Morgunblaðið - 04.10.2019, Page 16
16 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 4. OKTÓBER 2019
fagaðila. Smám saman undu skrifin upp á sig og tóku aðra stefnu
en ég hafði séð fyrir. Þau urðu ekki síður um mig en mömmu
enda er aldrei hægt að fjalla um fólk án samhengis. Það var því
mjög stórt skref fyrir mig að ákveða að deila bókinni með hverj-
um sem lesa vildi. Annars vegar sjálfrar mín vegna, en líka vegna
skjólstæðinga minna. Sem sálgreinir ræðir maður aldrei sín per-
sónulegu mál eða setur sína eigin persónu í fókus. Það er ein
ástæða þess að ég var hikandi við að gefa bókina út og ég er að
sama skapi tvístígandi að koma í svona viðtal. Ég vil ekki þröngva
mér inn í líf skjólstæðinga minna með blaðaviðtali, þeir eiga að
geta lesið blaðið sitt í friði án þess að ég sé mætt við morgunverð-
arborðið með mína sögu. Þeim eins og öðrum er frjálst að lesa
bókina, en það þarf að vera þeirra val.“
Að mati Sæunnar eigum við öll margbrotna barnæsku og eng-
inn á einungis góða reynslu eða slæma. Hún lýsir mömmu sinni
sem óstýrilátri, en margt sem hún gerði þegar Sæunn var að
alast upp þykir ekki tiltökumál í dag.
„Þegar ég var að alast upp voru aðrir tímar en við þekkjum
núna. Sem lítið dæmi má nefna að þegar ég var að komast á ung-
lingsár fóru flestar konur á mömmu aldri vikulega í hárlagningu
en hún var með stuttan drengjakoll, alltaf berfætt í skónum og
með öðruvísi fatasmekk og lífsviðhorf en almennt þekktist. Þetta
vakti athygli og umtal. Hún hafði búið erlendis og ferðast víða sem
gerði það að verkum að hún var frjálslyndari og með öðruvísi við-
horf en almennt voru gild á þessum tíma. Hún var líka uppreisn-
argjörn og lét ekki segja sér fyrir verkum. Þetta eru dæmi um litlu
hlutina en aðrir voru stærri og alvarlegri, eins og að hún glímdi við
alkóhólisma sem hafði mikil áhrif á hana og fjölskylduna.“
Missti föður sinn þegar hún var ung að aldri
Sæunn átti eldri bróðir sem var sammæðra henni en ólst að
stórum hluta upp hjá ömmu þeirra og afa. Hún á einnig þrjár
systur. Allar misstu þær föður sinn ungar að aldri, sem hún segir
að hafi haft mikil áhrif á fjölskyldulífið.
Hvaða áhrif hefur það fyrir barn að alast upp á heimili þar sem
foreldri/foreldrar glíma við fíkn?
„Börn eru viðkvæm og háð og þess vegna verður líf þeirra flók-
ið og ófyrirsjáanlegt þegar foreldrar þeirra eru ekki áreiðanlegir.
Í mínu tilviki kom drykkja mömmu í kjölfar andláts pabba en
hvort tveggja olli mér miklu óöryggi. Ég átti erfitt með að treysta
á mömmu því ég gat ekki gengið að því sem vísum hlut að hún
væri í lagi. Mér fannst ég oft ekki skipta hana máli þegar hún tók
áfengi og vímu fram fyrir mig og mínar þarfir. Ég brást við eins
og algengt er með börn, með því að reyna að stjórna hlutum sem
ég gat ekki stjórnað, lesa í aðstæður, verða „góð“ og taka of mikla
ábyrgð.“
Sæunn segir mikilvægt fyrir alla að skoða barnæskuna sína.
