Morgunblaðið - 04.10.2019, Page 18
18 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 4. OKTÓBER 2019
U
ng hjón með tvö lítil börn leituðu til
Hönnu Stínu og vildu fá hlýlega og fal-
lega umgjörð utan um fjölskylduna.
„Verkefnið snerist um að hanna að-
alhæðina, sem samanstendur af and-
dyri, eldhúsi, stofu, borðstofu og ges-
tabaði. Allar innréttingar voru
upprunalegar og því kominn tími á and-
litslyftingu,“ segir Hanna Stína.
Hvað vildu húsráðendur kalla fram?
„Þau vildu nútímalega hönnun með praktík í huga og
betri nýtingu á eldhúsi og mögulega opnara flæði. Við opn-
uðum einn vegg til að auka rýmistilfinninguna,“ segir hún.
Hanna Stína segir að öll rými hafi haldið sínum upp-
runalega stað og því hafi tilfærslur í raun ekki verið mikl-
ar ef frátalinn er veggurinn sem var brotinn niður.
„Upprunalegur rimlaveggur var látinn halda sér við
stiga og hann fékk algjörlega nýtt líf með bláum lit.“
Hvaða efnivið notaðir þú í innréttingar?
„Það var lituð eik í hlýjum gráum lit ásamt lökkuðu mdf
með fræstum fúgum. Svo notuðum við smá marmara
ásamt grænum og bláum tónum. Það er örlítill retro-
fílingur í anda byggingarárs hússins en með nútímalegu
ívafi.
Ljósmyndir/Kári Sverrisson
Elskar
að auka
lífsgæði
fólks
Horft inn í borðstofu. Rimlarnir í
boðstofunni voru lakkaðir
dökkbláir en þeir eru upprunalegir
og vildi Hanna Stína halda þeim.
Innanhússarkitektinn Hanna Stína
Ólafsdóttir fékk það verkefni að um-
breyta raðhúsi í Reykjavík sem byggt
var 1979. Hún segist aldrei fá leið á
vinnunni þótt það sé oft mikið að gera.
Hennar markmið sé að auka lífsgæði
fólks með því að fegra heimili þess.
Marta María | mm@mbl.is
Baðherbergið er vel skipulagt
og skemmtilegt. Á veggnum eru
flísar með fiskibeinamunstri en
spegillinn er sérsmíðaður í Gler-
borg með lýsingu fyrir aftan.
Leðurbekkurinn í
eldhúsinu lífgar
upp á rýmið.
HÖNNUN
SMARTLAND
Sjá síðu 20