Morgunblaðið - 24.10.2019, Side 16
16 UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 24. OKTÓBER 2019
Skeifunni 8 | Sími 588 0640 | casa.is
ER08 hægindastóll
Leður – verð 285.000,-
Til þess er málið
varðar.
Mig langar til að út-
skýra stöðu mála á
Spáni, lesendum ykkar
til upplýsingar. Á
mánudaginn í síðustu
viku sakfelldi Hæsti-
réttur Spánar níu
stjórnmálaleiðtoga fyr-
ir uppreisnaráróður,
sem er afar alvarlegt
afbrot samkvæmt spænskum hegn-
ingarlögum og á við um skipulagn-
ingu almennra óeirða til að koma í
veg fyrir, með valdi eða utan laga, að
lögum sé framfylgt. Auk þess var
hinum sakfelldu meinað að gegna op-
inberu embætti. Fjórir hinna sak-
felldu voru einnig dæmdir fyrir stór-
fellda misnotkun á opinberu fé í því
skyni að fjármagna uppreisnar-
áróður.
Þrír aðrir stjórnmálaleiðtogar hafa
verið sakfelldir fyrir að óhlýðnast
Stjórnarskrárdómstól Spánar, gert
að greiða sekt og meinað að gegna
opinberu embætti. Sakborningarnir
geta áfrýjað málinu til Stjórn-
arskrárdómstóls Spánar og Mann-
réttindadómstóls Evrópu í Strass-
borg.
Stjórnmálaflokkar aðskilnaðar-
sinna eru löglegir á Spáni og allir
stjórnmálamenn hafa fullt frelsi til að
tjá skoðanir sínar. Öll hinna sakfelldu
voru dæmd fyrir verk
sín, sem voru brot á lög-
um, en ekki fyrir hug-
myndir sínar. Öll nutu
þau almennra lögbund-
inna réttinda og hlutu
sanngjarna máls-
meðferð í lýðræðisríki,
þ.e. Spáni, þar sem
mannréttindi njóta full-
komlega sambæri-
legrar verndar og á Ís-
landi hvað varðar rétt
til óvilhallra dómstóla,
sjálfstætt dómskerfi,
rétt til að tjá sig ekki og forðast
sjálfsásökun um refsivert athæfi, rétt
til varnar og rétt til óhlutdrægra
réttarhalda, en alls þessa var gætt í
þessu tilfelli. Sýnt var beint frá rétt-
arhöldunum í sjónvarpi og á þriðja
hundrað blaðamanna var heimilað að
fylgjast með málsmeðferðinni.
Nær allar evrópskar stjórnar-
skrár, svo sem stjórnarskrá Þýska-
lands, Frakklands, Noregs, Ítalíu og
Portúgal, fela í sér ákvæði um frið-
helgi eigin yfirráðasvæðis. Stjórn-
arskrá Spánar tryggir einingu lands-
ins, rétt eins og stjórnarskrár
annarra vestrænna þjóða. Þar að
auki má nefna að samkvæmt skil-
greiningu Sameinuðu þjóðanna tak-
markast sjálfsákvörðunarréttur við
tilfelli þar sem um landtöku, hernám
eða alvarleg mannréttindabrot er að
ræða. Ekkert af þessu á við um Kata-
lóníu.
Katalónía, líkt og önnur sjálf-
stjórnarsvæði Spánar, nýtur meiri
sjálfstjórnar en þekkist víðast hvar
annars staðar í heiminum. Enn frem-
ur verndar stjórnarskráin sér-
staklega menningararfleifð og tungu-
mál heimamanna, sem er að jafnaði
kennt í skólum og háskólum. Þar sem
það á við er spænska opinbert tungu-
mál ásamt tungumálinu sem talað er
á hverjum stað.
Eins og Hæstiréttur hefur bent á
er ekkert lýðræði utan réttarríkisins.
Lýðræði felur ekki eingöngu í sér
kosningarétt heldur einnig að virt
séu þau stjórnmálalegu réttindi sem
allir þegnar njóta samkvæmt stjórn-
skipuninni. Með því er átt við þrí-
skiptingu ríkisvaldsins, að ákvörð-
unum dómstóla sé framfylgt og
almenna sátt um að samfélags-
uppbygging sé aðeins möguleg ef all-
ir þegnar viðurkenna að lagaramm-
inn sé settur til að gæta
fullveldisréttar þjóðarinnar.
