Morgunblaðið - 24.10.2019, Page 24

Morgunblaðið - 24.10.2019, Page 24
24 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 23. OKTÓBER 2019 VIÐSKIPTAMOGGINN FRAMÚRSKARANDI FYRIRTÆKI Ú lfar Steindórsson, forstjóri Toyota á Íslandi, hefur heldur betur ástæðu til að vera ánægður með ár- angur fyrirtækisins. Eins og les- endur muna urðu miklar sviptingar í rekstri bílaumboðanna eftir bankahrun og árið 2011 keypti Úlfar, í félagi við Kristján Þorbergsson, 60% hlut í fyrirtækinu og tók þá strax við mik- ið endurskipulagningar- og uppbyggingarstarf sem borið hefur ávöxt á undanförnum árum. Skuldastaðan hefur batnað jafnt og þétt, reksturinn gengið vel, og Toyota núna í fyrsta skipti komið á lista Creditinfo yfir framúrskar- andi fyrirtæki. Fljótlega eftir kaupin ákváðu eigendur fé- lagsins að flytja rekstur Toyota í nýtt húsnæði, í Kauptúni í Garðabæ. „Við eignumst meiri- hluta í félaginu í júní 2011 og flytjum í júlí 2012, og var það svo sannarlega stór ákvörðun. En við höfðum mikla trú á þessu frábæra vöru- merki sem Toyota er, og væntum þess að markaðurinn myndi færast til betra horfs,“ segir Úlfar. Færri fermetrar og fleira starfsólk Húsnæði Toyota í Kauptúni virðist eins og sniðið fyrir reksturinn, en var þó upphaflega smíðað fyrir byggingavöruverslun Byko. Þar, eins og víða annars staðar, var ráðist í upp- stokkun í kjölfar bankahruns og reyndist húsið laust á hárréttum tíma. Var starfsemi Toyota og Lexus, sem áður hafði dreifst á ellefu bygg- ingar, loksins komin undir eitt þak. Ekki þurfti að fækka starfsfólki og raunar var ákveðið að bæta við starfsmannahópinn: „Með flutning- unum eignuðumst við stórt og hagkvæmt verkstæði með 42 lyftum, og sáum vaxtar- tækifæri í þjónustu við þá 55.000 bíla sem frá okkur sem eru á götunum,“ upplýsir Úlfar en þrátt fyrir að ekki skorti plássið í Kauptúni minnkaði húsakostur Toyota um 3.000 fer- metra með flutningunum. „Vitaskuld þurfti að aðlagast nýju húsi, passa vandlega upp á allan kostnað, og saxa á skuldirnar. Við náðum hag- stæðum samningum við eiganda byggingar- innar sem fól í sér afslátt fyrstu árin, en félag í okkar eigu kaupir síðan húsið árið 2017.“ Hægt og rólega rétti hagkerfið úr kútnum, hagur almennings vænkaðist og um leið jókst sala á bílum. Þá varð sprenging í komum ferðamanna með tilheyrandi aukningu í eftir- spurn eftir bílaleigubílum. „Það má segja að nánast allt hafi gengið upp eins og við gerðum ráð fyrir, nema að 2013 hægði ögn á taktinum. Á vormánuðum 2015 fór salan að glæðast á ný og hefur gengið mjög vel síðan þá. Árið 2017 stendur upp úr og hjálpaði það okkur mikið hve vel gekk það ár – það var eitt af þessum árum sem koma varla nema á tíu ára fresti þar sem allt vinnur með okkur. Umsvifin minnk- uðu árið 2018 en var samt ágætis rekstrarár.“ „Ekki fleiri leiðinlega bíla“ Hjálpaði líka til að japanski bílaframleiðand- inn hefur verið á mikilli siglingu og bara síð- ustu fimm árin að gerðar hafa verið vel heppn- aðar áherslubreytingar. Toyota var löngu búið að skapa sér það orðspor að smíða vandaða og áreiðanlega bíla, en þegar nýr forstjóri tók við árið 2009 vildi hann ganga skrefinu lengra. „Akio Toyoda, barnabarnabarn stofnanda fyrirtækisins gaf það út að án þess að slá nokk- uð af gæðunum þá myndi Toyota líka gera bíla sem væri gaman að horfa á og skemmtilegt að aka. „Ekki fleiri leiðinlega bíla,“ sagði hann,“ útskýrir Úlfar og skýtur því inn að það sé ágætis vitnisburður um ágæti þessarar stefnu að Bandalag íslenskra bílablaðamanna skyldi fyrr í mánuðinum velja Corollu og RAV4 sem bestu bílana í sínum flokkum. En hvað um orkuskiptin? Sölutölur benda til að íslenskir neytendur séu mjög áhugasamir um rafmagnsbíla og hafa ýmsir framleiðendur teflt fram spennandi valkostum fyrir þann kima markaðarins. Virðist eins og Toyota hafi ekki sinnt rafvæðingunni af sama kappi, en þess í stað lagt þeim mun meiri áherslu á orku- gjafa eins og vetni. Úlfar minnir blaðamann á að Toyota hafi verið leiðandi í þróun bíla með tvinn-drifkerfi (e. hybrid), og næsta víst að spennandi Toyota rafmagnsbíll komi á markað áður en langt um líður. „Toyota er á fleygiferð í þróun raf- magnsbíla, en það er ekki hefð fyrir því hjá þessum framleiðanda að vera mikið að segja frá því sem er í undirbúningi. Toyota kemur ekki á bílasýningar með bíla sem vonir standa til að komi á markað eftir þrjú ár, heldur svipta hulunni af nýjungum þegar þær eru til- búnar og væntanlegar á markað hvað úr hverju.