Morgunblaðið - 24.10.2019, Qupperneq 17

Morgunblaðið - 24.10.2019, Qupperneq 17
MINNINGAR 17 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 24. OKTÓBER 2019 ✝ Þórður EydalMagnússon fæddist 11. júlí 1931 í Vestmanna- eyjum. Hann lést 19. október 2019. Foreldrar hans voru Magnús Ingi- bergur Þórðarson, f. 5. mars 1895, d. 2. janúar 1983, og Sigríður Sigmunds- dóttir, f. 18. mars 1897, d. 18. maí 1982. Bræður Þórðar Eydals voru Sigmundur Grétar Magnússon, f. 22. des- ember 1927, d. 26. mars 2017, og hálfbróðir Þórarinn Magn- ússon, f. 17. febrúar 1921, d. 18. janúar 1999. Eftirlifandi eiginkona Þórðar er Kristín Sigríður Guðbergs- dóttir, f. 18. júní 1932 í Dýra- firði. Börn þeirra: 1) Magnús Þórðarson, f. 5. apríl 1956. Maki: Kristín Kristjánsdóttir, f. 23. desember 1959. Börn þeirra eru; a) Fríða Kristín, maki 1973. Börn þeirra eru; a) Eyja Eydal, eiginmaður hennar er Egill Erlingsson. b) Rakel, eig- inmaður hennar er Rasmus Dalsgaard Sörensen, dóttir þeirra er Freya Eydal. c) Tinna Eydal. d) Kári Eydal. Þórður Eydal lauk stúdents- prófi 1951 og tannlæknaprófi frá Háskóla Íslands 1956, hann stundaði framhaldsnám í tann- réttingum við Tannlæknaskól- ann í Kaupmannahöfn 1956-58 og hjá dr. Phil. Kaare Reitan í Ósló 1958-59. Þórður Eydal fékk sérfræðingsviðurkenningu árið 1965, fyrstur íslenskra tannlækna. Þórður Eydal varð dr. odont. frá Háskóla Íslands 1979 fyrir fyrsta doktorsverk- efnið sem bæði var unnið og varið við tannlæknadeild Há- skóla Íslands. Hann skrifaði fjölda vísindagreina, endur- nýjaði þekkingu sína stöðugt og sótti námskeið og ráðstefnur ut- anlands og innan. Að loknu námi hóf Þórður Eydal kennslu við Háskóla Íslands og var pró- fessor í tannréttingum og rak sína eigin stofu alla sína starfs- ævi til ársins 1998. Útförin fer fram frá Hall- grímskirkju í dag, 24. október 2019, klukkan 15. hennar er Sig- mundur Ingvar Svansson. Börn þeirra eru; Svandís Mjöll, maki hennar er Hrafnkell Daði, börn þeirra eru; Írena Sól og Balt- asar Leó. Linda Hrönn, maki henn- ar er Orri Sveinn og Ingvar. b) Guð- rún Lilja, barns- móðir Guðrúnar er Jódís Skúla- dóttir. Börn þeirra eru Alex Skúli, Magnús Bjartur, Eldey Arna og Ásgrímur Ari. c) Þórð- ur Eydal, eiginkona hans er Magnea Íris Jónsdóttir. Dætur þeirra eru, Sara Karin og Elsa Dís. d) Kristinn Örn. e) Aron Máni. f) María Rós. 2) Ari Þórð- arson, f. 26. maí 1961, d. 23. nóvember 2007. Dætur hans eru; a) Aníta Líf. b) Rut. 3) Björn Eydal Þórðarson, f. 16. ágúst 1966. Eiginkona hans er Dögg Káradóttir, f. 18. maí Nú kveðjum við ástkæran afa okkar, með söknuð í hjarta. Hann var einstakur maður á allan hátt og aðra eins fyrirmynd er varla hægt að finna. Hann mótaði okk- ur á sinn eigin hátt og hvatti okk- ur áfram til þess að verða betri manneskjur að öllu leyti. Margar góðar minningar koma upp í hugann og þakklæti, sem oftar en ekki tengjast sum- arsólar staðnum okkar í Neðra- dal og í Fáfnisnesinu hjá ömmu og afa. Við systur vorum svo heppnar að vera elstar og fá að njóta samveru með ykkur ömmu lengi. Alltaf var hægt að dobla afa þegar okkur systurnar langaði í eitthvað eða að gera eitthvað með honum og ömmu. Þau amma auðguðu líf okkar á svo margan hátt, sem varla er hægt að setja í orð, en þar á meðal voru listasöfn, sögur, alls