Morgunblaðið - 24.10.2019, Qupperneq 86

Morgunblaðið - 24.10.2019, Qupperneq 86
86 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 23. OKTÓBER 2019 VIÐSKIPTAMOGGINN FRAMÚRSKARANDI FYRIRTÆKI Þ að er alltaf verið að reyna að sjálf- virknivæða sem mest hjá okkur. Þess vegna erum við til dæmis að opna sjálfvirka stöð í nóvember í Breiðholti og opnum slíka stöð í febrúar á Sel- fossi á næsta ári. Það sem hefur verið flókið í þessu hjá okkur er að Ísland er eitt fárra skila- kerfa sem tekur við beygluðum umbúðum. Okkar afstaða hefur alltaf verið sú að allar um- búðir eru mikilvægar hvort sem þær eru ljótar eða fallegar. Við viljum allar umbúðir til okkar, en það er ekki til nein talningavél í heiminum sem tekur við beygluðum umbúðum,“ segir Helgi Lárusson, framkvæmdastjóri End- urvinnslunnar. Hann bendir á að sífellt sé stefnt að aukinni sjálfvirknivæðingu, en að slíkt sé tæknilega flókið og ekki síst kostn- aðarsamt. Í kringum árið 2008 var farið að vélvæða reksturinn og teknar í notkun mjög hraðvirkar talningavélar, að sögn Helga. „Þær eru komn- ar núna á höfuðborgarsvæðið allt saman og Akureyri, Keflavík og á næsta ári á Selfoss.“ Framkvæmdastjórinn segir að erfitt yrði að ná markmiðum um að taka við öllum drykkjar- umbúðum ef ætti að innleiða svipað sjálfvirkt móttökukerfi og er í verslunum annars staðar á Norðurlöndunum, enda geta slík kerfi ekki tekið við beygluðum umbúðum eða sem eru ekki með strikamerki. „Þá lenda þær fyrir ut- an kerfið. Við höfum tekið við öllum umbúðum og munum gera það áfram, en það þarf sér- stakan farveg fyrir beyglaðar umbúðir.“ 7 milljónir trjáa Endurvinnslan hefur það að markmiði að allar drykkjarumbúðir verði endurunnar og að endurunnar drykkjarumbúðir verði notaðar til þess að búa til nýjar drykkjarumbúðir. Þannig verði hringrásarhugsunin meginmarkmið fyrirtækisins. Kolefnisávinningur þess að endurvinna drykkjarumbúðir er mjög mikill og einungis þarf að endurvinna um það bil 25 drykkjarumbúðir til að samsvara kolefnisbind- ingu á einu tré, að sögn Helga. Árlega sér Endurvinnslan um að koma drykkjar- umbúðum í endurnýtingu sem samsvarar kol- efnisbindingu 7 milljónum trjáa. „Hver flaska skiptir því miklu máli.“ Á hverju ári selur Endurvinnslan úr landi um 7.850 tonn af áli á ári og 1.700 tonn af plasti. Glerið notar Sorpa bs. til landfyllingar og við undirbyggingu vega. „Allt ál og plast sem við tökum við er endurunnið. Áldós sem fer frá okkur er orðin að nýrri áldós eftir sex- tíu daga og plastið sem við sendum út er í sí- auknum mælum notað í nýja plastflösku,“ út- skýrir Helgi og bendir á að jafnvel plastpokar sem berast séu endurunnir. „Það eina sem kemur til okkar og við getum ekki endurunnið eru maíspokar.“ Hann bendir á að stórir fram- leiðsluaðilar eins og Coca-Cola og Pepsi séu að vinna sínar umbúðir alltaf meira úr endurunnu plasti. Að öðru leyti þá er plast endurunnið í fatnað og í plastbakka undir grænmeti og fleira. Endurvinnslan hefur lagt kapp á að kolefn- isjafna, ekki einungis með endurvinnslu drykkjarumbúða heldur við eigin rekstur. Ver- ið er að skipta út bílum í rafmagnsbíla, fylgjast með orkunotkun og nýtingu á flutningsrými. Þá hafa starfsmenn Endurvinnslunnar gróð- ursett átta þúsund tré í Þorlákshafnarskógi í ár og hafa skuldbundið sig til að gróðursetja þar þrjátíu þúsund tré. Áður var búið að gróð- ursetja um átta þúsund tré í Hekluskógi. Kol- efnisjöfnunin af þessu er langt umfram kolefn- isspor af daglegum rekstri fyrirtækisins. Reksturinn enn á grundvelli umhverfisverndar