Í yfirlýsingu sinni á mánudag sagði
forsætisráðherra Spánar að nú væri
það ekki lengur landamærahelgi
Spánar sem væri í húfi, heldur sam-
búðin við Katalóníu. Ríkisstjórn
Spánar myndi ávallt leggja sitt af
mörkum til að ná sáttum við kata-
lónskt samfélag, sem sjálfstæðis-
hreyfingin hefur sundrað, og ríkis-
stjórn og þing Katalóníu þyrfti nú að
tala máli og stjórna fyrir hönd allra
Katalóníubúa, ekki minnihluta að-
skilnaðarsinna. Ríkisstjórn Spánar
hefur alla tíð verið opin fyrir pólitísk-
um skoðanaskiptum við hreyfingu
aðskilnaðarsinna með því eina skil-
yrði að farið sé að stjórnarskránni og
lögum.
Skilyrði að farið sé að
stjórnarskrá og lögum
Eftir Mariu Isabel
Vicandi » Í yfirlýsingu sinni á
mánudag sagði for-
sætisráðherra Spánar
að nú væri ekki lengur
landamærahelgi Spánar
í húfi, heldur sambúðin
við Katalóníu.
Maria Isabel Vicandi
Höfundur er sendiherra
Spánar á Íslandi.
Það kom að því að
meirihlutinn í Reykja-
vík fékk hugmynd um
það hvernig ætti að
spara peninga og sýna
ráðdeild í rekstri. Það
á að loka skóla! Loka
heilum grunnskóla
þannig að hverfi þar
sem búa yfir 1.100
manns verða án þeirr-
ar lögbundnu grunn-
þjónustu sem sveitar-
félaginu ber skylda til þess að veita.
Það er skiljanlega ekki sátt með
þessa ákvörðun meðal íbúa í Graf-
arvogi. Síðustu sameiningar voru
árið 2012. Þá sparaðist ekki króna,
þær voru illa skipulagðar. Sér-
staklega var varað við því ef það
myndi aftur þurfa að fara í að sam-
eina skóla að gera það þá aldrei í
flýti. Fyrstu hugmyndir um að loka
og sameina skóla komu fram í mars
á þessu ári. Þetta ferli hefur því
ekki verið langt, nákvæmlega eins
og árið 2012.
Milljarður í skatta og gjöld
Auðvitað vilja íbúarnir hafa skól-
ann áfram í hverfinu, enda er
Staðahverfið flott hverfi þar sem
býr fólk sem skilar sínu í formi
skatta og gjalda til Reykjavík-
urborgar. Það má leiða að því líkum
að íbúar í Staðahverfinu greiði um
einn milljarð í skatta
og gjöld árið 2019 til
Reykjavíkurborgar
miðað við útsvar, fast-
eignamat, lóðamat og
önnur gjöld. Það er því
ekki að furða að íbú-
arnir séu reiðir,
svekktir og sárir. Þeir
eru vissulega að leggja
sitt af mörkum til
borgarsjóðs. Þeir búa
líka í hverfi þar sem er
í gildi deiliskipulag,
sem er ígildi lagasetn-
ingar. Skólinn er
bundinn í deiliskipulag og því verið
að brjóta á íbúum í hverfinu með
því að loka skólanum. Reykjavík-
urborg gæti því hugsanlega verið
að skapa sér skaðabótaskyldu
gagnvart íbúum í hverfinu.
Lokað í fimm ár til þess að
greiða fyrir þrjár framkvæmdir
Afrek um ráðdeild í rekstri þessa
meirihluta eru til dæmis endurgerð
Hlemms og Bragginn sem kostuðu
okkur skattgreiðendur 700 millj-
ónir. Það gera 3,5 ár í lokun fyrir
skólann í Staðahverfi. 3,5 ár til
þess að ná upp í kostnað við þessi
tvö verkefni. Ef við bætum síðan
við torginu sem er verið að gera
fyrir utan heimili borgarstjóra og
kostar 300 milljónir þarf skólinn að
vera lokaður í fimm ár til þess að
borga fyrir þessar þrjár fram-
kvæmdir.
