Morgunblaðið - 04.10.2019, Qupperneq 26
áfallinu sem ég hafði verið að lenda í á þessum tíma. Þá kom
upp áfallið frá því ég var fimmtán ára og hin þrjú svipuðu tilvik
sem ég átti nokkrum árum seinna. Ég gerði upp fæðingar-
þunglyndið sem ég upplifði í kjölfar fæðingar sonar míns og í
raun allt sem kom upp sem ég átti erfitt með að horfast í augu
við eða skilja.
Þetta var það erfiðasta sem ég hef gert, en jafnframt það
dýrmætasta.
Ég fékk verkfæri til að byrja að lifa því lífi sem mig langar
að lifa. Ég fékk hæfni og skilning á eigin tilfinningum og er
mjög varkár í dag varðandi hvaða orku ég dvel í og hvaða fólk
ég umgengst.“
Listin býr innra með mér
Theodóra segir að þegar komi að því að vera listræn sé það
ekki hennar val, heldur sé eins og hún hafi fæðst listræn og
þetta sé nokkuð sem finni sinn farveg í lífi hennar.
„Ég finn þessa sköpunarþörf eins og litlar nálar sem stinga
mig stöðugt að innan og þurfa að komast út. Eins fannst mér
svo frelsandi að geta menntað mig með því að búa til eitthvað í
höndunum. Þar sem flestir í kringum mig hafa menntað sig í
heilbrigðisvísindum fannst mér áhugavert að geta lært eitthvað
sem mér fannst skemmtilegt og skapandi. Ég uppgötvaði að
það mætti hafa gaman og læra á því sviði. En ég fékk þá tilfinn-
ingu þegar ég var búin að mennta mig tengt hárgreiðslunni að
það væri eitthvað við það fag sem væri heftandi fyrir mig. Mig
langaði að halda áfram að þróa mig sem hönnuð og fann þá
vöruhönnunarnámið hjá Listaháskólanum.
Það skrítnasta við hönnunarnámið er að það kenndi mér að
vera betri hárgreiðslukona. Að hár er efni, eins og ull og silki. Í
raun finnst mér hár eitt mikilvægasta efnið, ekki minna mikil-
vægt en efnin sem við göngum í eða skartgripirnir sem við not-
um. Þarna komst ég einnig að því hvað iðn- og háskólanám fer
vel saman.“
Tími kominn að kenna nýjar greiðslur
„Fyrstu hárbókina gerði ég árið 2012 og ber nafnið „Hárið“.
Sú bók fékk betri viðbrögð en ég hefði getað órað fyrir og er ég
óendanlega þakklát fyrir það. Í kjölfar hennar hófst skemmti-
legt hárbókaævintýri en ég fór að vinna og gera bækur fyrir
Disney og HH Simonsen sem ég er svo stolt af. Árið 2013 gerði
ég einnig barnahárbókina „Lokkar“, sem fékk frábærar við-
tökur.
Fyrr á þessu ári ákvað ég að kíkja í fyrstu bókina mína,
Hárið, sem ég hef ekki gert í óralangan tíma, og ég sá á svörtu
og hvítu að það væri kominn tími á kenna nýjar og ferskar
greiðslur.
Í nýju hárbókinni er að finna 58 mismunandi gerðir af
greiðslum; fléttum, töglum, hversdagsgreiðslum, letidags-
greiðslum, brúðkaupsgreiðslum, fermingargreiðslum og fínum
uppgreiðslum fyrir alla aldurshópa. Einnig skrifa ég um hár-
umhirðu, hárþvott og hárnæringar, undirbúning hársins fyrir
greiðslur og ýmislegt fleira sem viðkemur hári og kemur að
góðu gagni.
Ekki skemmir fyrir að einn flottasti ljósmyndari landsins að
mínu mati, Saga Sig, tók allar myndirnar fyrir bókina og hönn-
uðurinn Rakel Tómasar setti hana upp. Svo sá Sara Dögg, ann-
ar eigenda Reykjavík Makeup School, um förðunina og Berg-
lind Veigarsdóttir um stíliseringu.“
Hárgreiðslur þurfa ekki að vera flóknar
Theodóra er á því að við konur miklum stundum fyrir okkur
orðið hárgreiðsla.
„Að greiða á sér hárið eða setja það upp þarf ekki að vera
flókið með réttu upplýsingunum og tólunum. Það er aðalástæða
þess að ég hef gert hárbækurnar mínar. Ég hef einfaldað ann-
ars flóknar greiðslur og gert þær aðgengilegar fólki með bæði
fima fingur og tíu þumalfingur.
Þegar ég hitti fólk horfi ég vanalega í augu þess og síðan á
hárið. Ég held að þetta eigi við um flesta. Hárið er svo stór
hluti af sjálfsvirðingu okkar og getur haft stór og mikil áhrif á
andlega líðan okkar. Hárið getur verið okkar stærsti skart-
gripur. Ég hef trú á því að fólk finni sjálft sig í gegnum hárið.
Eins trúi ég því að hárið tengist tilfinningum okkar. Sem
dæmi: Ef þú átt æðislegan hárdag áttu oftar en ekki æðislegan
dag.“
Theodóra er mikill frumkvöðull í
eðli sínu og er einnig að þróa nýja tegund af hárvörum sem
hún hyggst framleiða á Íslandi.
