Morgunblaðið - 04.10.2019, Blaðsíða 37
Ekki nota of dökkan lit
Þegar þú ætlar að finna réttu vör-
urnar til að móta augabrúnirnar
skaltu nota lit sem er í takt við þinn
náttúrulega hárlit eða tóni ljósari. Of
dökkar augabrúnir geta ýtt undir
þreytumerki og fínar línur í andlit-
inu og eru langt frá því að endur-
spegla náttúrulegt útlit.
Mótaðu útlínurnar með
fínlegum augabrúnablýanti
Greiddu augabrúnirnar
upp og notaðu fínlegan auga-
brúnablýant til að móta létt
línuna undir augabrúnunum.
Næst skaltu greiða auga-
brúnirnar niður og finndu
hæsta punkt þeirra og teikn-
aðu lauslega meðfram honum
með augabrúnablýantinum.
Núna greiðirðu augabrúnirn-
ar aftur upp og þú ættir að
vera byrjuð að sjá mótun
þeirra. Einn besti og vinsæl-
asti augabrúnablýanturinn er
Brow Wiz frá Anastasia Be-
verly Hills en það er skylda
að eiga einn slíkan ef þú vilt
ná fram mótuðum augabrún-
um.
Líktu eftir náttúrulegum
hárum með
örfínum línum
Notaðu fíngerða
augabrúnablýantinn
til að líkja eftir náttúrulegum hárum
með því að teikna fínar línur í sömu
átt og hárin vaxa.
Fylltu upp í brúnirnar
Notaðu skáskorinn bursta með
smá púðri eða kremformúlu. Byrj-
aðu að dreifa því í aftari hluta auga-
brúnanna. Næst skaltu nota restina
af púðrinu sem eftir er í burstanum
og vinna það inn í fremri hluta auga-
brúnanna. Þannig færðu mild-
ari útkomu. Brôw Densify Pow-
der-To-Cream frá Lancôme er
mjög hentug formúla sem er
eins konar púður sem verður að
kremi þegar formúlan er nudd-
uð inn í augabrúnirnar. Þéttari
og mótari augabrúnir koma
samstundis fram og
haldast þannig allan
daginn. Danska
snyrtivörumerkið
GOSH býður einnig
upp á mikið úrval af
góðum augabrúna-
vörum á hagstæðu
verði en helst ber að
nefna Brow Kit og
Brow Pomade. Hið
síðarnefnda er vatns-
held kremformúla
sem er auðveld í
notkun með góðum
bursta.
Festu augabrúnirnar
og fáðu aukna áferð
Að lokum er til-
valið að nota glært
eða litað augabrúna-
gel til að festa mótun
augabrúnanna í sessi
og fá náttúrulega
áferð á hárin. Sumir
spreyja einfaldlega
hárlakki í auga-
brúnagreiðuna en
aðrir fara aðeins nú-
tímalegri leið og
nota sérstakt
augabrúnagel.
Sourcils Styler
Brow Gel frá
Lancôme er frá-
bært augabrúna-
gel sem hannað
var í samstarfi við
förðunarfræðing
stjarnanna, hana
Lisu Eldridge, en
burstinn er ein-
stakur. Fyrr á
árinu kom svo ný
augabrúnavara á
markað frá Anas-
tasia Beverly Hills
sem nefnist Dip-
brow Gel en það er
eins konar blanda
af geli og kremi
með miklum lit í
vatnsheldri form-
úlu. Þessi
vara hentar
vel með
Brow Wiz
frá sama
merki.
Franska leikkonan Virginie Ledoyen
er með fallega mótaðar og nátt-
úrulegar augabrúnir.
Svona
færðu
mótaðri
augabrúnir
Þú ert ekki ein ef þú gerðist sek um að plokka aðeins
of mikið af augabrúnum þínum í byrjun aldarinnar.
Sem betur fer er ýmislegt í boði til að bæta skaðann.
Með réttu augabrúnavörurnar að vopni geta
augabrúnirnar virkað þéttar og mótaðar.
Lilja Ósk Sigurðardóttir | snyrtipenninn@gmail.com
Gosh Brow
Pomade
Hailey Bieber er
ekki með allt of
dökkar augabrúnir.
Þýska leikkonan Nina Hoss er með
fallega mótaðar augabrúnir og alls
ekki of dökkar. Þessi mynd var tekin
í vikunni þegar hún mætti á tísku-
sýningu Chanel.
Anstasia
Beverly Hills
Brow Wiz
Anastasia
Beverly
Hills
Brush #14
Lancôme Brôw
Densify Powder-
To-Cream
Gosh
Brow Kit
Lancôme
Sourcils
Styler
Brow Gel
Anastasia
Beverly
Hills Dip-
brow Gel
FÖSTUDAGUR 4. OKTÓBER 2019 MORGUNBLAÐIÐ 37
Notkun 1x - 2x á dag:
Eykur kollagenmagn húðarinnar
Eykur raka húðarinnar
Eykur ljóma húðarinnar
Gerir húðina bjartari og sléttari
Taramar vörunar færð þú íHagkaupKringlunni, Smáranum,Garðabæog
Akureyri, Íslandsapóteki, Taramar versluninni að Starmýri 2a og áwww.taramar.is
Samkvæmt virkniprófunumgerðumhjá
óháðri franskri rannsóknastofu
Serum
sem á sér enga hliðstæðu