Morgunblaðið - 24.10.2019, Blaðsíða 40

Morgunblaðið - 24.10.2019, Blaðsíða 40
40 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 23. OKTÓBER 2019 VIÐSKIPTAMOGGINN FRAMÚRSKARANDI FYRIRTÆKI L oftmyndir eru eitt þeirra fyrirtækja hér á landi sem eiga í samkeppni við hið opinbera, og nú nýlega skilaði samkeppnisaðilinn, Landmælingar Íslands, frá sér þarfagreiningu vegna und- irbúnings á útboði fjarkönnunarmynda og hæðarlíkans af Íslandi. Eins og Karl Arnar Arnarson, fram- kvæmdastjóri Loftmynda og einn eigenda fyrirtækisins, útskýrir hyggst ríkið bjóða sömu þjónustu og Loftmyndir veita nú þegar og gefa öllum ókeypis aðgang. „Við höfum þurft að keppa við íslenska ríkið í gegnum árin og nú hefur umhverfis- og auðlindaráðuneytið falið undirstofnun sinni, Landmælingum Ís- lands, að gera það sama og við erum að gera, að fara í myndatökuverkefni og safna loft- myndum og hæðarupplýsingum í beinni sam- keppni við okkur,“ segir Karl Arnar. Hann segir að það sé sama hvernig á þetta mál sé litið, ákvörðunin sé mjög einkennileg. „Þarna hyggst ríkið safna gögnum sem nú þegar eru til og borga fyrir það með stofn- framlagi sem er 30-40 sinnum það sem það greiðir nú árlega fyrir aðgang að þessum sömu gögnum, eða allt að 1,8 milljarða króna og við- halda síðan gögnunum eftir það með árlegum kostnaði sem er þrisvar sinnum hærri upphæð en það kostar ríkið í dag.“ Karl segir að Loftmyndir, sem voru með tekjur upp á tæpar 250 milljónir króna í fyrra, fái árlega um 50-60 milljónir króna fyrir þjón- ustu sína við stofnanir ríkisins, sem er stærsti einstaki viðskiptavinurinn. „Flestar ríkisstofnanir sem hafa einhverjar kortaþarfir eru í viðskiptum við okkur. En for- svarsmenn þessa nýja verkefnis eru meira að segja svo ósvífnir að segja að ein af forsend- unum fyrir þessari vegferð sé sú að ná eigi fram hagkvæmari nýtingu á ríkisfé. Þetta segja menn á sama tíma og verið er að leggja til að margfalda útgjöldin og fara í mjög áhættusamt verkefni sem óvíst er hvort nokk- urntímann takist að klára.“ Vilja að þjónustan sé ókeypis Spurður um röksemdir ríkisins fyrir því að fara út í slíkt verkefni, segir Karl að þær séu að gögnin sem út úr þessu koma eigi að vera ókeypis fyrir alla. Ríkið eigi einfaldlega að leggja þetta til, og nota til þess skattfé. Eðli- lega sé því ekki um „ókeypis“ þjónustu að ræða. „Þarna vaða menn áfram eins og fíll í postulínsbúð.“ Karl segir að sú vinnsla sem ríkið ætlar að fara út í með þessu verkefni sé mjög sérhæfð, og til hennar þurfi mjög sérhæfðan tölvubúnað og þekkingu, sem enginn nema Loftmyndir búi yfir hér á landi. „Þróunin mun þá líklega verða sú sama og gerst hefur víða annars stað- ar, sem er að verkefnið verður unnið af ódýru vinnuafli frá Austur-Evrópu eða Asíu og sér- hæfð þjónusta í kortagerð á Íslandi leggist af í kjölfarið.“ Spurður nánar um viðskiptavinahópinn seg- ir Karl að hann skiptist í meginatriðum í þrennt. Opinberar stofnanir séu fjórðungur viðskiptavina, einkafyrirtæki fjórðungur og aðrir séu einstaklingar og sveitarfélög. Þar á meðal er erlend heildsölugagnaveita sem veitir upplýsingum í GPS-tæki í bílum. „Þetta eru upplýsingar um vegakerfið og staðsetningar á áhugverðum stöðum til að stoppa á, t.d. sund- laugar, bankar, veitingastaðir og annað. Við sendum uppfærðan gagnapakka árlega til þeirra.