Morgunblaðið - 24.10.2019, Side 42

Morgunblaðið - 24.10.2019, Side 42
42 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 23. OKTÓBER 2019 VIÐSKIPTAMOGGINN FRAMÚRSKARANDI FYRIRTÆKI A lda Agnes Gylfadóttir, fram- kvæmdastjóri Einhamars Seafood, segir karla og konur uggandi yfir út- flutningi á óunnum fiski og þróun á fiskmarkaðsverði á hráefni. „Afurðaverð stend- ur ekki undir þeim hækkunum sem orðið hafa á hráefnismörkuðum hér heima og helsta við- fangsefnið er að sækja hækkanir á afurðaverði eins og hægt er. Brexit er yfirvofandi og enginn veit hvaða áhrif það mun hafa á fiskkaup Breta, en þeir eru meðal okkar stærstu viðskiptavina. Annars gengur þetta allt sitt vanagang, við er- um helst upptekin af veiðum og veðri eins og alla daga ársins.“ Hvernig er að starfa í þeim iðnaði sem þú gerir? „Það er hrikalega skemmtilegt og gefandi. Það er svo gaman að framleiða, búa eitthvað raunverulegt til og selja. Það er mikill hraði í ferskfiskvinnslu eins og okkar og aldrei dauð stund. Það umhverfi á vel við mig.“ Fyrirtæki að sjálfvirknivæðast Er mikið um tækniframfarir í iðnaðinum og nýtir fyrirtæki þitt sér stuðning við rannsóknir og þróun sem fáanlegar eru í dag í gegnum sem dæmi Tækniþróunarsjóð? „Það er mjög hröð tækniþróun í íslenskum sjávarútvegi og fyrir- tæki eru ört að sjálfvirknivæðast til að spara bæði mannafla, auka afköst og nýtingu. Ein- hamar Seafood hefur ekki farið í slíka fjárfest- ingu enn sem komið er.“ Hvernig hafa rekstrartölur og afkoma fyrir- tækisins verið á undanförnum árum? „Árin eftir 2015 voru erfið. Það gerðist allt í einu ef svo má að orði komast. Nígeríumark- aður hrundi í janúar 2016 um tæp 80%, innflutn- ingsbann Rússa, sjómannaverkfallið, veiðigjöld stökkbreyttust og brexit skall á, öllum að óvör- um leyfi ég mér að fullyrða. Þetta voru erfið rekstrarár fyrir okkur og allflesta tel ég í sam- bærilegum fyrirtækjum. Árið 2018 fór þetta að- eins að réttast við, útflutningur til Nígeríu er smám saman að aukast og verð að hækka. Þetta er hinsvegar mjög viðkvæmt rekstarumhverfi og þarf lítið til að fjari undan, sbr. hækkun á hráefnismörkuðum ef afurðaverð fylgja ekki.“ Passar upp á öll smáu atriðin Hvað leggur þú áherslu á í þínum daglega rekstri? „Fyrir utan það að hráefnisöflun er alltaf númer eitt, tvö og þrjú, þá segi ég að passa upp á öll smáatriði sem viðkoma vinnslu á hráefni og meðferð afla og í raun í öllum verkefnum fyrir- tækisins. Við erum gott teymi, öll sem eitt, sem störfum hjá Einhamar Seafood og erum með- vituð um að vinna þetta í sameiningu með sam- eiginlegt markmið. Að veiða, vinna og framleiða fyrsta flokks vöru sem stenst samanburð í gæð- um á öllum þeim mörkuðum sem við fram- leiðum inn á.