Morgunblaðið - 24.10.2019, Síða 86
86 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 23. OKTÓBER 2019 VIÐSKIPTAMOGGINN FRAMÚRSKARANDI FYRIRTÆKI
Þ
að er alltaf verið að reyna að sjálf-
virknivæða sem mest hjá okkur.
Þess vegna erum við til dæmis að
opna sjálfvirka stöð í nóvember í
Breiðholti og opnum slíka stöð í febrúar á Sel-
fossi á næsta ári. Það sem hefur verið flókið í
þessu hjá okkur er að Ísland er eitt fárra skila-
kerfa sem tekur við beygluðum umbúðum.
Okkar afstaða hefur alltaf verið sú að allar um-
búðir eru mikilvægar hvort sem þær eru ljótar
eða fallegar. Við viljum allar umbúðir til okkar,
en það er ekki til nein talningavél í heiminum
sem tekur við beygluðum umbúðum,“ segir
Helgi Lárusson, framkvæmdastjóri End-
urvinnslunnar. Hann bendir á að sífellt sé
stefnt að aukinni sjálfvirknivæðingu, en að
slíkt sé tæknilega flókið og ekki síst kostn-
aðarsamt.
Í kringum árið 2008 var farið að vélvæða
reksturinn og teknar í notkun mjög hraðvirkar
talningavélar, að sögn Helga. „Þær eru komn-
ar núna á höfuðborgarsvæðið allt saman og
Akureyri, Keflavík og á næsta ári á Selfoss.“
Framkvæmdastjórinn segir að erfitt yrði að
ná markmiðum um að taka við öllum drykkjar-
umbúðum ef ætti að innleiða svipað sjálfvirkt
móttökukerfi og er í verslunum annars staðar
á Norðurlöndunum, enda geta slík kerfi ekki
tekið við beygluðum umbúðum eða sem eru
ekki með strikamerki. „Þá lenda þær fyrir ut-
an kerfið. Við höfum tekið við öllum umbúðum
og munum gera það áfram, en það þarf sér-
stakan farveg fyrir beyglaðar umbúðir.“
7 milljónir trjáa
Endurvinnslan hefur það að markmiði að
allar drykkjarumbúðir verði endurunnar og að
endurunnar drykkjarumbúðir verði notaðar til
þess að búa til nýjar drykkjarumbúðir. Þannig
verði hringrásarhugsunin meginmarkmið
fyrirtækisins. Kolefnisávinningur þess að
endurvinna drykkjarumbúðir er mjög mikill
og einungis þarf að endurvinna um það bil 25
drykkjarumbúðir til að samsvara kolefnisbind-
ingu á einu tré, að sögn Helga. Árlega sér
Endurvinnslan um að koma drykkjar-
umbúðum í endurnýtingu sem samsvarar kol-
efnisbindingu 7 milljónum trjáa. „Hver flaska
skiptir því miklu máli.“
Á hverju ári selur Endurvinnslan úr landi
um 7.850 tonn af áli á ári og 1.700 tonn af
plasti. Glerið notar Sorpa bs. til landfyllingar
og við undirbyggingu vega. „Allt ál og plast
sem við tökum við er endurunnið. Áldós sem
fer frá okkur er orðin að nýrri áldós eftir sex-
tíu daga og plastið sem við sendum út er í sí-
auknum mælum notað í nýja plastflösku,“ út-
skýrir Helgi og bendir á að jafnvel plastpokar
sem berast séu endurunnir. „Það eina sem
kemur til okkar og við getum ekki endurunnið
eru maíspokar.“ Hann bendir á að stórir fram-
leiðsluaðilar eins og Coca-Cola og Pepsi séu að
vinna sínar umbúðir alltaf meira úr endurunnu
plasti. Að öðru leyti þá er plast endurunnið í
fatnað og í plastbakka undir grænmeti og
fleira.
Endurvinnslan hefur lagt kapp á að kolefn-
isjafna, ekki einungis með endurvinnslu
drykkjarumbúða heldur við eigin rekstur. Ver-
ið er að skipta út bílum í rafmagnsbíla, fylgjast
með orkunotkun og nýtingu á flutningsrými.
Þá hafa starfsmenn Endurvinnslunnar gróð-
ursett átta þúsund tré í Þorlákshafnarskógi í
ár og hafa skuldbundið sig til að gróðursetja
þar þrjátíu þúsund tré. Áður var búið að gróð-
ursetja um átta þúsund tré í Hekluskógi. Kol-
efnisjöfnunin af þessu er langt umfram kolefn-
isspor af daglegum rekstri fyrirtækisins.