kyns fróðleikur og leikhúsferðir svo fátt eitt sé nefnt. Afi var merkur maður á svo margan hátt, hann var fyrstur Ís- lendinga til þess að fá sérleyfi í tannlækningum og var frum- kvöðull á sínu sviði, hann birti síðustu vísindagrein sína í sam- starfi við deCode fyrir einu og hálfu ári, elstur allra manna. Hann greindist með illvígan sjúk- dóm fyrir um ári og glímdi við hann með reisn allt fram til dauðadags. Hann var frímúrari og vildi alltaf allt gott fyrir alla gera alla tíð. Hann var mikill smekkmaður og snyrtimenni með eindæmum. Elsku afi okkar, hvíldu í friði, við vitum að það var tekið vel á móti þér. Guðrún Lilja Magnúsdóttir og Fríða Kristín Magnúsdóttir. Kveðja frá Tannlæknafélagi Íslands. Það má með sanni segja að einn af brautryðjendum tann- læknisfræðinnar hér á landi sé fallinn frá. Dr. odont, prófessor emeritus, Þórður Eydal Magnús- son lést á Vífilsstöðum 19. októ- ber síðastliðinn, 88 ára að aldri. Eftir stúdentspróf í MR lá leið Þórðar í Tannlæknadeild Há- skóla Íslands. Eftir útskrift það- an 1956 hóf hann framhaldsnám í tannréttingu við Tannlæknaskól- ann í Kaupmannahöfn 1956-1958 og síðar í Ósló 1958-1959. Sér- fræðiviðurkenningu fékk Þórður fyrstu íslenskara tannlækna 1965. Hann starfaði við sérgrein sína allt fram til 1997. Þórður hóf kennslu sem stundakennari í tannréttingum við læknadeild Háskóla Íslands, en tannlækna- námið var til að byrja á vegum læknadeildar. Hann var skipaður prófessor í tannréttingum 1. jan. 1971. Þórður Eydal var fræðimaður af líf og sál. Dr. odont varð hann við tannlæknadeild 1979 fyrir rit- gerð sína, Maturation and Mal- occlusion in Iceland og jafnframt fyrsti doktorinn við deildina. Eft- ir Þórð liggur mikið safn fræði- greina sem birtar voru innan- lands og í vísindaritum erlendis. Í starfi sínu lagði Þórður mikla áherslu á langtímarannsóknir. Viðfangsefni hans var fyrst og fremst vöxtur og þroski andlits og tanna, langtímabreytingar og áhrif erfða. Eftir formleg starfslok hélt Þórður tengslum við tannlækna- deild og var meðal annars leið- beinandi tveggja doktorsnema sem byggðu rannsóknir sínar á gagnasafni hans. Þórður var mik- ill ákafamaður í öllu sem hann tók sér fyrir hendur, hvort heldur var við fræðistörf sín, skógrækt eða önnur áhugamál. Þórður Eydal var þrívegis deildarforseti tannlæknadeildar Háskóla Íslands, árin 1974-76, 1980-82 og 1992-94. Hann gegndi ýmsum félags- og trúnaðarstörf- um fyrir Tannlæknafélag Ís- lands, var tvívegis forseti Nor- disk Orthodontisk Selskab. Hann var fyrsti formaður Tannrétt- ingafélags Íslands og síðar heið- ursfélagi þess. Þórður var í vara- stjórn NIOM (Nordisk Institut for Odontologisk Materialprøvn- ing). Á þessum tímamótum kveðj- um við kollega Þórð Eydal Magn- ússon með virðingu og þökk og vottum aðstandendum hluttekn- ingu. F.h. Tannlæknafélags Íslands, Svend Richter. Mæður okkar voru systkina- börn, í báðar ættir. Þær áttu því sömu afa og ömmur. Haustið 1960 sáumst við Þórður fyrst; ég tólf og hann 29 ára, sérfræðingur. Við mamma mættum á stofuna hjá honum, til að ég fengi hjálp, vegna skakkra tanna. Þrátt fyrir að ég væri í tann- lækningastól leið mér strax vel. Ég fann að ég var í öruggum höndum. Nærveran var góð, full örygg- is, léttleika og glæsimennsku. Þannig