Erfið reynsla í æsku getur haft áhrif
„Við höfum öll tilhneigingu til að fegra barnæskuna okkar,
annars vegar til að forðast sársauka barnsins sem við vorum en
hins vegar hefur það áhrif á sjálfsmyndina að standa í þeirri trú
að maður hafi átt góða foreldra og hamingjusama barnæsku. En
það er sama hversu góðir foreldrarnir voru, það kemst enginn
sársaukalaust frá barnæskunni. Það þarf ekki að vera vegna þess
að foreldrarnir hafi brugðist heldur er svo mikið valdamisvægi á
milli foreldris og barns. Börn geta ekki lifað án foreldra og þau
eiga allt undir þeim. Sama hversu vænt foreldrum þykir um
börnin sín þá geta þeir lifað án þeirra. Þeir þurfa að fórna mjög
miklu fyrir þau en eru misjafnlega færir eða tilbúnir til þess.
Ekkert foreldri er bara gott eða slæmt. Foreldrar eru mann-
eskjur með misgóða reynslu sem hefur mótað þá. Það er m.a.
þess vegna sem ég ákvað að birta mína sögu. Mamma mín var
sannarlega erfið en hún var miklu meira en það. Hún var líka ást-
rík, hlý og mjög skemmtileg. Markmið mitt er ekki að stilla mér
upp sem fyrirmynd fyrir aðra í úrvinnslu tilfinninga, en ég yrði
ánægð ef bókin yrði hvatning fyrir einhverja til að skoða sína eig-
in barnæsku betur. Þar liggja oft rætur vanlíðanar og tómleika
enda hafa rannsóknir sýnt að stærsti áhættuþáttur fyrir heilsu-
bresti og vanlíðan á fullorðinsárum er erfið reynsla í æsku. Hún
er ekki alltaf sýnileg, vanræksla er til dæmis oft mjög ósýnileg.“
Sæunn segir mikilvægt að börn séu ekki skömmuð eða smánuð
fyrir tilfinningar sínar.
„Börn þurfa að geta treyst því að þau séu tekin alvarlega og
þeim mætt af virðingu og áhuga þegar þau leita til fullorðinna.“
Hugsi yfir skilgreiningum samfélagsins
Hvað með fordóma í samfélaginu? Gerum við lítið úr fólki með
því að hópa það niður í hólf?
„Ég er mjög hugsi yfir öllum þeim skilgreiningum sem við er-
um búin að búa til yfir vanlíðan barna ekki síður en fullorðinna og
erum stöðugt að bæta við. Ég skil þægindin sem í því felast en
með því að einblína á hegðun finnst mér við oft smætta vandann
og missa sjónar á mikilvægum orsakaþáttum. Við þurfum til
dæmis alltaf að skoða vanda barna í samhengi við umhverfi
þeirra, hvort sem er á heimili, í skóla eða öðru félagslegu sam-
hengi. Burtséð frá greiningum þá eru engir tveir einstaklingar
eins og engar aðstæður þær sömu. Í stað þess að setja á fólk
merkimiða þarf að skoða vel aðstæður og sögu hvers og eins. Það
er jú tímafrekt en fólk er í eðli sínu flókið. Það getur reynst mjög
dýrkeypt að horfa bara á yfirborðið.“
Áfengisdrykkja eyðileggjandi bjargráð
Sæunn segir það gang lífsins að takast á við ýmiss konar
vandamál en það verður töluvert viðráðanlegra ef fólk er læst á
tilfinningar sínar.
„Ólíkar tilfinningar s.s. reiði, öfund, eða depurð kalla á ólík við-
brögð. Ef veruleiki okkar í barn-
æsku var sá að ekki hafi verið
hlustað á okkur og okkur ekki
hjálpað við að takast á við vanlíðan
eigum við erfiðara með að bregðast
við henni á fullorðinsaldri. Ef við
greinum ekki á milli ólíkra tilfinn-
inga eykst hættan á að við grípum
til óviðeigandi og eyðileggjandi
bjargráða. Áfengisdrykkja getur
verið dæmi um slíkt.“
Sæunn hefur hógværar hug-
myndir um áhrif bókar sinnar.
Hún hugsar sér ekki heimsyfirráð
eða byltingu í kjölfar útkomu
hennar, nema síður sé.