Reksturinn enn á grundvelli
umhverfisverndar
Endurvinnslan hf. var stofnuð árið 1989.
Ástæða stofnunar félagsins var náttúru- og
umhverfisvernd þó vonir stæðu til að hægt
yrði að endurvinna umbúðirnar sem smám
saman varð að veruleika. Helgi segir margt í
rekstri félagsins hafi breyst frá stofnun en að
megináherslan sé enn umhverfismál „og að
sjálfsögðu líka að þjónusta viðskiptavininn“,
bætir hann við.
Upphaflega var miðað við samstarf við
verslanir til þess að anna móttöku umbúðanna
og var komið upp aðstöðu með svipuðum hætti
og annars staðar á Norðurlöndunum, meðal
annars hjá Krónunni, Hagkaupum, Nóatúni og
Miklagarði. „Árið 1995 hentu búðirnar þessu
út, vildu ekki vera með í þessu og töldu vera
mikinn sóðaskap í kringum þetta. Þá var samið
við Sorpu á höfuðborgarsvæðinu og móttaka
sett í skúra á öllum móttökustöðum fyrir-
tækisins. Síðasti kofinn er í Jafnaseli og hon-
um verður skipt út í nóvemberlok. Þannig að
síðustu leifarnar af því kerfi sem var frá 1995
er að hverfa. Á Landsbyggðinni voru verslanir
ekki með frá upphafi og samið við umboðsaðila
eins og björgunarsveitir, einstaklinga, íþrótta-
félög og skóla. Hefur það haldist áfram.“
Reksturinn er ekki hagnaðardrifinn, að sögn
framkvæmdastjórans. „Við höfum haft þetta
þannig að reksturinn skili lágmarkshagnaði,
en samt þannig að það sé nægt fé til þess að
hægt sé að byggja upp starfsemina enda er
vélvæðing dýr.“ Hann segir fyrirtækið sjálft
ekki vera með umfangsmikinn rekstur á sínum
vegum þar sem allur akstur er boðinn út og
móttaka efnis er í samstarfi við ýmsa aðila.
Hins vegar eru þrjár starfsstöðvar á höfuð-
borgarsvæðinu þar sem öllu efni er pakkað til
þess að lágmarka flutninga. „Þetta er sett í
pressur, þaðan í gám og beint í útflutning. Það
er ekki verið að flytja milli staða.“
Ferðamenn eru áskorun
Rekstur fyrirtækisins er háður því að fólk
skili umbúðum til endurvinnslu. Spurður hvort
Íslendingar séu almennt duglegir að skila
drykkjarumbúðum, segir Helgi svo vera. „Ís-
lendingar eru góðir í að skila, en mega auðvit-
að verða betri. Það sem hefur gerst – og gerist
þegar er uppsveifla í efnahagslífi – að þá verð-
ur hvatinn minni til þess að skila. Þetta skila-
kerfi okkar er hvatakerfi. Eftir ferðamanna-
sprengjuna sem varð upp úr 2014 höfum við
átt í vandræðum með að ná til ferðamanna og
útskýra fyrir þeim hvernig þetta kerfi virkar,“
útskýrir hann og bendir á að sett hefur verið í
gang sérstakt verkefni til þess að ná til ferða-
manna.
„Til að ná til ferðamanna og drykkjar-
umbúða þeirra var farið af stað með skátum og
björgunarsveitum í að setja upp staðlaða vel
merkta gáma sem taka við drykkjarumbúðum.
Er búið að setja upp 15 slíka gáma og fer
ávinningur allur til uppbyggingar starfs
þeirra.“ Hann segir ferðamenn hafa tekið
þessu mjög vel, en helsta vandmálið er að erf-
iðlega hefur gengið að fá rekstraraðila á fjöl-
förnum ferðamannastöðum eins og Gullfoss og
Geysi til að samþykkja að slíkir gámar verði
settir þar upp. „Vonandi breytist það, enda
teljum við mikilvægt að miða við staðlaða
lausn við þessa söfnun alls staðar á landinu,“
segir Helgi.
gso@mbl.is
Vilja bæði fallegar og ljótar umbúðir
Morgunblaðið/Eggert
158. sæti
ENDUR-
VINNSLAN
Stórt 137. sæti
Helgi Lárusson
Morgunblaðið/Eggert
Endurvinnslan sendir 7.850 tonn af áli á ári og
1.700 tonn af plasti úr landi á hverju ári. Helgi
Lárusson framkvæmdastjóri segir mikla
áherslu lagða á að kolefnisjafna reksturinn.
Mikill fjöldi
umbúða skil-
ar sér til End-
urvinnslunnar
á hverju ári
enda skapar
skilagjaldið
hvata.