Morgunblaðið - 24.10.2019, Page 8
8 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 23. OKTÓBER 2019 VIÐSKIPTAMOGGINN FRAMÚRSKARANDI FYRIRTÆKI
verkefnisins í Litháen og Eistlandi er svipað og
hér. Það er gaman að sjá samhljóminn í þessum
verkefnum, þau eru lík að mörgu leyti en svo
taka þau talsvert mið af aðstæðum í hverju
landi fyrir sig einnig.“
Fyrsta árið sem listinn var gefinn út, þ.e. fyr-
ir rekstrarárin 2007-2009, voru aðeins 177
fyrirtæki sem komust á listann. Síðan þá hefur
verkefnið undið hressilega upp á sig.
„Þetta var allt smærra í sniðum. Þá leigðum
við stórt fundarherbergi á Grand Hótel undir
viðburðinn og það mættu um 50 manns. Nú í ár,
líkt og síðustu ár, höfum við haldið hátíðina í
Hörpu og um þúsund manns mætt á svæðið. Þá
er öll umfjöllun um listann og fyrirtækin á hon-
um auðvitað orðin mun meiri. Okkur finnst
raunar að besta viðurkenningin á þessu verk-
efni sé hversu mikilvægt fyrirtækin telja að
vera á þessum lista. Það staðfestir að hann er
mikils virði.“
Öflugt samstarf við miðla Árvakurs
Að þessu sinni efnir Creditinfo til samstarfs
við Morgunblaðið um umfjöllun um fyrirtækin
sem reynast framúrskarandi. Er þetta í þriðja
sinn sem það er gert og á dögunum undirritaði
Brynja samstarfssamning við Harald Johann-
essen, ritstjóra Morgunblaðsins og fram-
kvæmdastjóra Árvakurs, um áframhaldandi
samstarf fyrirtækjanna tveggja. Brynja segir
að það hafi gefið góðan ávöxt.
„Með samstarfinu við Morgunblaðið hefur
verkefnið vaxið enn frekar. Það má segja að
verkefnið þroskist ár frá ári og við leitum sífellt
leiða til þess að efla það og festa betur í sessi.
Með aðkomu miðla Árvakurs að umfjölluninni
hefur dreifingin á sérblaðinu orðið enn meiri og
þá tókum við í fyrra í notkun sérstakan vef sem
hýstur er á mbl.is sem helgaður er þeim fyr-
irtækjunum sem eru á listanum. Nú hefur þessi
vefur verið uppfærður og þar er hægt að nálg-
ast ítarlegar upplýsingar um fyrirtækin og
verkefnið sem slíkt. Sú nálgun ásamt því að
tryggja aðgengi að öðrum miðlum Árvakurs
tryggir að verkefnið nær til allrar þjóðarinnar.
Meira að segja viðburðurinn í Hörpu er í beinni
útsendingu á mbl.is,“ segir Brynja.
Nýsköpun og samfélagsábyrgð
Síðustu ár hefur Creditinfo einnig veitt fyr-
irtækjum sérstaka viðurkenningu fyrir ný-
sköpun og samfélagsábyrgð. Brynja segir að
það sé orðinn mikilvægur þáttur í tengslum við
Framúrskarandi fyrirtæki.
„Þetta eru mál sem eru okkur mjög hjart-
fólgin og við teljum skipta miklu máli fyrir ís-
lenskt samfélag og atvinnulíf. Við vildum nota
þennan vettvang til þess að vekja athygli á mik-
ilvægi þessara mála. Eins og staðan er í dag er
erfitt að leggja með beinum hætti mat á sam-
félagsábyrgð hvers og eins fyrirtækis og eins
framlag þeirra til nýsköpunar. Þess vegna fór-
um við þessa leið, þ.e. að kalla saman dómnefnd
sem velur eitt fyrirtæki í hvorum flokki fyrir
sig sem dómnefndin telur standa sig fram-
úrskarandi vel.“
Dómnefndarstarfið er ekki aðeins á höndum
Creditinfo heldur er það unnið í samstarfi við
Festu, miðstöð um samfélagsábyrgð og Ice-
landic Startups.
„Það hefur verið mjög ánægjulegt að sjá
hvernig dómnefndirnar hafa þróað mæli-
kvarðana áfram við mat á fyrirtækjunum. Þau
byggja í sífellt meiri mæli á gögnum og mæl-
ingum sem er mjög góð þróun. Enn í dag er
þetta ekki orðið þannig að við getum keyrt út
lista sem mælir þessa hluti en kannski gerist
það einhvern daginn,“ segir Brynja.
