Morgunblaðið - 04.10.2019, Blaðsíða 39
FÖSTUDAGUR 4. OKTÓBER 2019 MORGUNBLAÐIÐ 39
Hvernig hugsar þú um heilsuna?
„Ég reyni að vera skynsöm í fæðuvali og hlusta á líkamann, eyða tíma úti í
náttúrunni og hreyfa mig reglulega. Eiga gæðastundir með vinum og fjöl-
skyldu og passa upp á svefninn, sem ég er farin að gera betur í seinni tíð,“
segir hún.
Gerir þú eitthvað sérstakt til að fara betur með þig?
„Ég hef reynt að tileinka mér einhvers konar meðalveg og forðast öfgar.
Njóta lífsins og hafa jákvæðni að leiðarljósi. Finna jafnvægi á milli vinnu og
einkalífs og hlæja oft og mikið. Meðvitaðar ákvarðanir í innkaupum og gæði
matvæla skipta auðvitað miklu máli því við erum jú það sem við borðum eins
og einhver sagði. Ég reyni að velja lífrænt þegar þess er kostur og forðast
mikið unna matvöru fyrir mig og mína.“
Stundar þú líkamsrækt?
„Ég æfi Crossfit hjá Crossfit Kötlu um það bil fjórum til sex sinnum í viku.“
Hvers vegna Crossfit?
„Ég er búin að æfa Crossfit í 2,5 ár og fyrir það var ég „bara“ að mæta í
ræktina, hóptíma og þessháttar. Crossfit er sjúklega fjölbreytt og skemmti-
leg hreyfing í æðislegum félagsskap.“
Hvað finnst þér skipta mestu máli
þegar heilsan er annars vegar?
„Mér finnst mikilvægast að halda andlegu heilsunni góðri því að þegar and-
lega heilsan er góð fylgja oft góðu venjurnar eins og hreyfing og mataræði
með. Fyrir andlegu heilsuna reyni ég að finna tíma til að sinna sjálfri mér og
mínum áhugamálum, hitta vini og hlæja mikið.“
Hvað ertu að borða á venjulegum degi?
„Það sem mig langar í en reyni samt að borða hreina fæðu.“
Er eitthvað sem þú borðar ekki?
„Drekk hvorki gosdrykki né ávaxtasafa.“
Hefur þú alltaf haft heilsuna í forgrunni?
„Nei, alls ekki. Með aldrinum hefur ég áttað mig betur á því að það er nauð-
synlegt að halda heilsunni í lagi.“
Tekur þú inn einhver vítamín og bætiefni?
„Ég hef lengi haft áhuga á heilsuvörum og ég hef eins og sennilega margir
aðrir farið að hugsa betur um meltinguna og þarmaflóruna enda er mikið
rætt um hana í dag. Ég held að eitthvað geti jafnvel verið til í því að hinir
ýmsu sjúkdómar geti átt upptök sín í meltingarvegi, jafnt andlegir sem
líkamlegir, ef ekki er allt eins og best verður á kosið þar. Ég vanda valið á
fæðubótaefnum sérstaklega vel og það sem ég tek inn að staðaldri í dag eru
Probi Mage mjólkursýrugerlar fyrir meltinguna og til að styrkja varnirnar.
Mér finnst þeir frábærir og gera mér mjög gott. Það er einu sinni þannig að
ef meltingin er í lagi hugsar maður ekkert um þessi mál en verður alveg
undirlagður ef eitthvað er í ólagi. Probi Mage sér til þess að ég þarf voða lítið
að velta þessum málum fyrir mér.“
Nú er kulnun mikið í umræðunni. Hefur þú
einhvern tímann fundið fyrir slíkum áhrifum?
„Nei.“
Oft er talað um að nútímakonur keyri sig út.
Hvað telur þú að konur geti gert betur til
þess að sleppa við það?
„Ég verð að nefna að það er mikilvægt að hlusta á líkamann og þekkja sín
mörk. Mér hefur skilist á umræðunni allri undanfarið, sem ég tel bæði mikil-
væga og þarfa, að þeir sem lenda í kulnun hafa gengið nærri sér í lengri tíma
og ekki áttað sig á ástandinu fyrr en um seinan. Það er allra góðra gjalda vert
að vilja standa sig vel og mæta kröfum samfélagsins en það má ekki gleymast
að við berum ábyrgð á okkur sjálfum og því er bæði mikilvægt að virða og
þekkja sín eigin mörk og ekki síður að setja mörk út á við. Kannski er það
ágæt æfing að segja „nei“ af og til.“
Gerir þú eitthvað sérstakt til að verða ekki goslaus?
„Ég hreyfi mig, alveg ótrúlegt hvað góð æfing getur dregið úr þreytu og
streitu.“
Fólk
þarf að
passa
sín mörk
Jódís Brynjarsdóttir, viðskiptastjóri Vistor,
hefur aldrei fundið fyrir kulnun og segist fá
mikla orku út úr því að hreyfa sig. Hún æfir
Crossfit fjórum til sex sinnum í viku og
reynir að borða lítið unninn mat.
Marta María | mm@mbl.is
Morgunblaðið/Eggert
Jódís Brynjarsdóttir tekur
inn vítamín og bætiefni og
hreyfir sig fjórum til sex
sinnum í viku.
Laugavegi 178 | 105 Reykjavík | Sími 551 3366 | Opið virka daga kl. 10-18, laugardaga kl.10-14
Misty
10% AF SÖLU
Á VÖLDUM
VÖRUM HJÁ
OKKUR
1.-15. OKTÓBER
RENNA TIL
KRABBAMEINS-
FÉLAGSINS