Morgunblaðið - 04.10.2019, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 04.10.2019, Blaðsíða 8
8 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 4. OKTÓBER 2019 ERUVETR ARSKÓRN IR ÞÍNIR Í TI MBERLAN D? Kringlunni, s ími 533-22 90 Þ ó að Svala Björgvinsdóttir kjósi að vera sem náttúrulegust í útliti á daginn er hún frekar mikið máluð þegar hún kemur fram. „Ég er alltaf frekar mikið máluð þegar ég er í vinnunni, það er þegar ég er að koma fram, í myndböndum eða í myndatökum. Þannig að dags- daglega vil ég helst vera með sem minnst framan í mér. Mér finnst líka fínt að nota litað dagkrem og svo smá litaðan varasalva og svo maskara. Uppáhaldsmaskarinn minn er frá YSL. Hann heitir Volume Effet Faux og ég nota hann daglega. Varðandi húðumhirðu þá sef ég aldrei með farða. Ég nota alltaf sólarvörn þó svo það sé ekki sól og ég ligg ekki í sólbaði. Ég hef notað krem gegn öldrun húðarinnar frá því ég var 20 ára til að fyrirbyggja línur og hrukkur. Svo elska ég sánur og andlitsböð til að virkja háræðar og gefa húðinni fallegan lit og taka af dauðar húðfrumur. Það sem er fram undan hjá mér er mikil upp- tökuvinna þar sem ég er að semja og taka upp nýja tónlist sem kemur út á næsta ári. Síðan er ég mikið að syngja og koma fram eins og vanalega.“ Svala elskar YSL Ljósmynd/Aðsend Yves Saint Laurent Volume Effet Faux Cils maskarinn. Svala Björgvinsdóttir er frekar mikið máluð þegar hún kemur fram. Svala Björgvinsdóttir, söngkona og lagahöfundur, notar mest púður og maskara auk glossa. Hún heldur upp á maskarann frá Yves Saint Laurent. Elínrós Líndal | elinros@mbl.is S umar af fallegustu konum veraldar hafa náð einstökum tökum á að klæða sig í takt við orkuna sem þær vilja vera í hverju sinni. Tal- ið er að það búi innra með okkur öllum tvenns konar orka. Önnur er sú kvenlega og hin sú karllega. Sú fyrri er talin ráða yfir náttúru- auðlindum en sú seinni yfir veraldlegum gæðum. Sophia Loren Loren kunni betur en margar aðrar að klæða sig þannig að eftir henni var tekið. Það sem hún lagði áherslu á var að sýna mjótt mittið og fallega brjóstaskoruna. Hún kunni betur en margar aðrar konur að vera í síðum pilsum og það eina sem hún sýndi vanalega af fótleggjunum voru fallegir ökklar. Það dást allir að útliti Loren. Lauren Bacall Það er seint hægt að segja að Bacall hafi verið í kvenorkunni. Það var borin virðing fyrir hæfileikum hennar og hún kunni að klæða sig í takt við það. Hún var alltaf í óaðfinnanlegum buxum. Með vel lagt hárið og fallegan varalit. Tíska sem er vinsæl um þessar mundir. Catherine Denueve Deneuve var með útlit konu sem karl- ar vildu sjá um. Hún greiddi sér fallega, var alltaf í óaðfinnan- legum fatnaði. Hún faldi kynþokk- ann undir fögru skinni, en var með orku sem kallaði á aðdáun hvert sem hún kom. Hún var ein af þeim sem gengu stundum í stuttum pilsum. Hún var aldrei í flegnum fatnaði en alltaf með þetta daðurslega augnaráð sem endurspeglaði orku hennar. Goldie Hawn Hawn hefur nær aldrei sést í karl- orkunni. Hún hefur alltaf verið snillingur í að hafa hárið fagur- lega mótað við andlitið. Bæði þeg- ar hún var með stuttan drengja- koll á sjöunda áratug síðustu aldar, og einnig þegar hún safnaði í meiri vængi á áttunda ára- tugnum. Hawn lagði áherslu á vönduð efni og stelpuleg snið. Hún gekk í lágstemmdum litum, klæðilegum sniðum og ein- stökum efnum og notaði brosið eins og aðdráttarafl sem enginn karl gat staðist. Viltu aðdáun eða virðingu? Lauren Bacall klæddi sig upp á í herra- legum fatnaði. En var með fallega mál- aðar varir sem gerðu hana kvenlega. Þegar kemur að tískunni í dag má segja að tvær stefnur séu vinsælar. Önnur þeirra er að klæða sig upp á líkt og karlmaður, þar sem jakkafötin eru víð og frakkarnir stórir. Slíkur fatnaður á að auka á virðingu konunnar. Hins vegar virðist vera í tísku að vekja aðdáun með kvenlegum sniðum og kynþokkafullum efnum. Elínrós Líndal | elinros@mbl.is Það var borin virðing fyrir Lauren Bacall hvert sem hún kom. Sophia Loren þykir ein kyn- þokkafyllsta kona veraldar. Það dást allir að Goldie Hawn. Catherine Denueve er með lág- stemmda kynþokkafulla orku. Sophia Loren var dugleg að sýna á sér bringuna. Hún var þá vanalega í síðum pilsum við.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.