Morgunblaðið - 24.10.2019, Qupperneq 40
40 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 23. OKTÓBER 2019 VIÐSKIPTAMOGGINN FRAMÚRSKARANDI FYRIRTÆKI
L
oftmyndir eru eitt þeirra fyrirtækja
hér á landi sem eiga í samkeppni við
hið opinbera, og nú nýlega skilaði
samkeppnisaðilinn, Landmælingar
Íslands, frá sér þarfagreiningu vegna und-
irbúnings á útboði fjarkönnunarmynda og
hæðarlíkans af Íslandi.
Eins og Karl Arnar Arnarson, fram-
kvæmdastjóri Loftmynda og einn eigenda
fyrirtækisins, útskýrir hyggst ríkið bjóða
sömu þjónustu og Loftmyndir veita nú þegar
og gefa öllum ókeypis aðgang. „Við höfum
þurft að keppa við íslenska ríkið í gegnum árin
og nú hefur umhverfis- og auðlindaráðuneytið
falið undirstofnun sinni, Landmælingum Ís-
lands, að gera það sama og við erum að gera,
að fara í myndatökuverkefni og safna loft-
myndum og hæðarupplýsingum í beinni sam-
keppni við okkur,“ segir Karl Arnar.
Hann segir að það sé sama hvernig á þetta
mál sé litið, ákvörðunin sé mjög einkennileg.
„Þarna hyggst ríkið safna gögnum sem nú
þegar eru til og borga fyrir það með stofn-
framlagi sem er 30-40 sinnum það sem það
greiðir nú árlega fyrir aðgang að þessum sömu
gögnum, eða allt að 1,8 milljarða króna og við-
halda síðan gögnunum eftir það með árlegum
kostnaði sem er þrisvar sinnum hærri upphæð
en það kostar ríkið í dag.“
Karl segir að Loftmyndir, sem voru með
tekjur upp á tæpar 250 milljónir króna í fyrra,
fái árlega um 50-60 milljónir króna fyrir þjón-
ustu sína við stofnanir ríkisins, sem er stærsti
einstaki viðskiptavinurinn.
„Flestar ríkisstofnanir sem hafa einhverjar
kortaþarfir eru í viðskiptum við okkur. En for-
svarsmenn þessa nýja verkefnis eru meira að
segja svo ósvífnir að segja að ein af forsend-
unum fyrir þessari vegferð sé sú að ná eigi
fram hagkvæmari nýtingu á ríkisfé. Þetta
segja menn á sama tíma og verið er að leggja
til að margfalda útgjöldin og fara í mjög
áhættusamt verkefni sem óvíst er hvort nokk-
urntímann takist að klára.“
Vilja að þjónustan sé ókeypis
Spurður um röksemdir ríkisins fyrir því að
fara út í slíkt verkefni, segir Karl að þær séu
að gögnin sem út úr þessu koma eigi að vera
ókeypis fyrir alla. Ríkið eigi einfaldlega að
leggja þetta til, og nota til þess skattfé. Eðli-
lega sé því ekki um „ókeypis“ þjónustu að
ræða. „Þarna vaða menn áfram eins og fíll í
postulínsbúð.“
Karl segir að sú vinnsla sem ríkið ætlar að
fara út í með þessu verkefni sé mjög sérhæfð,
og til hennar þurfi mjög sérhæfðan tölvubúnað
og þekkingu, sem enginn nema Loftmyndir
búi yfir hér á landi. „Þróunin mun þá líklega
verða sú sama og gerst hefur víða annars stað-
ar, sem er að verkefnið verður unnið af ódýru
vinnuafli frá Austur-Evrópu eða Asíu og sér-
hæfð þjónusta í kortagerð á Íslandi leggist af í
kjölfarið.“
Spurður nánar um viðskiptavinahópinn seg-
ir Karl að hann skiptist í meginatriðum í
þrennt. Opinberar stofnanir séu fjórðungur
viðskiptavina, einkafyrirtæki fjórðungur og
aðrir séu einstaklingar og sveitarfélög. Þar á
meðal er erlend heildsölugagnaveita sem veitir
upplýsingum í GPS-tæki í bílum. „Þetta eru
upplýsingar um vegakerfið og staðsetningar á
áhugverðum stöðum til að stoppa á, t.d. sund-
