Morgunblaðið - 24.10.2019, Side 80

Morgunblaðið - 24.10.2019, Side 80
80 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 23. OKTÓBER 2019 VIÐSKIPTAMOGGINN FRAMÚRSKARANDI FYRIRTÆKI R eiknistofa bankanna, RB, gegnir mikilvægu hlutverki hér á landi, m.a. við að viðhalda og tryggja að greiðslur renni hratt og örugglega í gegn þegar almenningur kaupir sér vörur og þjónustu úti í búð. Hjá fyrirtækinu starfa 170 manns og að sögn Ragnhildar Geirsdóttur sem sinnt hefur starfi forstjóra fyrirtækisins frá því í byrjun þessa árs, er RB eftirsóttur vinnu- staður. Það vekur athygli að hlutfall kvenkyns forritara er hátt hjá RB. „35% af forriturum í vinnu hér eru konur. Það er frekar hátt hlutfall, enda eru konur aðeins 10-20% af þeim tölv- unarfræðingum sem útskrifast úr háskólum hér á landi. Við erum mjög stolt af þessu,“ segir Ragnhildur, og bætir því við að meðalaldur starfsmanna hjá fyrirtækinu sé 45 ár. „Það er mikil ásókn í störf hér þegar við auglýsum, enda er þetta áhugaverður og skemmtilegur vinnu- staður og gaman að vinna hér. Hér eru mörg skemmtileg verkefni og fjölbreyttar áskoranir á hverjum degi.“ Spennandi gerjun í gangi Ragnhildur segir að það sem geri störf hjá RB sérstaklega áhugaverð sé að mikil gerjun sé í öllu er snýr að tæknilegum hluta fjármálageir- ans. „Við rekum innviði fyrir fjármálakerfið, og þurfum að tryggja að kerfin séu skilvirk og séu uppi öllum stundum. Það er okkar lykilverkefni frá degi til dags.“ Hún segir að RB standi í stórræðum þessi misserin við að skipta út öllum gömlu heima- smíðuðu kerfunum sem hafa verið í notkun í áratugi. „Gömlu kerfin eru öll skrifuð í heima- smíðuðu stórtölvuumhverfi. Við erum þegar bú- in að skipta út hluta af innlána- og greiðslukerf- unum, og svo erum við að skipta út jöfnunar- og stórgreiðslukerfum Seðlabankans. Þetta er allt að fara inn í stöðluð alþjóðleg kerfi. Nýja inn- lána- og greiðslukerfið heitir Sobra, en nýja seðlabankakerfið heitir Perago.“ Búið er, að sögn Ragnhildar, að skipta út kerfum fyrir bæði Íslandsbanka og Landsbank- ann, en vinna við kerfi Arion banka stendur yfir. Á eftir fylgja Sparisjóðirnir. „Gamla stór- tölvukerfið var allt skrifað hér á landi og var mjög skilvirkt, og samtengt, en hafði líka ákveðnar takmarkanir, og ekki auðvelt að gera breytingar á því. Með því að færa okkur yfir í stöðluð kerfi erum við að fylgja betur eftir al- þjóðlegri þróun og innleiðum nýja tækni.“ Þeir kostir fylgdu því að vera með gamla kerfið jafn samtengt og það var, voru þeir að hér á landi var snemma hægt að bjóða upp á rauntímagreiðslur, og færslur flæddu eðlilega úr einum banka í annan, að sögn Ragnhildar. „Kostirnir við að fara í stöðluð erlend kerfi eru að það er verið að þróa þau fyrir miklu fleiri, og í stærra samhengi. Þróunarteymin eru miklu stærri, og við fáum fullt af spennandi nýrri virkni með.