Þetta er sorgleg forgangsröðun á
nýtingu peninga okkar skattgreið-
enda á tímum sögulegs tekju-
góðæris í Reykjavík.
Sögulegt tekjugóð-
æri og grunnskóla
í Grafarvogi lokað
Eftir Valgerði
Sigurðardóttur
Valgerður
Sigurðardóttir
» Fyrstu hugmyndir
um að loka og sam-
eina skóla komu fram í
mars á þessu ári.
Höfundur er borgarfulltrúi
Sjálfstæðisflokksins.
valgerdur.sigurdardottir@reykjavik.is
Ef það yrði ákveðið
að leggja Sundabraut-
ina undir Elliðavoginn
með jarðgöngum, og
yfir Geldinganes með
brúm og uppfyll-
ingum, þá yrði sá veg-
ur lagður - samkvæmt
teikningum að dæma -
fram hjá Mosfellsbæ
án beinnar tengingar
við þá byggð, en það
tel ég mjög óheppilegt.
Þá er ljóst að með þessu leiðarvali
verður Sundabrautin gríðarlega dýr í
framkvæmd.
Vil ég því hér með benda á aðra leið
sem yrði miklum mun ódýrari, og að
mínu mati jafnframt mun betri. Sá
vegur verði greiðbraut, með tveimur
akreinum ásamt vegaröxl hægra meg-
in í hvora átt og öll þverumferð um
vegbrýr.
Byrjað verði á þessari nýju leið frá
Vesturlandsvegi og lagður tvískiptur
vegur með tveimur akreinum eftir
Höfðabakka, Gullinbrú og Strandvegi
norður að ströndinni. Vegurinn liggi
svo áfram meðfram ströndinni upp að
og vestan megin fram hjá Mosfellsbæ.
Þar haldi vegurinn svo áfram þvert
yfir Leirvog, Álfsnes og
Kollafjörð og upp á
Kjalarnes og svo alla
leið upp í Hvalfjörð,
með tveimur akreinum í
hvora átt. Á allri þess-
ari leið verði öll þver-
umferð um vegbrýr
(mislæg gatnamót);
engin gatnamót eða
hringtorg og engin
gjaldskylda eða veg-
gjöld.
Að sjálfsögðu þarf
ekki að leggja þennan veg í einum
áfanga. Það má leggja hann í áföng-
um.
Ný leið, ódýrari og
betri, út frá Reykjavík,
í stað Sundabrautar
Eftir Tryggva
Helgason
Tryggvi Helgason
» Tvískiptur vegur,
tvær akreinar í
hvora átt, frá Höfða-
bakka upp á Kjalarnes.
Öll þverumferð um mis-
læg gatnamót. Engin
hringtorg, engin gjald-
skylda.
Höfundur er fyrrum flugmaður.
tryggvi.helgason@hotmail.com
Allt um sjávarútveg
Móttaka aðsendra greina
Morgunblaðið er vettvangur lifandi umræðu í landinu og birtir aðsendar grein-
ar alla útgáfudaga.
Þeir sem vilja senda Morgunblaðinu greinar eru vinsamlega beðnir að nota
innsendikerfi blaðsins. Kerfið er auðvelt í notkun og tryggir öryggi í sam-
skiptum milli starfsfólks Morgunblaðsins og höfunda. Morgunblaðið birtir
ekki greinar sem einnig eru sendar á aðra miðla.
Kerfið er aðgengilegt undir Morgunblaðslógóinu efst í hægra horni forsíðu
mbl.is. Þegar smellt er á lógóið birtist felligluggi þar sem liðurinn „Senda inn
grein“ er valinn.
Í fyrsta skipti sem innsendikerfið er notað þarf notandinn að nýskrá sig inn
í kerfið. Ítarlegar leiðbeiningar fylgja hverju þrepi í skráningarferlinu. Eftir að
viðkomandi hefur skráð sig sem notanda í kerfið er nóg að slá inn kennitölu
notanda og lykilorð til að opna svæðið.