„Ég er fyrst og fremst að segja
sögu sem mér finnst áhugaverð og
svo á eftir að koma í ljós hvort les-
endur séu sammála því. Ég held
ekki að bók geti breytt fólki eða heilað það, en bækur geta sann-
arlega hreyft við tilfinningum og vakið okkur til umhugsunar. Mér
hafa lengi verið hugleikin tilfinningatengsl barna og foreldra og
hef áður skrifað um mótunaráhrif barnæskunnar. En hér set ég
það efni í persónulegt samhengi. Hvernig mamma mótaði mig og
hvernig hún var mótuð af sínum foreldrum. Mig langar að vekja
athygli á flóknustu ástarsamböndum sem til eru, sem eru tengslin
á milli foreldris og barns, og þau eru aldrei bara góð eða bara
slæm. Ég átti góða mömmu en ég átti líka mjög erfiða mömmu og
tilfinningar mínar til hennar spönnuðu allt litrófið.“
Stundum getur verið erfitt að hlusta á barnið
Hvað þýðir það fyrir þig að setja barn í fyrsta sæti?
„Það mikilvægasta sem við gefum börnum er tími og athygli.
Það þarf að hlusta á börn, leyfa þeim að tjá sig og reyna að setja
líðan þeirra í samhengi. Við megum aldrei gera lítið úr orðum
þeirra, jafnvel þó að okkur langi ekki að heyra það sem þau hafa
að segja. Foreldri sem til dæmis hefur upplifað höfnun getur liðið
of illa þegar barni þess er hafnað og þá reynir það kannski að
dreifa athyglinni frá vanlíðan þess. En frekar en að reyna að
hressa barnið við eða fá
það til að hugsa um eitt-
hvað annað er svo mik-
ilvægt að viðurkenna líð-
an þess. Börn eiga mun
auðveldara með að sleppa
vanlíðan og snúa sér að
öðru þegar þau hafa fund-
ið skilning og viðurkenn-
ingu, hvort sem þau eru
vikugömul eða unglingar.
Með því móti læra þau að
þola og þekkja erfiðar til-
finningar og geta til
dæmis greint á milli þess
hvenær þau eru einmana,
sár, svöng eða reið svo
dæmi séu tekin. Slíkt við-
mót fullorðinna dregur úr
líkum á að tilfinningar
barnsins verði eins og grár „massi“ innan í því sem það hvorki
skilur né kann að takast á við en reynir þess í stað að eyða t.d.
með því að borða eða breyta líðan sinni með skaðlegri aðferðum
þegar það eldist.“
Sæunn segir okkur mannfólkið sífellt vera að spegla okkur
hvert í öðru.
„Við speglum okkur með því að segja hvert öðru sögur og
þannig getum við aukið víðsýni og skilning okkar á milli. Vonandi
verða einhverjir forvitnari um sína eigin fortíð þegar þeir lesa
mína sögu. Áhugasamari um sína eigin fjölskyldusögu. Saga
hvers okkar er margbrotnari en blasir við í fyrstu.“
Hún segir algengt að fólk muni lítið úr eigin æsku og telji hana
óáhugaverða.
„Mjög margir hafa sagt mér í fyrsta viðtali að ævi þeirra hafi
verið tíðindalítil. Að allt hafi verið slétt og fellt þegar þeir hafi upp
úr þurru orðið kvíðasjúklingar eða fíklar. Í mínum huga eru
svona frásagnir rannsóknarverkefni. Markmiðið er ekki að leita
sökudólga heldur skilnings. Hvaðan spretta hugmyndirnar, til-
finningarnar og hegðunin? Hvaða saga er þarna sem hefur ekki
verið færð í orð?“
Morgunblaðið/Árni Sæberg
„Sem lítið dæmi
má nefna að þegar
ég var að komast á
unglingsár fóru
flestar konur á
mömmu aldri viku-
lega í hárlagningu
en hún var með
stuttan drengjakoll,
alltaf berfætt í
skónum og með
öðruvísi fatasmekk
og lífsviðhorf en al-
mennt þekktist.“
Sæunn Kjartansdóttir hefur starfað
á geðdeildum Landspítala og frá
1992 hefur hún verið sjálfstætt
starfandi við einstaklingsmeðferð
og faghandleiðslu.