“ Þá segir Úlfar að Toyota vilji standa vel að vígi á öllum vígstöðvum, og veðji ekki á einn orkugjafa umfram aðra. „Má heldur ekki gleyma að markaðurinn í löndum eins og Ís- landi, Noregi og Hollandi, þar sem sala á raf- magnsbílum er mest, er ólíkur mörkuðum ann- arra landa. Víða um heim er áhugi á rafmagnsbílum mjög takmarkaður og inn- viðum ábótavant. Fyrir svo utan að fjöldi landa framleiðir mest eða allt sitt rafmagn með því að brenna gas eða kol. Þá eru rafmagnsbílar, enn sem komið er, dýrari í framleiðslu en hefð- bundnir bensín- og dísilbílar og seljast ekki af ráði nema á þeim stöðum þar sem bíla- framleiðendur eða hið opinbera ýmist borga með þeim eða veita afslætti af gjöldum.“ Neytendur aðeins of varkárir Þó að salan gangi ágætlega þá myndu bíla- umboðin flest vilja sjá líflegri markað fyrir nýja bíla. Markaðurinn kólnaði töluvert í lok sumars 2018 og hefur verið nokkuð rólegur síðan þá. Var kólnunin, eftir mjög góða sölu 2017, rakin til óvissu á vinnumarkaði og marg- ir sem óttuðust að kjarasamningaviðræður myndu renna út í sandinn og verkföll lama hagkerfið. Þá var líka óvissa um stöðu WOW air, og talin hætta á samdrætti í ferðaþjónustu. Þegar allt kom til alls tókst að komast hjá meiriháttar röskunum á vinnumarkaði, og gjaldþrot lággjaldaflugfélagsins olli ekki svo miklum samdrætti í komum ferðamanna. Samt tók bílasalan ekki við sér. „Þar spilar inn í að bílaleigurnar höfðu bætt mjög vel í flotann hjá sér 2017 og 2018 og blasti það við að þær myndu draga úr kaupum á bílum árið 2019. En hvað hinn almenna neyt- anda snertir þá virðist fólk einfaldlega vera mjög varkárt og reyna að lágmarka alla áhættu í fjárhag heimilisins,“ segir Úlfar og bætir við að það þurfi ekki að koma á óvart þótt landinn sé enn töluvert hvekktur. „Ég held að það hafi verið í kringum 70% allra heimila sem lentu í verulegum hremmingum vegna bankahrunsins, og stór hópur fólks sem hefur það sem algjört forgangsatriði að lenda aldrei aftur í þess háttar veseni.“ Úlfar segir það jákvætt að bankahrunið virðist hafa gert landsmenn skynsamari og varkárari, og sjáist t.d. á því að sparnaður heimilanna fer vaxandi. Margt bendi samt til að hjá mörgum sé varkárnin meiri en tilefni sé til. „Ríkissjóður hefur sjaldan staðið betur, eigna- og skuldastaða heimilanna sjaldan verið betri, vextir sjaldan lægri, og Íslendingar með mesta kaupmátt af öllum OECD-löndunum. Samt er eins og neikvæðu fréttirnar verði ofan á, og eðlilega litar það væntingar fólks sem svo aftur hefur áhrif á markaðinn.“ Úlfar kvartar ekki og segir að til lengri tíma litið sé gott að losna við miklar öfgar og sveifl- ur í sölu og þó að hægt hafi á sölu nýrra bíla þá séu umsvifin þeim mun meiri í sölu notaðra bíla. Þá má greina merki um að farið sé að gæta ögn meiri bjartsýni í þjóðarsálinni. „Nýj- asta vísbendingin kemur frá formanni félags Fasteignasala þar sem mælist aukning á milli mánaða, og smám saman að allur almenningur mun átta sig betur á því að landið er í nokkuð góðum málum.“ ai@mbl.is „Landið er í nokkuð góðum málum“ Morgunblaðið/Árni Sæberg 82. sæti TOYOTA Á ÍSLANDI Stórt 81. sæti Úlfar Steindórsson „Ég held að það hafi verið í kringum 70% allra heimila sem lentu í verulegum hremmingum vegna banka- hrunsins, og stór hópur fólks sem hefur það sem algjört forgangsatriði að lenda aldrei aftur í þess háttar ves- eni,“segir Úlfar Steindórsson um það hve hægt salan á nýjum bílum hefur gengið undanfarin misseri.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.