Morgunblaðið - 24.10.2019, Qupperneq 78

Morgunblaðið - 24.10.2019, Qupperneq 78
V erzlunarskóli Íslands er í fyrsta skipti á lista Creditinfo yfir Fram- úrskarandi fyrirtæki í ár. Verzlunarskólinn var stofnaður af Verzlunarmannafélaginu og Kaupmanna- félaginu í Reykjavík árið 1905 og á því fyrsta ári settust 54 nemendur á skólabekk. Skólahúsnæðið fyrstu árin var að því er fram kemur í hátíðarritinu Viðskiptaráð Ís- lands í 100 ár „öllu óboðlegt og svo jökulkalt að heilsu nemenda var hætta búin“. Frá 1912 til 1931 var skólinn staðsettur á Vest- urgötu 10a í öllu betra húsnæði en flutti síð- ar á Grundarstíg. Árið 1943 samþykkti þá- verandi menntamálaráðherra að Verzlunarskólinn fengi að útskrifa stúdenta. Þótti það að sögn Inga Ólafssonar, núver- andi skólastjóra skólans, engan veginn sjálf- sagt mál og olli það deilum á meðal mennta- manna á Íslandi. Flestir voru því mótfallnir. „Menn töldu að með þessu væri verið að gjaldfella stúdentsprófið, því menn voru hræddir um að lítið yrði gert úr kennslu í stærðfræði og latínu,“ segir Ingi en á þess- um tíma voru það aðeins Menntaskólinn í Reykjavík og Menntaskólinn á Akureyri sem útskrifuðu stúdenta. Árið 1943 útskrifuðust fyrstu stúdentarnir frá Verzlunarskólanum en í þeim fyrsta út- skriftarhópi voru sjö piltar. Eftir 55 ár í húsnæðinu við Grundarstíg flutti skóla- starfsemin árið 1986 í núverandi húsakynni í Ofanleiti sem er að fullu í eigu skólans. Og þar er starfsemi þessa vinsælasta fram- haldsskóla landsins enn í fullum gangi. Það er engin tilviljun að Verzlunarskólinn ratar nú á lista Creditinfo yfir framúrskar- andi fyrirtæki. Að sögn Inga hefur rekstrar- umhverfi framhaldsskóla batnað mjög á síð- ustu árum en sjálfur tók Ingi við skólastjórastöðunni árið 2007. „Það var þannig að í tíð Illuga Gunnars- sonar, þáverandi menntamálaráðherra, var ákveðið að framhaldsskólinn yrði styttur um eitt ár en á sama tíma var lofað að fjármagn sem rynni til skólanna yrði það sama. Sem þýðir að skólar voru að fá meira fjármagn á hvern nemanda. Þeim fækkaði en upphæðin á hvern nemanda hækkaði. Það var nauð- synlegt að fjármagnið yrði ekki skert. Þótt reksturinn hafi í sjálfu sér ekki gengið illa hjá okkur þá gekk rekstur framhaldsskóla almennt illa. Allir skólar þurftu virkilega að vera á tánum og fylgjast með hverri krónu. Í dag er betra svigrúm til þess að sinna skólaþróun og endurnýja nauðsynleg tæki og tól,“ segir Ingi. Ákvörðunin þótti arfavitlaus Að sögn Inga fannst mörgum fyrrverandi nemendum sú ákvörðun að fækka árunum á skólabekk úr fjórum í þrjú vera arfavitlaus. „Vegna þess að yfirleitt var mesta fjörið hjá þeim á síðasta árinu. Þá stýrðu þau félags- lífinu og svo framvegis. En núverandi nem- endur vilja ekkert endilega vera eitt ár í við- bót þegar til kastanna kemur. Þegar að fyrsti nemendahópurinn í þriggja ára nám- inu var að hefja lokaárið voru flestir þeirra á þeirri skoðun að þeir vildu gjarnan vera lengur. En þegar nálgaðist útskrift töldu flestir þeirra að þetta væri bara komið gott,“ segir Ingi og hlær. Að sögn Inga var námsefnið skorið niður að hluta til við þessa breytingu en hann seg- ir þó að kröfur til nemenda séu meiri nú en þegar námið taldi fjögur ár. „Þegar rætt er við fyrrverandi nemendur skólans segja margir þeirra að álagið á síð- asta árinu hafi síst verið of mikið. Sér- staklega á viðskiptabrautinni. Við gerðum á sínum tíma könnun á meðal nemenda og í henni sögðu nánast allir, utan nemenda á náttúrufræðibraut, að álagið væri minnst á síðasta ári. Það benti til þess að svigrúm hefði verið til þess að leggja meira á nem- endur og það reyndist rétt mat miðað við gengi nemenda í þriggja ára kerfinu,“ segir Ingi. Verzlunarskólinn hefur um langt skeið verið vinsæll og á hverju ári þarf skólinn að vísa umsóknum frábærra nemenda frá að sögn Inga. „Við fáum ótrúlega margar umsóknir. Það voru 679 sem sóttu um skólann í fyrsta eða öðru vali síðast. Og 520 sem völdu skólann í fyrsta sæti en við gátum bara tekið inn 340 nemendur,“ segir Ingi en aðspurður segir hann að ekki sé í bígerð að stækka skólann. En hvað skýrir þessar vinsældir? „Við höfum oft spurt nemendur þessarar spurningar. Við vöndum okkur mikið við námsframboðið en okkur grunar að það sé kannski félagslífið sem vegi þungt í ákvarð- anatökunni. Kannski vilja nemendur ekki viðurkenna það en þeir nefna yfirleitt aldrei félagslífið sem fyrstu ástæðu. Þau tala t.d. um bekkjakerfið og orðsporið áður en þau nefna félagslífið,“ segir Ingi. Góður andi á meðal starfsmanna smitar út frá sér Það eru trúlega fleiri ástæður að sögn Inga. „Það hefur verið mjög góður andi í skólanum. Einnig á meðal starfsmanna. Ef það er góður andi í starfsmannahópnum, það er sama hvort það er skóli eða eitthvert ann- að fyrirtæki og starfsmaður er ánægður í vinnunni þá talar hann fallega um vinnustað- inn úti í bæ,“ segir Ingi. Ingi segir að starfsemi skólans gangi jafn- an sinn vanagang en þó sé álag á starfsfólk skólans vegna annarra þátta en kennslu orð- ið meira en það var. „Við getum nefnt t.d. jafnlaunavottunina. Undanfarið hafa tveir starfsmenn unnið mikið í þessum málum í samstarfi við sér- fræðinga. Síðan þurfum við einnig að vera með persónuverndarfulltrúa. En með nýju persónuverndarlögunum er allt miklu strangara en áður. Nú er það líka þannig að nú geta t.d. fyrrverandi nemendur fengið að vita nákvæmlega allt sem er skráð um þá. Þannig að utanumhald um skjalamál hefur aukist. Það er mikil vinna sem felst í þessu öllu saman því þetta er nýtt fyrir flesta,“ segir Ingi. Góður andi í Verzlunarskólanum Morgunblaðið/Kristinn Magnússon 438. sæti VERZLUNAR- SKÓLI ÍSLANDS Stórt 219. sæti Ingi Ólafsson Að sögn Inga var svigrúm til staðar til þess að fækka mennta- skólaárum úr fjórum í þrjú. 78 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 23. OKTÓBER 2019 VIÐSKIPTAMOGGINN FRAMÚRSKARANDI FYRIRTÆKI
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.