Morgunblaðið - 24.10.2019, Side 8

Morgunblaðið - 24.10.2019, Side 8
8 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 23. OKTÓBER 2019 VIÐSKIPTAMOGGINN FRAMÚRSKARANDI FYRIRTÆKI verkefnisins í Litháen og Eistlandi er svipað og hér. Það er gaman að sjá samhljóminn í þessum verkefnum, þau eru lík að mörgu leyti en svo taka þau talsvert mið af aðstæðum í hverju landi fyrir sig einnig.“ Fyrsta árið sem listinn var gefinn út, þ.e. fyr- ir rekstrarárin 2007-2009, voru aðeins 177 fyrirtæki sem komust á listann. Síðan þá hefur verkefnið undið hressilega upp á sig. „Þetta var allt smærra í sniðum. Þá leigðum við stórt fundarherbergi á Grand Hótel undir viðburðinn og það mættu um 50 manns. Nú í ár, líkt og síðustu ár, höfum við haldið hátíðina í Hörpu og um þúsund manns mætt á svæðið. Þá er öll umfjöllun um listann og fyrirtækin á hon- um auðvitað orðin mun meiri. Okkur finnst raunar að besta viðurkenningin á þessu verk- efni sé hversu mikilvægt fyrirtækin telja að vera á þessum lista. Það staðfestir að hann er mikils virði.“ Öflugt samstarf við miðla Árvakurs Að þessu sinni efnir Creditinfo til samstarfs við Morgunblaðið um umfjöllun um fyrirtækin sem reynast framúrskarandi. Er þetta í þriðja sinn sem það er gert og á dögunum undirritaði Brynja samstarfssamning við Harald Johann- essen, ritstjóra Morgunblaðsins og fram- kvæmdastjóra Árvakurs, um áframhaldandi samstarf fyrirtækjanna tveggja. Brynja segir að það hafi gefið góðan ávöxt. „Með samstarfinu við Morgunblaðið hefur verkefnið vaxið enn frekar. Það má segja að verkefnið þroskist ár frá ári og við leitum sífellt leiða til þess að efla það og festa betur í sessi. Með aðkomu miðla Árvakurs að umfjölluninni hefur dreifingin á sérblaðinu orðið enn meiri og þá tókum við í fyrra í notkun sérstakan vef sem hýstur er á mbl.is sem helgaður er þeim fyr- irtækjunum sem eru á listanum. Nú hefur þessi vefur verið uppfærður og þar er hægt að nálg- ast ítarlegar upplýsingar um fyrirtækin og verkefnið sem slíkt. Sú nálgun ásamt því að tryggja aðgengi að öðrum miðlum Árvakurs tryggir að verkefnið nær til allrar þjóðarinnar. Meira að segja viðburðurinn í Hörpu er í beinni útsendingu á mbl.is,“ segir Brynja. Nýsköpun og samfélagsábyrgð Síðustu ár hefur Creditinfo einnig veitt fyr- irtækjum sérstaka viðurkenningu fyrir ný- sköpun og samfélagsábyrgð. Brynja segir að það sé orðinn mikilvægur þáttur í tengslum við Framúrskarandi fyrirtæki. „Þetta eru mál sem eru okkur mjög hjart- fólgin og við teljum skipta miklu máli fyrir ís- lenskt samfélag og atvinnulíf. Við vildum nota þennan vettvang til þess að vekja athygli á mik- ilvægi þessara mála. Eins og staðan er í dag er erfitt að leggja með beinum hætti mat á sam- félagsábyrgð hvers og eins fyrirtækis og eins framlag þeirra til nýsköpunar. Þess vegna fór- um við þessa leið, þ.e. að kalla saman dómnefnd sem velur eitt fyrirtæki í hvorum flokki fyrir sig sem dómnefndin telur standa sig fram- úrskarandi vel.“ Dómnefndarstarfið er ekki aðeins á höndum Creditinfo heldur er það unnið í samstarfi við Festu, miðstöð um samfélagsábyrgð og Ice- landic Startups. „Það hefur verið mjög ánægjulegt að sjá hvernig dómnefndirnar hafa þróað mæli- kvarðana áfram við mat á fyrirtækjunum. Þau byggja í sífellt meiri mæli á gögnum og mæl- ingum sem er mjög góð þróun. Enn í dag er þetta ekki orðið þannig að við getum keyrt út lista sem mælir þessa hluti en kannski gerist það einhvern daginn,“ segir Brynja. Sérfræðingar Creditinfo eru búnir að liggja yfir ársreikningum íslenskra fyrirtækja allt frá því þeir tóku að berast um mitt árið. Brynja segir alltaf ákveðna eftirvæntingu að sjá hvað niðurstöður hvers árs bera með sér. Sumt sé mjög ánægjulegt að sjá en aðrar mælingar veki eðlilega spurningar. „Fjöldi fyrirtækja á listanum eykst aðeins milli ára. Það er afar ánægjulegt ekki síst í ljósi þess að margir töluðu um að árið 2018 hefði verið krefjandi í íslensku viðskiptalífi og þá sáum við einnig að fyrirtækjunum fækkaði ör- lítið milli áranna 2016 og 2017.