Morgunblaðið - 24.10.2019, Qupperneq 42
42 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 23. OKTÓBER 2019 VIÐSKIPTAMOGGINN FRAMÚRSKARANDI FYRIRTÆKI
A
lda Agnes Gylfadóttir, fram-
kvæmdastjóri Einhamars Seafood,
segir karla og konur uggandi yfir út-
flutningi á óunnum fiski og þróun á
fiskmarkaðsverði á hráefni. „Afurðaverð stend-
ur ekki undir þeim hækkunum sem orðið hafa á
hráefnismörkuðum hér heima og helsta við-
fangsefnið er að sækja hækkanir á afurðaverði
eins og hægt er. Brexit er yfirvofandi og enginn
veit hvaða áhrif það mun hafa á fiskkaup Breta,
en þeir eru meðal okkar stærstu viðskiptavina.
Annars gengur þetta allt sitt vanagang, við er-
um helst upptekin af veiðum og veðri eins og
alla daga ársins.“
Hvernig er að starfa í þeim iðnaði sem þú
gerir?
„Það er hrikalega skemmtilegt og gefandi.
Það er svo gaman að framleiða, búa eitthvað
raunverulegt til og selja. Það er mikill hraði í
ferskfiskvinnslu eins og okkar og aldrei dauð
stund. Það umhverfi á vel við mig.“
Fyrirtæki að sjálfvirknivæðast
Er mikið um tækniframfarir í iðnaðinum og
nýtir fyrirtæki þitt sér stuðning við rannsóknir
og þróun sem fáanlegar eru í dag í gegnum sem
dæmi Tækniþróunarsjóð? „Það er mjög hröð
tækniþróun í íslenskum sjávarútvegi og fyrir-
tæki eru ört að sjálfvirknivæðast til að spara
bæði mannafla, auka afköst og nýtingu. Ein-
hamar Seafood hefur ekki farið í slíka fjárfest-
ingu enn sem komið er.“
Hvernig hafa rekstrartölur og afkoma fyrir-
tækisins verið á undanförnum árum?
„Árin eftir 2015 voru erfið. Það gerðist allt í
einu ef svo má að orði komast. Nígeríumark-
aður hrundi í janúar 2016 um tæp 80%, innflutn-
ingsbann Rússa, sjómannaverkfallið, veiðigjöld
stökkbreyttust og brexit skall á, öllum að óvör-
um leyfi ég mér að fullyrða. Þetta voru erfið
rekstrarár fyrir okkur og allflesta tel ég í sam-
bærilegum fyrirtækjum. Árið 2018 fór þetta að-
eins að réttast við, útflutningur til Nígeríu er
smám saman að aukast og verð að hækka. Þetta
er hinsvegar mjög viðkvæmt rekstarumhverfi
og þarf lítið til að fjari undan, sbr. hækkun á
hráefnismörkuðum ef afurðaverð fylgja ekki.“
Passar upp á öll smáu atriðin
Hvað leggur þú áherslu á í þínum daglega
rekstri?
„Fyrir utan það að hráefnisöflun er alltaf
númer eitt, tvö og þrjú, þá segi ég að passa upp
á öll smáatriði sem viðkoma vinnslu á hráefni og
meðferð afla og í raun í öllum verkefnum fyrir-
tækisins. Við erum gott teymi, öll sem eitt, sem
störfum hjá Einhamar Seafood og erum með-
vituð um að vinna þetta í sameiningu með sam-
eiginlegt markmið. Að veiða, vinna og framleiða
fyrsta flokks vöru sem stenst samanburð í gæð-
um á öllum þeim mörkuðum sem við fram-
leiðum inn á.“
Unnið við ákveðinn aga
Hvaða augum lítur þú á mannauðinn í fyrir-
tækinu og hvað gerir þú til að ná fram góðum
afköstum og starfsánægju?