var það næstu þrjú árin. Ég fór margar ferðir til Þórðar og tilhlökkun var ofar í huga en kvíði. Hann lagfærði ekki einung- is tennur skjólstæðingsins, held- ur gældi einnig við sálartetrið með hlýrri kankvísi og notalegum þögnum. Nærtækt var honum að spyrja frændann unga úr sveit forfeðr- anna; Mýrdalnum, um búskap og rekafjörur. Samræðunum hélt hann uppi, þótt hendur hans hindruðu andsvör með köflum. – Slíkar samræður eru ein af kúnstum góðra tannlækna. Eftir að Þórður og Kristín keyptu Neðra-Dal í Mýrdal var stutt að fara til að heimsækja þau þar og þá fyrst kynntist ég Krist- ínu. Víst voru þau góðu skipti of strjál en þeim fjölgaði með árun- um. Á seinni árum heimsótti ég þau, tvisvar, þrisvar, á ári í Reykjavík. Það voru góðar stundir, eins og vera ber. Við stóðum báðir í þeirri trú, að margt líkt væri með skyldum og að vel færi á að tala tæpitungu- laust um það sem á góma bæri. Öll var sú samvera til að treysta ættarböndin. Alkunnur er lærdómur Þórðar og rannsóknir hans um góm- heilsu og lækningar á langri starfsævi. Í krafti sinna vísinda vann hann kærleiksverk og gerði mörgu ungmenni kleift að horfa upplitsdjarft framan í heiminn. Fyrir þá dáð á hann inni guðs- þakkir bestar. Kristínu og frændum mínum Birni, Magnúsi og venslafólki þeirra öllu, flyt ég hér mína kveðju. Tómas Ísleifsson. Það hefði ekki komið mér á óvart að Þórður Eydal yrði eilífur í þessari jarðvist. Því kom and- látsfrétt hans mér í opna skjöldu, þrátt fyrir að níræðisafmælið væri á næsta leiti. Atorkusamur og enn á kafi í því sem alla tíð átti hug hans, faginu og rannsóknun- um. Þórður var ekki óumdeildur maður. Hann tjáði skoðun sína yfirleitt umbúðalaust og ekki endilega með diplómatískum hætti. Átti jafnvel til að móðga menn, en honum var sama um það á meðan málefnið naut sannleik- ans. Það kom oft síðar í ljós – jafnvel löngu síðar – að Þórður hafði rétt fyrir sér í afar mörgum málum og þá þarf stundum að muna að málefnið á að vera mönnunum mikilvægara. Hann var frumkvöðull og lagði hart að sér. Regluverk og rammi þurfti að vera til staðar og skilyrðum full- nægt – hann var fyrstur Íslend- inga til að fá sérfræðingsleyfi innan tannlæknisfræðinnar sem var jafnframt það fyrsta, sem veitt var af heilbrigðisyfirvöldum á Norðurlöndum. Næstu tvö sér- fræðileyfin á Íslandi voru veitt 15 árum síðar, sem lýsir framsýni Þórðar á þessum tíma. Hann var og fyrstur til að verja doktorstitil í tannlækning- um á Íslandi. Rannsóknargrunnur Þórðar Eydal er traustur og uppspretta margra vísindagreina sem Þórð- ur, ásamt samferðamönnum hans í vísindaheiminum, skilur eftir sig. Mesta gæfa Þórðar í lífinu var án efa eiginkona hans, Kristín Sigríður Guðbergsdóttir sem lifir mann sinn. Þau eignuðust þrjá syni, tveir þeirra lifa föður sinn. Kristín gerði Þórði kleift að verða sá mikli vísindamaður sem hann var, með endalausum stuðningi. Vísindasamfélagið á henni ekki síður gjöf að gjalda en Þórði. Þegar komið er að leiðarlokum minnumst við Þórðar Eydal með þakklæti og hlýju og lofum að halda áfram á þeirri braut sem hann markaði. Innilegar samúðarkveðjur sendi ég Kristínu, sonum hennar og öðrum afkomendum. Kristín Heimisdóttir. Þórður Eydal Magnússon ✝ Erna RuthKonráðsdóttir fæddist í Reykjavík 11. mars 1941. Hún lést á