“ Karl segir að mikill meirihluti íslenskra sveitarfélaga sé í viðskiptum. „Við sjáum um að útvega þeim með reglubundnum hætti loft- myndir og hæðarupplýsingar. Reykjavíkur- borg fær þannig til dæmis nýjar myndir af sínu svæði árlega. Þessi reglubundna þjónusta gerir okkur kleift að skipuleggja okkur langt fram í tímann.“ Myndir megi ekki úreldast Starfsemi Loftmynda gengur að miklu leyti út á skipulagðar myndatökur, eins og Karl út- skýrir. „Við tökum ekki eingöngu myndir af svæðum sem við erum með samninga um, heldur myndum við allt Ísland með reglu- bundnum hætti til að passa upp á að mynd- irnar úreldist ekki.“ Karl segir að mjög vel hafi gengið að ljós- mynda í sumar, enda hafi tíðin verið góð, eink- um sunnan- og vestanlands. „Við náðum að mynda yfir 20% af öllu landinu. Við högum alltaf seglum eftir vindi í þessum efnum, enda eru alltaf sveiflur í veðurfarinu.“ Hann segir að að jafnaði nái fyrirtækið að mynda 10-15% landsins á hverju ári. Að auki séu 90 þéttbýlisstaðir myndaðir sérstaklega, á 1-4 ára fresti, svo alltaf séu til nýjar eða nýleg- ar myndir af þeim stöðum. Loftmyndir reka einnig svokallaða kortasjá, en það eru vefkort sem t.d. mörg sveitarfélög eru með inni á sínum heimasíðum þar sem er að finna margvíslegar upplýsingar, sem þau geta birt sjálfvirkt á sinni útgáfu af korta- sjánni. Eitt af því sem vakti athygli hjá blaða- manni var að hægt var að skoða staðsetningar og ítarupplýsingar um umferðaróhöpp í sveit- arfélögunum. „Íbúar geta farið þarna inn og séð t.d. teikningar af húsum, eða hvar lagn- irnar liggja inn í húsin. Einnig má sjá borhol- ur, fornleifar og margt fleira. Við rekum allt í allt um 130 kortasjár. Þetta er eitt af því sem myndi þurrkast út ef ríkisvæðingin nær fram að ganga.“ Seldi húsið sitt Blaðamanni leikur hugur á að vita hvernig hugmyndin að fyrirtækinu hafi kviknað. Karl segir að faðir hans, Örn Arnar Ingólfsson, hafi stofnað fyrirtækið, en áður hafi þeir feðgar selt verkfræðingum og arkitektum hugbúnað, en kort hafi vantað. „Við höfðum samband við Landmælingar á þessum tíma og vildum fá samning um kaup á gögnum þaðan, sem þeir voru ekki tilbúnir í. Þá ákváðum við að fara sjálfir af stað. Pabbi seldi húsið sitt og notaði peninginn í fyrirtækið. Það var hálfklikkuð hugmynd, en hún gekk upp því þörfin var svo mikil.“ Karl segir að í dag sé varla stungið niður skóflu, eða vegur byggður, snjóflóðagarður eða stífla, án þess að gögn Loftmynda komi eitthvað við sögu. Loftmyndir eru í dag Framúrskarandi fyrir- tæki. Reksturinn er stöðugur, skuldlaus og fé- lagið rekið með ágætum hagnaði. Spurður um búnaðinn sem fyrirtækið notar, segir Karl að notuð sé myndavél á stærð við frystikistu, sem fyrirtækið eigi sjálft, en ný- verið hafi hún verið endurnýjuð fyrir 100 millj- ónir króna. Morgunblaðið/Hari 478. sæti LOFTMYNDIR Lítið 44. sæti Karl Arnar Arnarson Rekstur Loftmynda er stöðugur, skuldlaus og félagið rekið með ágætum hagnaði. Morgunblaðið/Hari Klikkuð hugmynd sem gekk upp Loftmyndir ljósmynda að jafnaði 10-15% landsins á hverju ári en það fer þó nokkuð eftir tíðafari.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.