„Velgengni Einhamars Seafood er mann-
auður fyrirtækisins, án efa. Hér er unnið við
ákveðinn aga, sem öllum er fullkunnugt um og
starfsfólkið okkar kann vel að meta. Við erum
gott teymi eins og áður sagði, valinn maður í
hverju rúmi. Ofboðslega gott starfsfólk, án efa
það allra besta að mínu mati. Hjá okkur er ein-
staklingsbónus sem er afkastahvetjandi. Í frí-
tíma hittumst við reglulega, förum í keilu, höld-
um árshátíðir, förum í starfsmannaferðir
erlendis, að ógleymdum jólahlaðborðinu okkar
og þetta hefðbundna sem gert er til að hrista
hópinn saman.“
Hver er stærsta áskorunin við að vera í þinni
grein í dag?
„Að halda sig við þá línu sem lögð er í okkar
fyrirtæki. Að framleiða hágæða vöru fyrir vel
borgandi viðskiptavini í harðri samkeppni bæði
við íslenska framleiðendur og það sem erfiðara
er, niðurgreiddan sjávarútveg annarra landa,
þar sem skilningur og stuðningur stjórnvalda er
með allt öðrum hætti en við eigum að venjast.“
Vilja vera með hágæða vöru
sem hægt er að rekja
En hvar liggja tækifærin?
„Tækifærin liggja í raun í því sama og áskor-
anirnar. Það er sannarlega markaður „high
end“ neytenda sem vilja afurðir beint frá býli, ef
svo má að orði komast. Viðskiptavinir sem vilja
hreina afurð, vilja vita hvaðan hún er og eru til-
búnir að greiða fyrir hana. Þarna erum við og
þarna viljum við vera.“
Hvernig er að vera kona í þinni grein?
„Það er alveg hreint ágætt. Það koma augna-
blik ég segi það ekki, en í langflestum tilfellum
er það bara virkilega gaman og strákarnir eru
dásamlegir.“
Dreymdi þig alltaf um að starfa við það sem
þú gerir í dag?
„Já og nei. Ég lærði fiskiðn seint á síðustu öld
og ætlaði mér alltaf að verða verkstjóri í fiski.
Ég byrjaði þar, fór á sjóinn og endaði svo í að
læra viðskiptalögfræði á fertugsaldri. Þá taldi
ég framtíðina liggja í bankastörfum, en endaði
aftur í sjávarútvegi þar sem fiskiðnin og lög-
fræðin nýtast frábærlega saman í því sem ég
starfa í dag.“
Traust viðskiptasambönd mikilvæg
Hvaða máli skiptir fyrir þig persónulega að
fyrirtækið veljist sem Framúrskarandi fyrir-
tæki á þessu ári?
„Það er ákveðin viðurkenning á störfin okkar.
Klapp á bakið og staðfesting á því að við séum á
réttri leið í okkar rekstri. Svo er það einfaldlega
bara skemmtilegt að fá þessa viðurkenningu.“
Hvað gerir fyrirtæki framúrskarandi að þínu
mati?
„Að það sé með jákvæða afkomu yfir ákveð-
inn tíma. Stöðugleiki sé fyrir hendi og að rekst-
urinn sé í jafnvægi. Að fyrirtækið sé fyrir ofan
meðaltal í greininni.“
Hvað skiptir þig máli sem leiðtogi í við-
skiptum?
„Ábyrgð og traust viðskiptasambönd. Að fólk
vinni af heilindum í því sem það starfar frá degi
til dags gagnvart sínum viðskiptavinum og sam-
starfsfólki.“
elinros@mbl.is
„Mest upptekin af veiði og veðri“
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Alda Agnes segir valinn mann í hverju rúmi
hjá Einhamri og að samstaðan sé mikil.
598. sæti
EINHAMAR
SEAFOOD
Stórt 238. sæti
Alda Agnes Gylfadóttir
Ársniðurstaða
Eignir
Skiladagur
Rekstrartekjur Eiginfjárhlutfall
Framkvæmdastjóri
Rekstrarhagnaður
Ástæður fyrir brottfalli Framúrskarandi fyrirtækja
af lista 2018-2019
51%
14%
Annað
8%
8%
8%
5%
Lánshæfisflokkur
3%3%1%