Morgunblaðið - 04.10.2019, Page 28
Silkikennd áferð
Sensai Flawless Satin
Foundation SPF 20 er léttur
farði sem veitir húðinni miðl-
ungsþekju og frískandi raka-
gjöf ásamt náttúrulegum
ljóma. Formúlan inniheldur
silkipúður sem hefur mýkj-
andi áhrif á húðina og sólar-
vörn SPF 20 til að vernda
hana.
Púðuragnir sem
fullkomna húðina
Chanel Ultra Le Teint Vel-
vet SPF 15 er olíulaus farði
sem inniheldur Perfect Light
Control Complex en það eru
tvær gerðir af púðurögnum sem
draga úr ásýnd svitaholna og misfellna í húð-
inni. Farðinn veitir miðlungsþekju og flauels-
kennda áferð.
Rakagefandi og
náttúruleg innihaldsefni
Guerlain L’Essentiel
Natural Glow Founda-
tion SPF 20 inniheldur
97% náttúruleg inni-
haldsefni og veitir húð-
inni fallegan ljóma og
ferskleika sem endist í
allt að 16 klukkustundir.
Þekjan er létt til miðl-
ungs en auðvelt er að
byggja hana upp. Form-
úlan býr sömuleiðis yfir
húðbætandi eiginleikum,
leyfir húðinni að anda,
veitir henni raka og
verndar gegn umhverf-
ismengun.
Léttur en
langvarandi farði
Lancome Teint Idole
Ultra Wear Nude SPF 19
er mjög léttur farði sem
endist í allt að 24 klukku-
stundir á húðinni. Farðinn
veitir létta þekju sem er
náttúruleg og minnkar
ásýnd svitahola. Formúlan
er vatns- og svitaheld.
Farðinn sem ekki
þarf að púðra
Anastasia Beverly Hills Luminous
Foundation veitir húðinni fallegan og
náttúrulegan ljóma og situr hann vel
á húðinni svo ekki þarf að púðra yfir
hann. Formúlan veitir miðlungsþekju
og og hentar öllum húðgerðum.
Nærandi formúla
í stiftformi
Bare Minerals Complexion Rescue
Hydrating Foundation Stick SPF 25
byggist á nærandi innihaldsefnum á
borð við rauða þörunga og andoxunar-
efni. Stiftið er sérlega hentugt í töskuna
og auðvelt að bera það á sig en þú finnur
samstundis fyrir auknum
raka í húðinni.
Ferskur og
ljómandi farði
Yves Saint Laurent
Touche Éclat Le Teint
veitir húðinni einstakan
ljóma, miðlungs- til
mikla þekju sem þó kem-
ur náttúrulega út. Form-
úlan er hönnuð til að
vera mjög létt á húðinni
og segir YSL að þetta sé
eins og 8 klukkustunda
svefn í
farða-
formi.
Tæknilegur
farði með sólarvörn
Shiseido Synchro Skin Self-
Refreshing Foundation SPF 30 er
nýr farði frá japanska förðunar-
merkinu en formúlan býr yfir sér-
stakri ActiveForce-tækni sem
viðheldur ásýnd hans á húðinni í
allt að 24 klukkustundir. Farðinn
er olíulaus, þyngdarlaus, auðvelt
að blanda og veitir miðlungs-
þekju. Hann hentar öllum húð-
gerðum, er ilmefnalaus og veitir
húðinni vernd með SPF 30 sólar-
vörn.
AFP
Leggðu
grímuna
á hilluna
Þungur og þykkur farði er ekki til
þess fallinn að framkalla það
besta í húðinni. Miklar framfarir
hafa átt sér stað í þróun farða og
hefur aldrei verið jafnauðvelt að
finna farða við sitt hæfi. Nýjustu
farðarnir eru sérlega léttir, þunnir
en öflugir svo það er kominn tími
til að taka niður grímuna og
fagna formúlum sem ýta undir
náttúrulega fegurð okkar.
Lilja Ósk Sigurðardóttir
snyrtipenninn@gmail.com
Eva Longoria hugsar
vel um útlitið.
AFP
Andie MacDowell
leggur mikið upp
úr því að velja
réttan farða.
28 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 4. OKTÓBER 2019
Skipholti 29b • S. 551 4422
YFIRHÖFNIN FÆST Í LAXDAL
TRAUST Í 80 ÁR
Fylgdu okkur á facebook