nóg að
gera í þrívíddarmyndunum og inn-
römmuninni.“
Myndirnar eru óvenjulegar og
vekja athygli og Kristinn segir
skemmtilegt að vinna þær. „Það er
alltaf gaman að skapa eitthvað, vinna
með myndirnar og sjá afraksturinn.“
Hann segist nota hverja stund, safna
í sarpinn með sýningu í huga. Litla
listabókin er nýr kynningarbækl-
ingur, sem hann útbjó til að vekja at-
hygli á listaverkum sínum og liggur
bæklingurinn meðal annars frammi á
Landhóteli. „Ég hugsa hana fyrst og
fremst sem kynningu á því sem ég er
að gera,“ segir hann.
Innrömmunin hefur verið fastur
punktur í verslunarkjarnanum á Eið-
istorgi um árabil og nú er stafræna
tæknin orðin fyrirferðarmikil á efri
hæðinni, en Kristinn segist hafa
fundið fyrir breytingu á svæðinu eftir
að Íslandsbanki og Pósturinn fóru úr
miðstöðinni. „Umferð gangandi fólks
er minni og þetta hefur haft áhrif á
viðskiptin, en það er samt nóg að
gera í hönnuninni og við að ramma
inn fyrir sýningar listamanna. Hins
vegar kemur innrömmun í bylgjum;
stundum er rólegt og stundum koma
verkefni í hrönnum.“
Morgunblaðið/Eggert
Eiðistorg Kristinn Örn Guðmundsson stillir út verkum sínum á ganginum framan við vinnustofuna.
Hlutverkaskipti feðga
Ekki lengur aðeins innrömmun heldur líka þrívíddar-
hönnun og kvikmyndagerð í höndum Kristins Arnar