Morgunblaðið - 24.10.2019, Síða 16
16 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 23. OKTÓBER 2019 VIÐSKIPTAMOGGINN FRAMÚRSKARANDI FYRIRTÆKI
Þ
að að Krónan sé á meðal Framúr-
skarandi fyrirtækja Creditinfo er til
marks um þá frábæru vinnu sem
starfsfólk verslunarkeðjunnar legg-
ur á sig á degi hverjum að sögn Grétu Maríu
Grétarsdóttur, framkvæmdastjóra Krón-
unnar. Krónan hefur upp á síðkastið komist í
kastljós fjölmiðla reglulega fyrir umhverfis-
stefnu fyrirtækisins. Það hlaut Kuðunginn,
umhverfisviðurkenningu umhverfis- og auð-
lindaráðuneytisins fyrr á árinu, og á dögunum,
Umhverfisverðlaun atvinnulífsins fyrir fram-
tak ársins fyrir að hafa jákvæð áhrif á um-
hverfi sitt og sýna frumkvæði í nýjum verk-
efnum. Hér er um að ræða framtak á borð við
„Síðasta séns“ þar sem hægt er að kaupa
ávexti og grænmeti á lægra verði þegar vörur
nálgast síðasta söludag. Þá er einnig hægt að
nýta sér sérstakt afpökkunarborð í verslunum
Krónunnar þar sem viðskiptavinir geta losað
sig við óþarfa umbúðir sem Krónan sér um að
flokka og setja í endurvinnslu.
Krónan markar sér sérstöðu í um-
hverfis- og lýðheilsumálum
Að sögn Grétu er vitanlega mikil samkeppni
á matvörumarkaði en Krónan hefur markað
sér sérstöðu á markaðnum í umhverfis- og lýð-
heilsumálum sem viðskiptavinir taka vel í að
sögn Grétu.
„Þú sérð það þegar þú gengur inn í Krónu-
búðir að hollustan fær gott pláss hjá okkur. Í
umræðunni núna um sykurskatt þá gleymist
það oft að það þarf ekkert alltaf aðkomu rík-
isins til þess að breyta einhverjum neysluvenj-
um. Það er líka á ábyrgð okkar í Krónunni að
stilla búðinni upp þannig að hollustan fái besta
plássið. Við höfum alveg séð að það hefur áhrif
á neysluna,“ segir Gréta en ávextir og græn-
meti mætir viðskiptavinum Krónunnar t.d.
fyrst í versluninni, og þá er ekkert sælgæti
lengur að fá á afgreiðslukössum. Eitthvað sem
foreldrar þreyttra barna kunna vel að meta að
sögn Grétu.
„Öll fyrirtæki þurfa að sýna frumkvæði. Við
eigum ekki alltaf að bíða eftir því að eitthvað
sé ákveðið fyrir okkur. Með því að sýna frum-
kvæði höfum við áhrif á samfélagið og áhrif á
þær ákvarðanir sem koma í kjölfarið. Það sést
á tölunum okkar að viðskiptavinirnir eru
ánægðir með það sem við erum að gera,“ segir
Gréta.
Hún segir hlutina gerast hratt á matvöru-
markaðnum og því þurfi fyrirtæki að vera opin
fyrir breytingum.
„Og við í Krónunni erum rosalega opin fyrir
breytingum. Það er ekki í öllum fyrirtækjum
þar sem starfsmenn og stjórnendur eru á
hverjum degi að leita að leiðum til þess þróast
og gera breytingar. Ef þú þróast ekki þá á
endanum deyrðu. Við ætlum okkur að þróast
áfram og vera í fararbroddi þegar kemur að
þessum breytingum í samfélaginu,“ segir
Gréta.
Hafa áhrif til lækkunar
Spurð um rekstrarumhverfið almennt segir
Gréta að samkeppnin á matvörumarkaði sé
gríðarlega mikil.
„Fyrst og fremst erum við að keppa í verði.
Við viljum virka samkeppni á markaði og trú-
um að við höfum áhrif til lækkunar á verðlag á
matvöru,“ segir Gréta og heldur áfram:
„Það er mikil barátta á þessum markaði.