laugar, bankar, veitingastaðir og annað. Við
sendum uppfærðan gagnapakka árlega til
þeirra.“
Karl segir að mikill meirihluti íslenskra
sveitarfélaga sé í viðskiptum. „Við sjáum um
að útvega þeim með reglubundnum hætti loft-
myndir og hæðarupplýsingar. Reykjavíkur-
borg fær þannig til dæmis nýjar myndir af
sínu svæði árlega. Þessi reglubundna þjónusta
gerir okkur kleift að skipuleggja okkur langt
fram í tímann.“
Myndir megi ekki úreldast
Starfsemi Loftmynda gengur að miklu leyti
út á skipulagðar myndatökur, eins og Karl út-
skýrir. „Við tökum ekki eingöngu myndir af
svæðum sem við erum með samninga um,
heldur myndum við allt Ísland með reglu-
bundnum hætti til að passa upp á að mynd-
irnar úreldist ekki.“
Karl segir að mjög vel hafi gengið að ljós-
mynda í sumar, enda hafi tíðin verið góð, eink-
um sunnan- og vestanlands. „Við náðum að
mynda yfir 20% af öllu landinu. Við högum
alltaf seglum eftir vindi í þessum efnum, enda
eru alltaf sveiflur í veðurfarinu.“
Hann segir að að jafnaði nái fyrirtækið að
mynda 10-15% landsins á hverju ári. Að auki
séu 90 þéttbýlisstaðir myndaðir sérstaklega, á
1-4 ára fresti, svo alltaf séu til nýjar eða nýleg-
ar myndir af þeim stöðum.
Loftmyndir reka einnig svokallaða kortasjá,
en það eru vefkort sem t.d. mörg sveitarfélög
eru með inni á sínum heimasíðum þar sem er
að finna margvíslegar upplýsingar, sem þau
geta birt sjálfvirkt á sinni útgáfu af korta-
sjánni. Eitt af því sem vakti athygli hjá blaða-
manni var að hægt var að skoða staðsetningar
og ítarupplýsingar um umferðaróhöpp í sveit-
arfélögunum. „Íbúar geta farið þarna inn og
séð t.d. teikningar af húsum, eða hvar lagn-
irnar liggja inn í húsin. Einnig má sjá borhol-
ur, fornleifar og margt fleira. Við rekum allt í
allt um 130 kortasjár. Þetta er eitt af því sem
myndi þurrkast út ef ríkisvæðingin nær fram
að ganga.“
Seldi húsið sitt
Blaðamanni leikur hugur á að vita hvernig
hugmyndin að fyrirtækinu hafi kviknað. Karl
segir að faðir hans, Örn Arnar Ingólfsson, hafi
stofnað fyrirtækið, en áður hafi þeir feðgar
selt verkfræðingum og arkitektum hugbúnað,
en kort hafi vantað. „Við höfðum samband við
Landmælingar á þessum tíma og vildum fá
samning um kaup á gögnum þaðan, sem þeir
voru ekki tilbúnir í. Þá ákváðum við að fara
sjálfir af stað. Pabbi seldi húsið sitt og notaði
peninginn í fyrirtækið. Það var hálfklikkuð
hugmynd, en hún gekk upp því þörfin var svo
mikil.“
Karl segir að í dag sé varla stungið niður
skóflu, eða vegur byggður, snjóflóðagarður
eða stífla, án þess að gögn Loftmynda komi
eitthvað við sögu.
Loftmyndir eru í dag Framúrskarandi fyrir-
tæki. Reksturinn er stöðugur, skuldlaus og fé-
lagið rekið með ágætum hagnaði.
Spurður um búnaðinn sem fyrirtækið notar,
segir Karl að notuð sé myndavél á stærð við
frystikistu, sem fyrirtækið eigi sjálft, en ný-
verið hafi hún verið endurnýjuð fyrir 100 millj-
ónir króna.
Morgunblaðið/Hari
478. sæti
LOFTMYNDIR
Lítið 44. sæti
Karl Arnar Arnarson
Rekstur Loftmynda er
stöðugur, skuldlaus og
félagið rekið með
ágætum hagnaði.
Morgunblaðið/Hari
Klikkuð hugmynd sem gekk upp
Loftmyndir ljósmynda að
jafnaði 10-15% landsins á
hverju ári en það fer þó
nokkuð eftir tíðafari.