“ RB vill vera í ákveðnu leiðtogahlutverki á fjármálamarkaðnum að sögn Ragnhildar, og ýta undir nýsköpun í lausnum fyrir fjár- málamarkaðinn. „Það er mikið að gerast núna á sviði fjártækni og við viljum liðka fyrir framþró- un og nýsköpun í fjártækni. Ég myndi vilja sjá íslenska markaðinn vaxa og þróast eins og er að gerast í Evrópu og Asíu til dæmis.“ RB er að stærstum hluta í eigu fjármálafyr- irtækja, sem einnig eru stærstu viðskiptavin- irnir. „Við lítum svo á að við þjónustum fjár- málamarkaðinn í heild sinni. Öll opnun er góð á þessu sviði, og við viljum sjá framþróun í tækni og þróun.“ Annað sem Ragnhildur nefnir sem hluta af framtíð RB er sú mikla umræða sem er um hag- ræðingu í bankakerfinu. „Við sjáum mikla möguleika á að hagræða meira með auknum samrekstri á innviðum. Hvítbókin um fjár- málakerfið sem gefin var út í fyrra, kom inn á mikilvægi þessa. Þarna getum við verið með mikilvægt hlutverk, og bankarnir geta þá ein- beitt sér að framendanum og því sem snýr að því að þjónusta viðskiptavininn.“ Ragnhildur segir að RB reki í dag fyrst og fremst kerfi fyrir viðskiptabankastarfsemi en gæti einnig rekið önnur kerfi fyrir fjármála- markaðinn. Sem dæmi hafi oft verið velt upp þeim hugmyndum að reka sameiginlega kerfi til að hafa eftirlit með peningaþvætti, og allt varð- andi svokallað KYC (Know Your Customer), sem snýr að því að kanna bakgrunn við- skiptavina áður en þeir hefja viðskipti. Hún seg- ir að Ísland sé frekar lítið kerfi sem gæti hentar vel til þess að vinna þessi mál saman. Spurð að því hvort viðræður séu komnar í gang um inn- viðaverkefni, segir Ragnhildur að ágætis jarð- vegur sé fyrir málinu, og samtal aðila sé að hefj- ast. Ragnhildur nefnir að lokum annað spennandi verkefni sem RB stendur að, en það er gagna- verið Reykjavík Data Center hjá Korputorgi í Reykjavík, en samstarfsaðilar þar eru Opin kerfi, Sýn og Korputorg. Gagnaverið verður tilbúið til notkunar í byrjun árs 2020 „Við erum með 10% hlut í gagnaverinu. Við munum nota það til að hýsa hluta af okkar kerfum. Það er áhugavert að koma að uppbyggingu á svona há- gæða gagnaveri, sem verður það fyrsta af þess- um gæðum hér á landi.“ Kröfuharðir viðskiptavinir Um rekstur RB almennt segir Ragnhildur að endingu að rekstur RB snúist annars vegar um rekstur mikilvægra innviða fyrir fjármálamark- aðinn og hins vegar stór breytingar- og þróun- arverkefni. Sveiflur í grunnrekstrinum séu ekki mjög miklar, og umhverfið nokkuð stöðugt. Verkefnin séu hins vegar mun breytilegri og sveiflukenndari „Viðskiptavinirnir okkar eru mjög kröfuharðir, og gera kröfu um skilvirkan og hagkvæman rekstur.“ Konur eru 35% forritara Morgunblaðið/Eggert 153. sæti RB Stórt 133. sæti Ragnhildur Geirsdóttir Ragnhildur Geirs- dóttur forstjóri RB Ragnhildur Geirs- dóttur forstjóri Reikni- stofu Bankanna 5% Hlutfall helstu atvinnugreina meðal Framúrskarandi fyrirtækja 2009-2018 2009 2010 2011 2012 2013 2014 2015 2016 2017 2018 Hlutfall 12% 10% 8% 6% 4% 2% 12% 7% Byggingarstarfsemi og mannvirkjagerð Ferðaþjónusta Sjávarútvegur Fjármála- og vátryggingastarfsemi Rekstrarárin 2009-2018

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.