“ Hún segir raunar að fyrir nokkrum árum hafi þær raddir heyrst að það væri ekki endi- lega góð þróun fyrir þetta verkefni að of mörg fyrirtæki kæmust á listann. Jafnvel yrði það ekki eins spennandi að komast á hann ef fyrir- tækin yrðu fleiri en 1.000. „Ég er ekki sammála þeirri nálgun. Við eig- um að fagna því þegar fyrirtækjunum fjölgar. Það er heilbrigðismerki fyrir íslenskt samfélag enda skilyrðin fyrir því að komast á listann mjög ströng og því aðeins öflug fyrirtæki sem komast á hann.“ Byggingariðnaður og ferðaþjónusta Meðal þess sem listinn leiðir í ljós nú í ár er að fyrirtækjum í byggingariðnaði og ferðaþjón- ustu fjölgar milli ára á honum. Einhver kann að reka upp stór augu við þau tíðindi en Brynja segir að fyrir því kunni að liggja ofureinfaldar ástæður. „Þetta eru geirar sem hafa verið í miklum vexti. Það kann að skýra þessa þróun að fyrir- tæki komast ekki á listann nema þau hafi upp- fyllt öll skilyrðin í þrjú ár hið minnsta. Eflaust hafa mörg fyrirtæki í þessum geirum þurft þann tíma til þess að sanna sig út frá þessum mælikvörðum og eru því fyrst núna að komast inn á listann.“ Á sama tíma og hægt er að fagna því að fyrir- tæki á þessum mörkuðum hafa sótt í sig veðrið eru aðrar tölur sem stinga nokkuð í augun að mati Brynju. „Það sem er virkilega leiðinlegt að sjá er að kynjahlutföllin eru ekki að skána. Ef við horf- um til stjórna framúrskarandi fyrirtækja þá er hlutfallið rétt rúm 24% og er búið að vera næst- um það sama öll árin frá því að við fórum að gefa út listann. Þá er þetta hlutfall ekki hærra hjá framúrskarandi fyrirtækjum en fyrir- tækjum almennt í landinu. Þá er afar leitt að sjá að framkvæmdastjórar í framúrskarandi fyrirtækjum eru aðeins í 12% tilvika konur meðan hlutfallið er um 24% í fyrirtækjum al- mennt. Þetta endurspeglar auðvitað bara stöð- una í íslenskum fyrirtækjum almennt og er óþolandi að skuli ekki vera að sigla í rétta átt þrátt fyrir alla þá umræðu og kynjakvóta sem eru í gangi.“ Á hverju ári koma einhver ný fyrirtæki inn á listann í fyrsta sinn sem þau eiga þess nokkurn kost, þ.e. þegar þau hafa náð þriggja ára starfs- tíma. Í ár eru þau fjögur talsins. Brynja segir það í raun ákveðið afrek að komast inn á listann svo skömmu eftir stofnun. Þá sé einnig ánægju- legt að sjá að í ár eru fimm fyrirtæki sem kom- ast inn á listann fjórum árum eftir að þau voru stofnuð og að það sé ekki lítið afrek heldur. Svo er það annar hópur fyrirtækja sem Brynju þykir vert að nefna. Það eru fyrirtækin sem hafa vermt sæti á listanum öll árin sem hann hefur verið gefinn út. „Það eru 69 fyrirtæki sem alltaf hafa verið á listanum. Það er ótrúlegur árangur miðað við að inn á listann hafa náð 1.536 fyrirtæki ein- hvern tíma á þessu tíu ára tímabili. Það sem einkennir þessi fyrirtæki, sem flest eru gam- algróin er að þau sigldu betur í gegnum hrunið en önnur.