Morgunblaðið - 04.10.2019, Page 33
FÖSTUDAGUR 4. OKTÓBER 2019 MORGUNBLAÐIÐ 33
Á
síðustu árum hafa konur sýnt innihaldsefnum
meiri og meiri áhuga og vilja vörur sem styrkja
og virða húðina. Fólk veit meira í dag en fyrir tíu
árum hvað virkar fyrir heilbrigði húðarinnar.
Húðin á fólki er lifandi vistkerfi með milljörðum gagn-
legra örvera sem kallast „skin microbiome“.
En hvers vegna skipta örverur húðina okkar svona
miklu máli? Þegar örverurnar eru í jafnvægi er húðin
betur í stakk búin til að verja sig og styrkja. Næ-
ringarefnin sem nýtast þessum örverum kallast „pre
and probiotics“. Nýja Advanced Génifique er með
sjö mismunandi „pre and probiotic“ sem sérstaklega
voru valin og umbreytt til að skila nauðsynlegum
efnum til húðarinnar og örveranna.
Génifique-serumið hentar öllum kynþáttum, öllum
aldri og öllum húðgerðum – þurri húð, blandaðri/
normal og feitri húð. Áferðin er létt og fersk og geng-
ur hratt inn í húðina. Serumið er mikilvægt upphafs-
skref í kremrútínu, bæði kvölds og morgna, og vinnur
vel með hvaða kremlínu sem er. Það er stútfullt af góð-
gerlum og hyaluronic-sýru sem bæta ástand húðar-
innar, hún endurheimtir ljóma, fínar línur minnka og
húðlitur og áferð húðar verða jafnari.
Penélope Cruz
og Kate Winslet
nota báðar þetta
kraftmikla serum.
Árið 2009 kom Advanced Génifique-serumið fyrst á
markað með byltingarkennda formúlu sem innihélt
góðgerla. Nú 10 árum seinna taka vísindin næsta
skref með nýjum lausnum fyrir heilbrigða húð.
Endurbætt
útgáfa af
seruminu
sem virkar