Morgunblaðið - 04.10.2019, Qupperneq 34

Morgunblaðið - 04.10.2019, Qupperneq 34
34 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 4. OKTÓBER 2019 Vefverslun og sölustaðir á oskabond.is F all eg ar ge rs em ar T ania Lind veit fátt skemmtilegra en að skoða heiminn, kynnast nýju fólki og borða góðan mat. Hún bjó í fjögur ár í London, þar sem hún stundaði nám í Fashion Marketing London College of Fashion. „Eftir að ég útskrifaðist fékk ég starfi hjá Exposure, fyrirtæki sem sérhæfir sig í stafrænni markaðsfræði og al- mannatengslum. Þar vann ég fyrir ótrúlega flott fyrirtæki á borð við Hendricks, Evian Water og Patron – þetta var dýrmæt reynsla sem ég kann svo sannarlega að meta í dag. Eftir fjögur ár í London ákvað ég að flytja heim, það sem spilaði inn í var að ég var búin að vera í fjarbúð í næstum þrjú ár. Þetta var sameiginleg ákvörðun um að dvelja um stund hér á landi saman. Draumurinn er þó að búa erlendis.“ Stefnir að því að flytja aftur út Tania Lind er að taka meistarapróf í markaðsfræðum og alþjóða- viðskiptum við Háskóla Íslands. „Eftir námið stefni ég á að flytja til Kaupmannahafnar í von um meiri vinnureynslu á stærri markaði. Mig hefur alltaf langað að búa þar, enda ótrúlega falleg og sjarmerandi borg – og ekki skemmir fyrir hversu tísku- vædd borgin er.“ Hún hefur verið að gera upp íbúð með kærastanum að undanförnu. „Það er mjög skemmtilegt en krefjandi verkefni. En ég hef gert þetta meðfram náminu, sem á hug minn allan þessa dagana.“ Hvernig var að búa á er- lendri grundu? „Yndislegt. Í raun það besta sem ég hef gert. Ég hef búið í þremur ólíkum löndum og var það örugglega ein besta lífsreynsla sem ég hef fengið. London situr á toppn- um, enda besta borg í heimi að mínu mati. Svo mikið líf og alltaf eitthvað að gera, hvort sem það er að rölta um í görðunum, skoða flotta markaði eða bara kíkja á pöbbinn. Það geta allir fundið eitthvað við sitt hæfi í Lond- on. Ég hvet alla sem ég þekki til að flytja til útlanda þó svo að það sé ekki nema bara í smá tíma, það gefur manni alveg ótrúlega mikið.“ Langar að stofna sitt eigið fyrirtæki Hvert stefnir þú í framtíð- inni tengt vinnu? „Minn draumur hefur allt- af verið að stofna mitt eigið fyrirtæki, svo hver veit eftir námið hvað ég geri. Við- skiptahliðin á tísku er mín ástríða svo eitthvað tengt því væri mitt draumastarf. Ann- ars verð ég bara ótrúlega sátt ef ég get fengið að vinna við það sem ég elska og ferðast í leiðinni. Ég bið ekki um meira en það.“ Hvernig var að vera í fjarbúð? „Það var mjög krefjandi en samt sem áður mjög gaman og lærdómsríkt. Það styrkti sambandið alveg heilan helling og lærði ég að þekkja sjálfa mig vel. Eins kenndi það mér að standa meira á eigin fótum.“ Hvað finnst þér áhugavert tengt tískunni? „Hvað hún er síbreytileg og fjölbreytt.“ Hvað er tíska í þínum huga? „Mér finnst langflottast þegar maður getur túlkað hver maður er í Tania Lind Fodilsdóttir er athafnakona sem hefur mikinn áhuga á tísku. Hún segir fólk í tísku ef það klæði sig eftir eigin sannfæringu þótt hún sé á því að allir ættu að eiga einn töffaralegan jakka í skápnum fyrir veturinn. Elínrós Líndal | elinros@mbl.is Kápa frá Monki, galla- buxur frá Zara, bolur frá & Other Stories og skór frá AllSaints. „Það ættu allar konur að eiga töffaralegan jakka“ Morgunblaðið/Árni Sæberg Kápa og veski frá & Other Stories. Peysa frá AllSaints.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.