Endurvinnslan hf. var stofnuð árið 1989. Ástæða stofnunar félagsins var náttúru- og umhverfisvernd þó vonir stæðu til að hægt yrði að endurvinna umbúðirnar sem smám saman varð að veruleika. Helgi segir margt í rekstri félagsins hafi breyst frá stofnun en að megináherslan sé enn umhverfismál „og að sjálfsögðu líka að þjónusta viðskiptavininn“, bætir hann við. Upphaflega var miðað við samstarf við verslanir til þess að anna móttöku umbúðanna og var komið upp aðstöðu með svipuðum hætti og annars staðar á Norðurlöndunum, meðal annars hjá Krónunni, Hagkaupum, Nóatúni og Miklagarði. „Árið 1995 hentu búðirnar þessu út, vildu ekki vera með í þessu og töldu vera mikinn sóðaskap í kringum þetta. Þá var samið við Sorpu á höfuðborgarsvæðinu og móttaka sett í skúra á öllum móttökustöðum fyrir- tækisins. Síðasti kofinn er í Jafnaseli og hon- um verður skipt út í nóvemberlok. Þannig að síðustu leifarnar af því kerfi sem var frá 1995 er að hverfa. Á Landsbyggðinni voru verslanir ekki með frá upphafi og samið við umboðsaðila eins og björgunarsveitir, einstaklinga, íþrótta- félög og skóla. Hefur það haldist áfram.“ Reksturinn er ekki hagnaðardrifinn, að sögn framkvæmdastjórans. „Við höfum haft þetta þannig að reksturinn skili lágmarkshagnaði, en samt þannig að það sé nægt fé til þess að hægt sé að byggja upp starfsemina enda er vélvæðing dýr.“ Hann segir fyrirtækið sjálft ekki vera með umfangsmikinn rekstur á sínum vegum þar sem allur akstur er boðinn út og móttaka efnis er í samstarfi við ýmsa aðila. Hins vegar eru þrjár starfsstöðvar á höfuð- borgarsvæðinu þar sem öllu efni er pakkað til þess að lágmarka flutninga. „Þetta er sett í pressur, þaðan í gám og beint í útflutning. Það er ekki verið að flytja milli staða.“ Ferðamenn eru áskorun Rekstur fyrirtækisins er háður því að fólk skili umbúðum til endurvinnslu. Spurður hvort Íslendingar séu almennt duglegir að skila drykkjarumbúðum, segir Helgi svo vera. „Ís- lendingar eru góðir í að skila, en mega auðvit- að verða betri. Það sem hefur gerst – og gerist þegar er uppsveifla í efnahagslífi – að þá verð- ur hvatinn minni til þess að skila. Þetta skila- kerfi okkar er hvatakerfi. Eftir ferðamanna- sprengjuna sem varð upp úr 2014 höfum við átt í vandræðum með að ná til ferðamanna og útskýra fyrir þeim hvernig þetta kerfi virkar,“ útskýrir hann og bendir á að sett hefur verið í gang sérstakt verkefni til þess að ná til ferða- manna. „Til að ná til ferðamanna og drykkjar- umbúða þeirra var farið af stað með skátum og björgunarsveitum í að setja upp staðlaða vel merkta gáma sem taka við drykkjarumbúðum. Er búið að setja upp 15 slíka gáma og fer ávinningur allur til uppbyggingar starfs þeirra.“ Hann segir ferðamenn hafa tekið þessu mjög vel, en helsta vandmálið er að erf- iðlega hefur gengið að fá rekstraraðila á fjöl- förnum ferðamannastöðum eins og Gullfoss og Geysi til að samþykkja að slíkir gámar verði settir þar upp. „Vonandi breytist það, enda teljum við mikilvægt að miða við staðlaða lausn við þessa söfnun alls staðar á landinu,“ segir Helgi. gso@mbl.is Vilja bæði fallegar og ljótar umbúðir Morgunblaðið/Eggert 158. sæti ENDUR- VINNSLAN Stórt 137. sæti Helgi Lárusson Morgunblaðið/Eggert Endurvinnslan sendir 7.850 tonn af áli á ári og 1.700 tonn af plasti úr landi á hverju ári. Helgi Lárusson framkvæmdastjóri segir mikla áherslu lagða á að kolefnisjafna reksturinn. Mikill fjöldi umbúða skil- ar sér til End- urvinnslunnar á hverju ári enda skapar skilagjaldið hvata.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.