Hjúkrunar- og dvalarheimilinu Barmahlíð á Reyk- hólum 15. október 2019. Foreldrar Ruthar voru Kon- ráð Jón Kristins- son, f. 18. apríl 1907, d. 1. des- ember 1966, og Guðrún Margrét Sæmundsdóttir, f. 10. júní 1916, d. 6. október 2006. Systur Rut- har eru Sigurlína, f. 1937, búsett í Kópavogi, og Edda, f. 1939, d. 2018. Erna Ruth ólst upp í Reykja- vík, gekk í Verzlunarskólann og bjó og starfaði um tíma í Svíþjóð og Danmörku. Tvítug giftist hún Sigurgeiri E. Ágústssyni, f. 1937, d. 1991. Börn þeirra eru: 1) Rakel, f. 1961, hún á tvær dætur og eitt barnabarn. 2) Þór- ir, f. 1963, hann á þrjú börn og eitt barnabarn. 3) Sturla, f. 1964, og 4) Konráð, f. 1974. Ruth og Geiri hófu búskap á Reykhólum í Reyk- hólasveit árið 1962. Tveimur árum síð- ar fluttu þau að Saltvík á Kjalar- nesi. Vorið 1965 fluttu þau í Eyja- fjörðinn og bjuggu í eitt ár í Kaupangi í Eyjafjarðarsveit, síðar á Leifsstöð- um, í sömu sveit, frá 1966-1971 og Flögu í Hörgárdal frá 1971 1977 en þá flutti fjölskyldan í Þórunn- arstræti 83 á Akureyri. Ruth og Geiri skildu árið 1983. Ruth flutti að Laugarvatni ásamt yngsta syni sínum árið 1987 þar sem þau voru í eitt ár áður en þau fluttu til Reykjavík- ur. Ruth bjó í Reykási 37 fram til ársins 2013. Þá var hún á Dvalar- og hjúkrunarheimilinu Ási í Hveragerði í tvö ár en dvaldi síðustu fjögur æviárin á Hjúkrunar- og dvalarheimilinu Barmahlíð á Reykhólum. Útför Ernu Ruthar fer fram frá Fossvogskapellu í dag, 24. október 2019, klukkan 11. Þegar ég frétti af andláti móð- ursystur minnar brutust fram margar minningar um hana. Lengst af í minni æsku bjó hún fyrir norðan, fyrst í sveit og svo á Akureyri. Samgangurinn var þar af leiðandi ekki mikill en þeim mun eftirminnilegri. Þegar ég var rétt um níu ára fór ég ásamt systkinum mínum í pössun til hennar, sem var mjög spennandi, og varð okkur Ruth tíðrætt um þessa heimsókn seinna á lífsleið- inni. Seinni hluta ævinnar glímdi Ruth við erfið veikindi, og við hittumst allt of sjaldan. Ég og mamma fórum til hennar fyrir nokkrum árum, meðan mamma hafði enn heilsu til, og var það okkar síðasta kveðja. Ruth hefur alltaf átt sérstakan stað í hjarta mínu og þótt við hittumst ekki oft þótti mér afar vænt um hana. Konráð Hall. Erna Ruth Konráðsdóttir ✝ Snorri Þor-steinn Pálsson fæddist í Dagverð- artungu í Hörgár- dal 20. nóvember 1959. Hann lést á Sjúkrahúsinu á Ak- ureyri 13. október 2019 eftir skamm- vinna baráttu við krabbamein. Foreldrar Snorra voru Páll Valberg Ólafsson, f. 16.5. 1916, d. 14.2. 2000, og Hulda Snorra- dóttir, f. 31.1. 1920, d. 27.9. 2010. Systkini Snorra eru Gylfi, f. 1949, kvæntur Rósu Maríu Björnsdóttur, Ragna, f. 1951, gift Ævari Ragnarssyni, Gísli Arnór, f. 1952, kvæntur Stef- aníu Þorsteinsdóttur og Snjó- laug, f. 1954, gift Þorsteini Sig- urðssyni. Árið 2017 kvæntist Snorri Nittaya Nonghee frá Taílandi og bjuggu þau á Fjólugötu 13 á Ak- ureyri. Snorri ólst upp í Dagverðartungu, lauk gagnfræða- prófi í Gagnfræða- skóla Akureyrar og búfræðiprófi frá Búnaðarskólanum á Hólum í Hjalta- dal. Snorri bjó með foreldrum sínum í Dagverð- artungu til ársins 1994 er hann flutti til Akureyrar. Snorri stundaði nokkra vinnu á Akureyri en drýgst voru störf- in til sveita eftir því sem heilsan leyfði. Síðustu árin starfaði hann á