Morgunblaðið - 04.10.2019, Page 29

Morgunblaðið - 04.10.2019, Page 29
FRELSI er orðið sem lýsir Yves Saint Laurent best. Monsieur Yves Saint Laurent, stofnandi Yves Saint Laurent- tískuhússins, talaði um að konur ættu að vera frjálsar og það væri lífsstíll hverrar og einnar að geta sagt nei þegar það ætti við. Hann sagði að konur ættu að hafa frelsi til að sýna sig í réttu ljósi. Það væri líka að lifa ástríðufullu lífi og að láta drauma sína rætast. Hann sagði að frelsi væri hugarástand og að konur ættu ekki að gera neinar málamiðlanir. Í dag er frelsi alveg jafnmikilvægt fyrir nútímakonuna. Frelsið er í forgrunni í nýjasta ilmi Yves Saint Laurent, en ilmurinn heitir Freedom, eða frelsi. Um er að ræða heillandi blómailm sem dansar á línunni milli kvenleika og karl- mennsku. Sem er algerlega í takt við nútímann. Dua Lipa er andlit nýja ilmsins frá YSL. Viltu vera frjáls eins og fuglinn? Yves Saint Laurent var mikill frum- kvöðull á sínu sviði. Hér er Yves Saint Laurent ásamt Betty Catroux og Loulou de la Falaise fyrir utan verslun hans í Lundúnum 1969. FÖSTUDAGUR 4. OKTÓBER 2019 MORGUNBLAÐIÐ 29 Einstakar húðvörur. Dr. Hauschka ÍslandSölustaðir: Hagkaup Kringlunni og Smáralind, flestar heilsuverslanir og valdar Lyfjubúðir. Lífrænu snyrtivörurnar frá Dr. Hauschka bjóða uppá náttúrulega húðumhirðu fyrir alla. Þekktar um allan heim fyrir fjölbreytileika, gæði og virkni. Í fararbroddi í yfir 50 ár. Sannkallaður kraftur úr náttúrunni.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.