Sérfræðingar Creditinfo eru búnir að liggja
yfir ársreikningum íslenskra fyrirtækja allt frá
því þeir tóku að berast um mitt árið. Brynja
segir alltaf ákveðna eftirvæntingu að sjá hvað
niðurstöður hvers árs bera með sér. Sumt sé
mjög ánægjulegt að sjá en aðrar mælingar veki
eðlilega spurningar.
„Fjöldi fyrirtækja á listanum eykst aðeins
milli ára. Það er afar ánægjulegt ekki síst í ljósi
þess að margir töluðu um að árið 2018 hefði
verið krefjandi í íslensku viðskiptalífi og þá
sáum við einnig að fyrirtækjunum fækkaði ör-
lítið milli áranna 2016 og 2017.“
Hún segir raunar að fyrir nokkrum árum
hafi þær raddir heyrst að það væri ekki endi-
lega góð þróun fyrir þetta verkefni að of mörg
fyrirtæki kæmust á listann. Jafnvel yrði það
ekki eins spennandi að komast á hann ef fyrir-
tækin yrðu fleiri en 1.000.
„Ég er ekki sammála þeirri nálgun. Við eig-
um að fagna því þegar fyrirtækjunum fjölgar.
Það er heilbrigðismerki fyrir íslenskt samfélag
enda skilyrðin fyrir því að komast á listann
mjög ströng og því aðeins öflug fyrirtæki sem
komast á hann.“
Byggingariðnaður og ferðaþjónusta
Meðal þess sem listinn leiðir í ljós nú í ár er
að fyrirtækjum í byggingariðnaði og ferðaþjón-
ustu fjölgar milli ára á honum. Einhver kann að
reka upp stór augu við þau tíðindi en Brynja
segir að fyrir því kunni að liggja ofureinfaldar
ástæður.
„Þetta eru geirar sem hafa verið í miklum
vexti. Það kann að skýra þessa þróun að fyrir-
tæki komast ekki á listann nema þau hafi upp-
fyllt öll skilyrðin í þrjú ár hið minnsta. Eflaust
hafa mörg fyrirtæki í þessum geirum þurft
þann tíma til þess að sanna sig út frá þessum
mælikvörðum og eru því fyrst núna að komast
inn á listann.“
Á sama tíma og hægt er að fagna því að fyrir-
tæki á þessum mörkuðum hafa sótt í sig veðrið
eru aðrar tölur sem stinga nokkuð í augun að
mati Brynju.
„Það sem er virkilega leiðinlegt að sjá er að
kynjahlutföllin eru ekki að skána. Ef við horf-
um til stjórna framúrskarandi fyrirtækja þá er
hlutfallið rétt rúm 24% og er búið að vera næst-
um það sama öll árin frá því að við fórum að
gefa út listann. Þá er þetta hlutfall ekki hærra
hjá framúrskarandi fyrirtækjum en fyrir-
tækjum almennt í landinu. Þá er afar leitt að
sjá að framkvæmdastjórar í framúrskarandi
fyrirtækjum eru aðeins í 12% tilvika konur
meðan hlutfallið er um 24% í fyrirtækjum al-
mennt. Þetta endurspeglar auðvitað bara stöð-
una í íslenskum fyrirtækjum almennt og er
óþolandi að skuli ekki vera að sigla í rétta átt
þrátt fyrir alla þá umræðu og kynjakvóta sem
eru í gangi.“
Á hverju ári koma einhver ný fyrirtæki inn á
listann í fyrsta sinn sem þau eiga þess nokkurn
kost, þ.e. þegar þau hafa náð þriggja ára starfs-
tíma. Í ár eru þau fjögur talsins. Brynja segir
það í raun ákveðið afrek að komast inn á listann
svo skömmu eftir stofnun. Þá sé einnig ánægju-
legt að sjá að í ár eru fimm fyrirtæki sem kom-
ast inn á listann fjórum árum eftir að þau voru
stofnuð og að það sé ekki lítið afrek heldur.
Svo er það annar hópur fyrirtækja sem
Brynju þykir vert að nefna. Það eru fyrirtækin
sem hafa vermt sæti á listanum öll árin sem
hann hefur verið gefinn út.
„Það eru 69 fyrirtæki sem alltaf hafa verið á
listanum. Það er ótrúlegur árangur miðað við
að inn á listann hafa náð 1.536 fyrirtæki ein-
hvern tíma á þessu tíu ára tímabili. Það sem
einkennir þessi fyrirtæki, sem flest eru gam-
algróin er að þau sigldu betur í gegnum hrunið
en önnur.“
Snýst ekki um að græða sem mest
Á listanum er alltaf einhver hreyfing milli
ára og mörg fyrirtæki hafa dottið inn og út af
honum í gegnum árin.