“ Snýst ekki um að græða sem mest Á listanum er alltaf einhver hreyfing milli ára og mörg fyrirtæki hafa dottið inn og út af honum í gegnum árin. „Þetta sjáum við m.a. í því að nú í ár eru það 20 fyrirtæki sem koma inn á listann en hafa ein- hvern tíma áður verið á honum. Það þarf að hafa fyrir því. Ef þau hafa dottið út þá hafa þau þurft að eiga framúrskarandi rekstrarár næstu þrjú ár á eftir til að endurheimta stöðu sína á listanum,“ segir Brynja en hún ítrekar að list- inn gangi ekki út á að hampa sérstaklega fyr- irtækjum sem græði mest. „Þetta snýst um að hafa jákvæða rekstrar- niðstöðu, fá einkunnina 1-3 í lánshæfismati hjá okkur, skila ársreikningi á réttum tíma, hafa skilað rekstrarhagnaði og jákvæðri árs- niðurstöðu þrjú ár í röð og hafa eignir yfir 100 milljónir króna árin 2018 og 2017 og 90 millj- ónir árið 2016. Þetta snýst því öðrum þræði um stöðugleika. Það geta margir náð hagnaði í eitt og eitt ár en að halda þessum mælikvörðum réttum megin við strikið yfir lengra tímabil er framúrskarandi í okkar huga.“ Spurð út í framþróun verkefnisins segir Brynja að ýmsar leiðir séu þekktar til að efla lista af þessu tagi. M.a. séu dæmi um að bankar hafi komið að samstarfi sem þessu þar sem sér- stök kjör bjóðist þeim aðilum sem komist inn á listann. Hún segir þó að sú nálgun henti ekki endilega hér enda leggi Creditinfo höfuð- áherslu á að vottunin sem í listanum felst sé hlutlaus. „Það er ekki hægt að kaupa sig inn á þennan lista með neinum hætti. Sumir halda að þetta snúist um það vegna þess að þau fyrirtæki sem vilja nýta sér vottunina greiða fyrir það ákveðið gjald. En öll fyrirtæki á Íslandi sem raunveru- lega uppfylla skilyrðin eru á þessum lista. Hitt snýst bara um það hvort vilji sé til þess að hampa þeirri staðreynd eða ekki,“ segir Brynja. Það hefur verið mikill handagangur í öskj- unni á vettvangi Creditinfo síðastliðnar vikur við að setja listann saman og Brynja segir að það liggi mörg handtök að baki. Tölvunarfræð- ingar, stærðfræðingar og viðskiptafræðingar vinna að því að koma listanum í endanlegt horf og hún segir að allt kapp sé lagt á að hann sé pottþéttur. „Þetta verður að vera 100% því annars er lít- ils virði að vera á lista af þessu tagi. Aðeins fyrirtæki sem raunverulega uppfylla skilyrðin mega komast inn á hann. Við höfum því miður séð í viðlíka verkefnum hér á landi að fyrirtæki hafa komist inn á úrvalslista fyrirtækja jafnvel þótt þau séu í raun gjaldþrota. Það er vont ef þannig er staðið að málum. Það vill ekkert öfl- ugt fyrirtæki vera á lista með öðrum fyrir- tækjum þar sem ekki stendur steinn yfir steini.“ Skiptir marga máli Brynja segir að ein skemmtilegasta birting- armynd verkefnisins sé sú þegar fyrirtækin hampi viðurkenningunni með frumlegum hætti. „Mér finnst alltaf jafn gaman að sjá viður- kenningarnar uppi á vegg hjá fyrirtækjunum. Einu sinni kom ég við á bensínstöð þar sem bú- ið var að hengja upp mynd af starfsfólkinu þar sem það hélt á viðurkenningunni. Það fannst mér lýsa stolti yfir því að hafa verið á listanum. Þá man ég eftir því eitt sinn þegar fyrirtækj- astjórnandi sem ég þekki lenti í því eitt árið að detta út af listanum. Honum fannst það ekki mikið mál í sjálfu sér þegar hann frétti af nið- urstöðunni og sagðist alveg vita sjálfur að fyrir- tækið væri í traustum rekstri. Skömmu síðar hitti ég hann og þá fór hann að grennslast fyrir um hvernig fyrirtækið gæti unnið sig inn á listann að nýju. Þá hafði starfsfólkið gert at- hugasemdir við að fyrirtækið hafi dottið út. Fólk spurði einfaldlega: hvað veldur því að við erum ekki lengur framúrskarandi?“ Creditinfo Creditinfo Í fyrra var því fagnað að 865 fyrirtæki fylltu listann yfir Framúrskarandi fyrirtæki. Nú í ár fjölgar þeim um 9 og eru þau 874. Flest urðu þau 875 árið 2017. Síðustu ár hefur viðburðurinn í kringum Fram- úrskarandi fyrir- tæki farið fram í Eldborg í Hörpu.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.