Morgunblaðið - 04.10.2019, Page 10

Morgunblaðið - 04.10.2019, Page 10
Þessir lakkskór eru fyrir mjög uppteknar konur sem ryðjast áfram í lífinu. Þær þurfa grófan botn, háan og þykkan hæl til að vera stöð- ugar í öldugangi lífsins. Þessir skór fást í MAIA. Þessi stígvél ættu svo sannarlega að geta fært eigandann á vit nýrra ævintýra. Þau eru frá Saint Laurent og fást á Net-A-Porter.com. Þessir skór eru fyrir for- stjóra sem þurfa ekki að labba mikið á daginn heldur sitja við skrif- borð. Þeir fást í Skór.is. Eitt sinn þóttu lakkskór vera það fín- asta sem hægt var að setja á fæturna. Nú, mörgum árum síðar, eru lakkskór stór partur af hausttískunni. Lakkskór haustsins eru með háum hæl, litlum hæl, mjóum hæl og allt þar á milli. Þessir eru fyrir klassíska bóka- safnsfræðinginn sem fylgist með tískunni en vill ekki vera of áberandi. Sniðið á skónum er bæði fallegt við kjóla og buxur en þeir fást í GS Skóm. 5 framúr- skarandi lakkskór Vínrauðir lakkskór eru fyrir fágaðar konur sem þora að fara aðeins lengra. Þeir fást í skór.is. 10 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 4. OKTÓBER 2019 É g hef sem betur fer aldrei heyrt „resting bitch face“ notað en oft heyrt talað um „fýlusvip“ sem er stundum notað um þessar óhjákvæmilegu breytingar þegar við eld- umst. Sjálf hef ég kosið að kalla þetta „ómögulegheitasvip“ því sá sem er með þennan svip virðist vera eitthvað ómögu- legur á svipinn. Þetta er breyting þar sem munnvikin verða niðurlút, vísa niður á við. Þetta byrjar sem smá skuggi í munnvikinu en dýpkar smám saman og færist niður á höku, þar til myndast djúp felling með þykkildi á kjálkalínunni. Þegar breytingarnar eru ekki langt komnar er hægt að leiðrétta þær með fylliefnum (hyaluronic-sýru) og stundum hægt að seinka hugsanlegri löngun til þess að fara í andlitslyftingu,“ segir Þórdís. Hún segir að konan á myndinni sé ungleg miðað við aldur og því ekki mjög flókið tæknilega að gera hana enn ung- legri. „Á myndinni eftir meðferðina sést að munnvikin vísa nú „upp á við“, búið að setja fylliefni neðan við munnvikin, stækka varirnar og líklega botox til hliðar við augun.“ Eru svona aðgerðir algengar á Íslandi? „Þessi meðferð er mjög algeng og ég framkvæmi hana oft. Flestir koma reglulega á 6-12 mánaða fresti. Fylliefnin duga mislengi eftir tegundum (mismikil bindigeta á milli hyaluronic-sýrumólikúlanna). Algengur endingartími eru 12-14 mánuðir. Botox endist yfirleitt í 6 mánuði. Því oftar sem framkvæmd er botox-meðferð því lengur endist hún. Eftir nokkur skipti er þess vegna hægt að láta aðeins lengri tíma en 6 mánuði líða á milli meðferða,“ segir hún. Losna við fýlusvipinn með fyllingarefnum Á dögunum fjallaði New York Post um „resting bitch face“ eða fýlu- svip eins og Þórdís Kjartansdóttir lýtalæknir vill frekar kalla þennan svip. Þórdís segist oft gera svona aðgerðir og komi fólk til hennar á sex til tólf mánaða fresti til að losna við fýlusvipinn. Marta María | mm@mbl.is Morgunblaðið/Árni Sæberg Þórdís Kjartans- dóttir lýtalæknir á Dea Medica. Hér má sjá fyrir og eftir fylling- arefni. Myndin til hægri er eftir að búið var að sprauta fyllingarefnum í kringum munnsvæðið.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.