„Þetta sjáum við m.a. í því að nú í ár eru það
20 fyrirtæki sem koma inn á listann en hafa ein-
hvern tíma áður verið á honum. Það þarf að
hafa fyrir því. Ef þau hafa dottið út þá hafa þau
þurft að eiga framúrskarandi rekstrarár næstu
þrjú ár á eftir til að endurheimta stöðu sína á
listanum,“ segir Brynja en hún ítrekar að list-
inn gangi ekki út á að hampa sérstaklega fyr-
irtækjum sem græði mest.
„Þetta snýst um að hafa jákvæða rekstrar-
niðstöðu, fá einkunnina 1-3 í lánshæfismati hjá
okkur, skila ársreikningi á réttum tíma, hafa
skilað rekstrarhagnaði og jákvæðri árs-
niðurstöðu þrjú ár í röð og hafa eignir yfir 100
milljónir króna árin 2018 og 2017 og 90 millj-
ónir árið 2016. Þetta snýst því öðrum þræði um
stöðugleika. Það geta margir náð hagnaði í eitt
og eitt ár en að halda þessum mælikvörðum
réttum megin við strikið yfir lengra tímabil er
framúrskarandi í okkar huga.“
Spurð út í framþróun verkefnisins segir
Brynja að ýmsar leiðir séu þekktar til að efla
lista af þessu tagi. M.a. séu dæmi um að bankar
hafi komið að samstarfi sem þessu þar sem sér-
stök kjör bjóðist þeim aðilum sem komist inn á
listann. Hún segir þó að sú nálgun henti ekki
endilega hér enda leggi Creditinfo höfuð-
áherslu á að vottunin sem í listanum felst sé
hlutlaus.
„Það er ekki hægt að kaupa sig inn á þennan
lista með neinum hætti. Sumir halda að þetta
snúist um það vegna þess að þau fyrirtæki sem
vilja nýta sér vottunina greiða fyrir það ákveðið
gjald. En öll fyrirtæki á Íslandi sem raunveru-
lega uppfylla skilyrðin eru á þessum lista. Hitt
snýst bara um það hvort vilji sé til þess að
hampa þeirri staðreynd eða ekki,“ segir
Brynja.
Það hefur verið mikill handagangur í öskj-
unni á vettvangi Creditinfo síðastliðnar vikur
við að setja listann saman og Brynja segir að
það liggi mörg handtök að baki. Tölvunarfræð-
ingar, stærðfræðingar og viðskiptafræðingar
vinna að því að koma listanum í endanlegt horf
og hún segir að allt kapp sé lagt á að hann sé
pottþéttur.
„Þetta verður að vera 100% því annars er lít-
ils virði að vera á lista af þessu tagi. Aðeins
fyrirtæki sem raunverulega uppfylla skilyrðin
mega komast inn á hann. Við höfum því miður
séð í viðlíka verkefnum hér á landi að fyrirtæki
hafa komist inn á úrvalslista fyrirtækja jafnvel
þótt þau séu í raun gjaldþrota. Það er vont ef
þannig er staðið að málum. Það vill ekkert öfl-
ugt fyrirtæki vera á lista með öðrum fyrir-
tækjum þar sem ekki stendur steinn yfir
steini.“
Skiptir marga máli
Brynja segir að ein skemmtilegasta birting-
armynd verkefnisins sé sú þegar fyrirtækin
hampi viðurkenningunni með frumlegum
hætti.
„Mér finnst alltaf jafn gaman að sjá viður-
kenningarnar uppi á vegg hjá fyrirtækjunum.
Einu sinni kom ég við á bensínstöð þar sem bú-
ið var að hengja upp mynd af starfsfólkinu þar
sem það hélt á viðurkenningunni. Það fannst
mér lýsa stolti yfir því að hafa verið á listanum.
Þá man ég eftir því eitt sinn þegar fyrirtækj-
astjórnandi sem ég þekki lenti í því eitt árið að
detta út af listanum. Honum fannst það ekki
mikið mál í sjálfu sér þegar hann frétti af nið-
urstöðunni og sagðist alveg vita sjálfur að fyrir-
tækið væri í traustum rekstri. Skömmu síðar
hitti ég hann og þá fór hann að grennslast fyrir
um hvernig fyrirtækið gæti unnið sig inn á
listann að nýju. Þá hafði starfsfólkið gert at-
hugasemdir við að fyrirtækið hafi dottið út.
Fólk spurði einfaldlega: hvað veldur því að við
erum ekki lengur framúrskarandi?“
Creditinfo
Creditinfo
Í fyrra var því fagnað að 865
fyrirtæki fylltu listann yfir
Framúrskarandi fyrirtæki.
Nú í ár fjölgar þeim um 9 og
eru þau 874. Flest urðu þau
875 árið 2017.
Síðustu ár hefur
viðburðurinn í
kringum Fram-
úrskarandi fyrir-
tæki farið fram í
Eldborg í Hörpu.