veitingastaðnum Krua Siam. Snorri var virkur félagi í Kiwanisklúbbnum Kaldbaki. Útför Snorra fer fram frá Ak- ureyrarkirkju í dag, 24. október 2019, klukkan 13.30. Kær vinur burtkallaður, söknuður, eftirsjá og hugurinn reikar. Ég kynntist Snorra fljótlega eftir að við Kam stofn- uðum og fórum að reka veit- ingastaðinn Krua Siam á Ak- ureyri. Ég tók strax eftir því að hann kunni vel að meta taí- lenskan mat og vildi hafa hann sterkan og svo vildi hann fá malt með matnum þegar hann kæmi á borðið. Fyrstu árin kom hann nokkuð reglulega og var ætíð aufúsugestur hjá okk- ur, hann vildi alls ekki að kveikt væri á kerti á sínu borði og var ég stundum óvart kom- inn með kveikjarann að borðinu þegar ég sá svipinn á honum og hætti snarlega við. Ef rólegt var á kvöldin átti hann til að biðja um tvöfaldan viskí og tvo klaka. Hvorki fyrr né síðar hef ég hitt mann sem kunni eins margar vísur og hann, það var alveg ótrúlegt að kynnast þeirri hlið hans og þegar hann fór var hann búinn að skrifa niður fyrir mig fullt af vísum og hver orti og af hvaða tilefni. Seinna æxlaðist það svo þannig að Snorri fór að vinna hjá okkur eitthvað smá fyrst og síðan eins og hann gat, hann var búinn að missa heilsuna vegna bakmeiðsla og stundum átti hann erfitt vegna þess. Hann var mjög samvisku- samur um allt sem hann tók sér fyrir hendur og var algjörlega hægt að treysta honum fyrir öllu sem átti að inna af hendi. Hann gat mætt flesta daga nema fimmtudaga þegar var Kiwanis-fundur, hann var þar í stjórninni. Mér er minnistætt að hann kom með blað til mín og spurði hvort ég vildi styrkja Kiwanis-söfnun og reiknaði með að mitt litla fyrirtæki yrði með lægstu upphæðina en er ég merkti við þá næsthæstu sá ég votta fyrir tári í augum hans, þannig var hann. Snorri var fæddur og uppal- inn í Dagverðartungu í Hörg- árdal og var mjög stoltur af uppruna sínum. Var fróðlegt að fara í bíltúr með honum um sveitirnar í kringum Akureyri, þar var hann á heimaslóðum sínum og margar vísur fleygar sem hann kunni og fór með fyr- ir okkur þá. Fyrir þremur árum fór hann með okkur Kam til Taílands. Var það dásamleg ferð og var hann í essinu sínu þar. Við komum ansi mikið ríkari heim eftir þá ferð og þar kynntist Snorri ástinni sinni henni Nitthayu (Nutsölu) sem nú syrgir mann sinn. Snorri greindist nú í vetur sem leið með krabbamein sem nú hefur sigrað vin okkar sem ætlaði að halda upp á 60 ára af- mælið með annarri Taílands- ferð nú í haust. Kæri vinur, nú ert þú lagður upp í einhverja allt aðra ferð en þú verður með okkur í anda næst þegar við förum þangað. Við Kam vottum Nutsölu og systkinum hans og ættingjum samúð okkar og megi guð blessa ykkur og minningu Snorra Þorsteins Pálssonar. Haraldur Haraldsson (Halli) og Kam. Snorri Þorsteinn Pálsson Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, JÓNAS ÁSMUNDSSON fv. aðalbókari Háskóla Íslands, lést í faðmi fjölskyldunnar á dvalarheimilinu Grund aðfaranótt 19. október. Jarðsungið verður frá Digraneskirkju fimmtudaginn 31. október klukkan 13. Guðrún Jóna Jónasdóttir Ingi Halldór Árnason Ásmundur Jónasson Guðrún Vignisdóttir Gylfi Jónasson Ásdís Kristmundsdóttir Helgi Þór Jónasson Kristín Pétursdóttir barnabörn og barnabarnabörn

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.