“ Unnið við ákveðinn aga Hvaða augum lítur þú á mannauðinn í fyrir- tækinu og hvað gerir þú til að ná fram góðum afköstum og starfsánægju? „Velgengni Einhamars Seafood er mann- auður fyrirtækisins, án efa. Hér er unnið við ákveðinn aga, sem öllum er fullkunnugt um og starfsfólkið okkar kann vel að meta. Við erum gott teymi eins og áður sagði, valinn maður í hverju rúmi. Ofboðslega gott starfsfólk, án efa það allra besta að mínu mati. Hjá okkur er ein- staklingsbónus sem er afkastahvetjandi. Í frí- tíma hittumst við reglulega, förum í keilu, höld- um árshátíðir, förum í starfsmannaferðir erlendis, að ógleymdum jólahlaðborðinu okkar og þetta hefðbundna sem gert er til að hrista hópinn saman.“ Hver er stærsta áskorunin við að vera í þinni grein í dag? „Að halda sig við þá línu sem lögð er í okkar fyrirtæki. Að framleiða hágæða vöru fyrir vel borgandi viðskiptavini í harðri samkeppni bæði við íslenska framleiðendur og það sem erfiðara er, niðurgreiddan sjávarútveg annarra landa, þar sem skilningur og stuðningur stjórnvalda er með allt öðrum hætti en við eigum að venjast.“ Vilja vera með hágæða vöru sem hægt er að rekja En hvar liggja tækifærin? „Tækifærin liggja í raun í því sama og áskor- anirnar. Það er sannarlega markaður „high end“ neytenda sem vilja afurðir beint frá býli, ef svo má að orði komast. Viðskiptavinir sem vilja hreina afurð, vilja vita hvaðan hún er og eru til- búnir að greiða fyrir hana. Þarna erum við og þarna viljum við vera.“ Hvernig er að vera kona í þinni grein? „Það er alveg hreint ágætt. Það koma augna- blik ég segi það ekki, en í langflestum tilfellum er það bara virkilega gaman og strákarnir eru dásamlegir.“ Dreymdi þig alltaf um að starfa við það sem þú gerir í dag? „Já og nei. Ég lærði fiskiðn seint á síðustu öld og ætlaði mér alltaf að verða verkstjóri í fiski. Ég byrjaði þar, fór á sjóinn og endaði svo í að læra viðskiptalögfræði á fertugsaldri. Þá taldi ég framtíðina liggja í bankastörfum, en endaði aftur í sjávarútvegi þar sem fiskiðnin og lög- fræðin nýtast frábærlega saman í því sem ég starfa í dag.“ Traust viðskiptasambönd mikilvæg Hvaða máli skiptir fyrir þig persónulega að fyrirtækið veljist sem Framúrskarandi fyrir- tæki á þessu ári? „Það er ákveðin viðurkenning á störfin okkar. Klapp á bakið og staðfesting á því að við séum á réttri leið í okkar rekstri. Svo er það einfaldlega bara skemmtilegt að fá þessa viðurkenningu.“ Hvað gerir fyrirtæki framúrskarandi að þínu mati? „Að það sé með jákvæða afkomu yfir ákveð- inn tíma. Stöðugleiki sé fyrir hendi og að rekst- urinn sé í jafnvægi. Að fyrirtækið sé fyrir ofan meðaltal í greininni.“ Hvað skiptir þig máli sem leiðtogi í við- skiptum? „Ábyrgð og traust viðskiptasambönd. Að fólk vinni af heilindum í því sem það starfar frá degi til dags gagnvart sínum viðskiptavinum og sam- starfsfólki.“ elinros@mbl.is „Mest upptekin af veiði og veðri“ Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Alda Agnes segir valinn mann í hverju rúmi hjá Einhamri og að samstaðan sé mikil. 598. sæti EINHAMAR SEAFOOD Stórt 238. sæti Alda Agnes Gylfadóttir Ársniðurstaða Eignir Skiladagur Rekstrartekjur Eiginfjárhlutfall Framkvæmdastjóri Rekstrarhagnaður Ástæður fyrir brottfalli Framúrskarandi fyrirtækja af lista 2018-2019 51% 14% Annað 8% 8% 8% 5% Lánshæfisflokkur 3%3%1%

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.