„Ef allt gengur samkvæmt áætlun kemur afrakstur þeirrar
þróunar í ljós eftir áramótin. Ég vil þróa íslenska vörur fyrir
Íslendinga því mér finnst mikilvægt að við minnkum sóun og
hugsum um umhverfið í þeirri grein sem ég starfa í líkt og í
öðrum greinum. Það er ótrúleg mengun fólgin í því að færa
hárvörur í stórum skipförmum til landsins.“
Lítur kæruleysið jákvæðum augum
Hvaðan kemur þetta hugrekki hjá þér, ertu aldrei hrædd?
„Í grunninn er ég mjög óörugg týpa, en ég bý yfir ákveðnu
kæruleysi sem ég lít á sem jákvæðan hlut. Hér áður átti ég til
að líta á kæruleysið mitt sem neikvæðan hlut. Ég hugsa með
mér að ef aðrir geta gert ákveðna hluti þá get ég það líka. Ég
held að eini munurinn á milli þeirra sem hugsa hlutina og
þeirra sem hugsa og gera hlutina er að við sem gerum þorum
að prófa okkur áfram og jafnvel að gera mistök. Ég treysti ver-
öldinni fyrir mér og hef ákveðið að vera í ferli og læra stöðugt
af lífinu. Sumt af því sem ég hef gert hefur heppnast og gengið
vel en annað hefur ekki gengið eftir og þá hef ég fengið tæki-
færi til að læra af því.“
Kann illa að meta baktal
Hvernig finnst þér viðtökurnar hafa verið?
„Ég hef oftast fengið mjög jákvæð viðbrögð við öllu því
sem ég skapa, sem er ómetanlegt. Hrós er nokkuð sem við Ís-
lendingar þurfum að læra og færa meira inn í okkar daglega
líf. Ég reyni að hrósa eins mikið og ég get, konunni í búðinni
eða hugarfari sem ég dáist að. En ég hef alveg lent í mótlæti
líka. Það er áhugavert að tala um gagnrýni yfir höfuð því hún
er svo nauðsynleg. Ég er ekki hrædd við að fá gagnrýni á það
sem ég geri og veit að gagnrýni þýðir að rýna til gagns. Það
er, að segja sína skoðun á hlutunum með virðingu og vinsemd
og það er í lagi að vera ósammála. Þegar ég fæ gagnrýni
skoða ég hvaðan hún kemur áður en ég tek mark á henni.
Kemur hún frá góðum eða vondum stað? Ég hef mikla óbeit á
baktali og ég tel mikið hugrekki í að segja fólki sannleikann,
hver sem hann er.“
Hefur þú hug á að opna þína eigin stofu?
„Ég hef stóran hluta ævinnar verið frumkvöðull. Sem dæmi
fór ég í frumkvöðlaverkefni með vinkonu minni sem gekk ekki
upp. Ég var lengi að jafna mig eftir það. Ég þurfti að endur-
hugsa líf mitt eftir þá reynslu og ákvað að fara að starfa hjá
Wow air sem flugfreyja tímabundið. Þar uppgötvaði ég hversu
dásamlegt er að hafa fasta vinnu, og eins konar handrit að því
sem maður ætti að framkvæma daglega. Að fá föst mánaðar-
laun og læra að vinna fyrir aðra en sjálfa mig. Það er ákveðið
frelsi fólgið í því að vinna fyrir aðra og vera síðan með önnur
sjálfstæð verkefni meðfram því.“
Konur ættu að standa með sér
Theodóra segir að þegar Wow air hafi hætt starfsemi sinni
hafi hana langað að starfa lengur fyrir fyrirtækið, en hún hafi
tekið því sem skilaboð að nú væri kominn tími á annað í lífi
hennar.
Þú gefst aldrei upp eða hvað?
„Nei, það er ekki í boði. Það gerir mann sterkan að fá tæki-
færi að læra í lífinu. Þá lærir maður einnig á tilfinningar og
innsæið sitt. Innsæið er svo vanmetið að mínu mati. Innsæið er
eitt af sterkustu verkfærum okkar. Innsæið hjálpar mér einnig
að skilja aðra í kring um mig. Ég hef svo endalausan áhuga á
fólki og hef öðlast hæfni í samskiptum við fólk með því að vera
opin og berskjölduð sjálf. Ég grínast þó stundum með það að
taugakerfið mitt liggi utan á mér því ef ég er sem dæmi ham-
ingjusöm, þá segi ég það og get ekki með nokkru móti falið það.
Sömuleiðis ef ég er leið. En ég reyni þó að draga ekki aðra með
mér þegar það kemur fyrir. Ég passa upp á orkuna mína og
reyni að skipuleggja mig þannig yfir daginn að orkan mín end-
ist. Ég skoða hvar ég fæ orku og hvar ég gef orku.
Dæmi um það sem ég geri er að ég fer í ræktina og æfi
Crossfit. Það gefur mér orku að vera með barninu mínu og fjöl-
skyldu. Eins vökva ég mig og næri eftir bestu getu með því að
hugleiða og elda góðan mat. Ég reyni að hugsa eins vel um um-
hverfið mitt, húðina mína og hárið mitt og síðan finn ég góðar
og heilbrigðar leiðir til að gefa áfram það sem ég hef öðlast
með lífinu. Ég vona að líf mitt verði til þess að fleiri konur gefi
sér leyfi til að standa með sér.“
Theodóra er að þróa íslenska
hárvörulínu sem hún mun
framleiða hér á landi.
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Það þarf ekki að vera flókið að setja hárið upp á fallegan hátt.
„Ég vona að líf mitt verði til
þess að fleiri konur gefi sér
leyfi til að standa með sér.“
26 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 4. OKTÓBER 2019