Gengi krónunnar (gjaldmiðilsins) hefur einnig
mikil áhrif á okkur því við getum ekki velt öll-
um sveiflum út í verðlagið. Við sjáum það núna
að margir íslenskir framleiðendur hafa hækk-
að verð en við reynum alltaf að halda okkar
verðlagi eins lengi og við getum en við getum
ekki hagrætt endalaust í okkar rekstri. Launa-
hækkanir hafa líka áhrif og það hefur áhrif á
verð þegar svona mörg ár af launahækkunum
hafa verið,“ segir Gréta.
Að sögn Grétu felast ekki endilega miklir
hagræðingarmöguleikar í sjálfsafgreiðsluköss-
um sem hafa orðið sífellt algengari sjón í versl-
unum hér á landi. Ávallt sé að minnsta kosti
einn gamaldags beltakassi opinn auk þess sem
sjálfsafgreiðslan hefur alltaf einn starfsmann
verslunarinnar á vakt.
„Starfsfólki hefur ekki fækkað við það að
nota sjálfsafgreiðsluna. Við lítum frekar á
þetta sem aukna þjónustu við viðskiptavini og
nýtum tímann í annað svo að búðin sé í betra
standi fyrir viðskiptavini. Sjálfsafgreiðslan er
alltaf mönnuð með einum starfsmanni. Í minni
búðum þar sem við höfum oft verið með einn
starfsmann á kassa höfum við nú sjálfs-
afgreiðslukassa og starfsmann þar líka sem
dæmi,“ segir Gréta.
Hún segir sjálfsafgreiðsluna hafa reynst
versluninni gríðarlega vel.
„Við erum að sjá vel yfir helming afgreiðsl-
na fara í gegnum sjálfsafgreiðslu. Veltan er þó
töluvert minni þar sem stóru körfurnar fara
yfirleitt á beltakassana. En á sama tíma eru
margir sem segja við okkur að þeir hafi áttað
sig á því að eftir að sjálfsafgreiðslan varð boði
hafi þeir enga þolinmæði til þess bíða í röð
lengur,“ segir Gréta.
Með því að sýna frumkvæði
hefur Krónan áhrif á samfélagið
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
59. sæti
KRÓNAN
Stórt 59. sæti
Gréta María
Grétarsdóttir
Ekki þarf alltaf aðkomu ríkisins
til þess að breyta neysluvenj-
um, að sögn Grétu.
Krónan rekur í dag 20 verslanir, tvær Kr-verslanir, tvær Kjarvals-verslanir og eina Nóa-
túnsbúð. Að sögn Grétu leitar fyrirtækið nú að heppilegri staðsetningu á höfuðborgar-
svæðinu fyrir Kr-verslanir, sem oft eru kallaðar svokölluð „Krónubörn“, með svipuðum
innréttingum, með um 2.000 vörur á Krónuverði og aðrar vörur á stórmarkaðsverði og að-
lagaðar því svæði sem búðin er staðsett á en núna rekur Krónan Kr-búðir í Vík í Mýrdal og
í Þorlákshöfn.
„Við erum að skoða eina staðsetningu og ef allt gengur að óskum erum við að horfa á
að opna eina slíka á fyrri hluta næsta árs,“ segir Gréta. Krónan hefur sterka stöðu á
höfuðborgarsvæðinu en er einnig víða um land, m.a. í Reykjanesbæ, á Akranesi, Selfossi,
í Vestmannaeyjum og á Reyðarfirði en þó ekki á Akureyri, höfuðstað norðursins. Gréta
segir að stefnan sé að opna verslun þar.
„Við erum alltaf á leiðinni og eigum lóð á Akureyri á frábærum stað á móti Glerártorgi.
Við erum að vinna með skipulagsyfirvöldum og öðrum lóðarhöfum með það að komast af
stað. En það hefur tekið allt of langan tíma og við viljum sjá þetta hreyfast hraðar,“ segir
Gréta.
Vilja opna Kr-búð í borginni