Morgunblaðið - 04.10.2019, Page 37

Morgunblaðið - 04.10.2019, Page 37
Ekki nota of dökkan lit Þegar þú ætlar að finna réttu vör- urnar til að móta augabrúnirnar skaltu nota lit sem er í takt við þinn náttúrulega hárlit eða tóni ljósari. Of dökkar augabrúnir geta ýtt undir þreytumerki og fínar línur í andlit- inu og eru langt frá því að endur- spegla náttúrulegt útlit. Mótaðu útlínurnar með fínlegum augabrúnablýanti Greiddu augabrúnirnar upp og notaðu fínlegan auga- brúnablýant til að móta létt línuna undir augabrúnunum. Næst skaltu greiða auga- brúnirnar niður og finndu hæsta punkt þeirra og teikn- aðu lauslega meðfram honum með augabrúnablýantinum. Núna greiðirðu augabrúnirn- ar aftur upp og þú ættir að vera byrjuð að sjá mótun þeirra. Einn besti og vinsæl- asti augabrúnablýanturinn er Brow Wiz frá Anastasia Be- verly Hills en það er skylda að eiga einn slíkan ef þú vilt ná fram mótuðum augabrún- um. Líktu eftir náttúrulegum hárum með örfínum línum Notaðu fíngerða augabrúnablýantinn til að líkja eftir náttúrulegum hárum með því að teikna fínar línur í sömu átt og hárin vaxa. Fylltu upp í brúnirnar Notaðu skáskorinn bursta með smá púðri eða kremformúlu. Byrj- aðu að dreifa því í aftari hluta auga- brúnanna. Næst skaltu nota restina af púðrinu sem eftir er í burstanum og vinna það inn í fremri hluta auga- brúnanna. Þannig færðu mild- ari útkomu. Brôw Densify Pow- der-To-Cream frá Lancôme er mjög hentug formúla sem er eins konar púður sem verður að kremi þegar formúlan er nudd- uð inn í augabrúnirnar. Þéttari og mótari augabrúnir koma samstundis fram og haldast þannig allan daginn. Danska snyrtivörumerkið GOSH býður einnig upp á mikið úrval af góðum augabrúna- vörum á hagstæðu verði en helst ber að nefna Brow Kit og Brow Pomade. Hið síðarnefnda er vatns- held kremformúla sem er auðveld í notkun með góðum bursta. Festu augabrúnirnar og fáðu aukna áferð Að lokum er til- valið að nota glært eða litað augabrúna- gel til að festa mótun augabrúnanna í sessi og fá náttúrulega áferð á hárin. Sumir spreyja einfaldlega hárlakki í auga- brúnagreiðuna en aðrir fara aðeins nú- tímalegri leið og nota sérstakt augabrúnagel. Sourcils Styler Brow Gel frá Lancôme er frá- bært augabrúna- gel sem hannað var í samstarfi við förðunarfræðing stjarnanna, hana Lisu Eldridge, en burstinn er ein- stakur. Fyrr á árinu kom svo ný augabrúnavara á markað frá Anas- tasia Beverly Hills sem nefnist Dip- brow Gel en það er eins konar blanda af geli og kremi með miklum lit í vatnsheldri form- úlu. Þessi vara hentar vel með Brow Wiz frá sama merki. Franska leikkonan Virginie Ledoyen er með fallega mótaðar og nátt- úrulegar augabrúnir. Svona færðu mótaðri augabrúnir Þú ert ekki ein ef þú gerðist sek um að plokka aðeins of mikið af augabrúnum þínum í byrjun aldarinnar. Sem betur fer er ýmislegt í boði til að bæta skaðann. Með réttu augabrúnavörurnar að vopni geta augabrúnirnar virkað þéttar og mótaðar. Lilja Ósk Sigurðardóttir | snyrtipenninn@gmail.com Gosh Brow Pomade Hailey Bieber er ekki með allt of dökkar augabrúnir. Þýska leikkonan Nina Hoss er með fallega mótaðar augabrúnir og alls ekki of dökkar. Þessi mynd var tekin í vikunni þegar hún mætti á tísku- sýningu Chanel. Anstasia Beverly Hills Brow Wiz Anastasia Beverly Hills Brush #14 Lancôme Brôw Densify Powder- To-Cream Gosh Brow Kit Lancôme Sourcils Styler Brow Gel Anastasia Beverly Hills Dip- brow Gel FÖSTUDAGUR 4. OKTÓBER 2019 MORGUNBLAÐIÐ 37 Notkun 1x - 2x á dag: Eykur kollagenmagn húðarinnar Eykur raka húðarinnar Eykur ljóma húðarinnar Gerir húðina bjartari og sléttari Taramar vörunar færð þú íHagkaupKringlunni, Smáranum,Garðabæog Akureyri, Íslandsapóteki, Taramar versluninni að Starmýri 2a og áwww.taramar.is Samkvæmt virkniprófunumgerðumhjá óháðri franskri rannsóknastofu Serum sem á sér enga hliðstæðu

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.