Morgunblaðið - 24.10.2019, Qupperneq 88

Morgunblaðið - 24.10.2019, Qupperneq 88
88 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 23. OKTÓBER 2019 VIÐSKIPTAMOGGINN FRAMÚRSKARANDI FYRIRTÆKI Þ að var árið 1990 sem Pétri Geirs- syni, veitingamanni og mjólk- urfræðingi, bauðst að kaupa Hótel Borgarnes. Reksturinn á fyrir- tækinu var ekki björgulegur en Pétur hafði marga fjöruna sopið á aldarfjórðungs löngum ferli í rekstri, bæði í Botnsskála og Hreða- vatnsskála og því lét hann slag standa. Hann stendur enn í brúnni þótt farið sé að halla í ní- rætt. Synir hans tveir, Steinn og Jón, standa vaktina með honum og hann hefur ekki lagt ár- ar í bát. Hann er enn með stórar hugmyndir á prjónunum sem hann langar til að koma á koppinn. „Kaupin á Hótel Borgarnesi eru kannski stærsta vitleysa sem ég hef gert því það tók áratug að rétta reksturinn af og raunar fór hann ekki að skila neinu af sér fyrr en eftir bankahrun og þegar krónan féll. En ég hef ekki séð eftir þessu og mér hefur aldrei leiðst,“ segir Pétur kíminn þar sem við setj- umst niður á hótelinu þegar haustið hefur gert sig heimakomið í gamla bænum í Borg- arnesi. „Hótelið gekk mjög illa og bærinn vildi selja. Ég fékk þetta á góðu verði og fyrstu árin átti Kaupfélagið 25% hlut. Það vildi ekki selja og raunar vildi það kaupa allt hótelið en sem bet- ur fer varð ekki af því. Kaupfélagið hefur dreg- ið saman seglin. En ég er hér enn.“ Tilviljanir réðu för Það er hins vegar nokkur saga að baki þeirri tilviljun, sem Pétur kallar svo, að hann hafi gerst hóteleigandi í Borgarnesi. Hann hefur reyndar lengst sinnar ævi haft tengsl við stað- inn enda var hann fimm ára gamall þegar for- eldrar hans fluttu þangað í upphafi seinna stríðs, 1939. „Ég er fæddur vestur í Hraunhreppi. Fjöl- skyldan flutti í Borgarnes og ég fór svo til Danmerkur 1952 til að læra mjólkurfræði. Ég kom svo heim og réði mig til mjólkurbúsins. Þar vann ég til ársins 1965 þegar ég keypti Botnsskála í Hvalfirði.“ Þegar Pétur er spurður hvað hafi orðið til þess að hann venti kvæði sínu svo gjörsamlega í kross verður karlinn nokkuð fjarrænn á svip- inn. „Það er ekki gott að segja hvernig maður dettur inn í svona. Mjólkurfræðingar voru hins vegar illa launaðir á þessum tíma og auk þess voru þeir illa þokkaðir. Þeir voru á litlu hærri launum en verkamenn og voru því oft í verkföllum í tilraunum til að bæta kjör sín. Við vorum kallaðir óvinir bænda. Ég var orð- inn þreyttur á þessu og þegar ég var eitt sinn á ferð milli Borgarness og Reykjavíkur sá ég Botnsskála auglýstan til sölu og sló til.“ Þeir urðu svo fleiri skálarnir því upp úr 1980 keypti Pétur einnig Hreðavatnsskála í Norð- urárdal og einhenti sér í reksturinn þar upp frá. Leigði hann Botnsskála út en á hann raun- ar enn þótt hann megi muna fífill sinn fegurri. Starfsemin í Hvalfjarðarbotni lagðist af þegar göngin undir fjörðinn voru tekin í notkun árið 1998. Þurfti að stækka hótelið En aftur að hótelinu sem síðustu ár hefur vermt sæti á listanum yfir Framúrskarandi fyrirtæki. Reksturinn á því reyndist allt öðru- vísi en veitingaþjónustan sem Pétur þekkti orðið út og inn. „Ég taldi mig auðvitað skilja þetta allt en það kom í ljós að svo var ekki. Ég las mér tals- vert til og áttaði mig á að hótelið var alltof lít- ið eða aðeins um 36 herbergi. Til þess að hótel sér rekstrarhæf eining þurfa herbergin helst að vera 80 til 100. Ég ákvað því að stækka hótelið árið 1995 og ágætur bankamaður taldi mig hafa dottið á höfuðið. Kannski gerði ég það,“ segir Pétur og eins og endranær er stutt í brosið. „Ég ætlaði raunar bara að fjölga herbergj- unum um 16 í þessum áfanga. En þau urðu 32. Það var góður bankastjóri hér í bænum á þess- um tíma sem tryggði það. Það vildi þannig til að nýbyggingin var reist úr einingum frá Loft- orku og það fyrirtæki var líka í kröggum. Það hentaði því bankanum vel að lána mér fyrir stærri byggingu og auka með því umsvifin hjá iðnfyrirtækinu í bænum.“ Keypti kaupfélagshúsið Pétur hefur hins vegar ekki látið þar við sitja og það hlaut að koma að því að hann myndi ná upp í lágmarksfjölda herbergja mið- að við það sem hann hafði áður lesið um. Árið 2015 réðist hann í kaup á gamla kaupfélags- húsinu sem stendur gegnt hótelinu við Egils- götu. Það hafði fyrir löngu hætt að þjóna sem höfuðstöðvar kaupfélagsins en þess í stað verið breytt í fjölbýlishús. „Það var allt gert af vanefnum og við höfum þurft að endurbyggja þetta allt. Sumar íbúð- irnar höfum við tekið í gegn en öðrum höfum við breytt í hótelherbergi. Nú erum við með um 100 herbergi og íbúðir til útleigu og getum hýst á bilinu 170 til 180 gesti á hverjum tíma.“ Gangurinn í starfseminni hefur verið góður síðustu ár en Pétur segir að rekstrarumhverfið hafi reynst mjög krefjandi síðustu tvö til þrjú árin. „Við erum ekki ódýr lengur eins og við vor- um fyrst eftir bankahrunið. Launin eru sömu- leiðis orðin mjög há og mér er sagt að í þessum geira séu þau hvergi hærri í heiminum. Launa- kostnaður hótela má helst ekki vera yfir 30% en er núna víðast hvar á landsbyggðinni í kringum 50%.“ Og hann segir að þetta umhverfi kalli á út- sjónarsemi og að sífellt þurfi að rýna í kostn- aðinn. „Það þarf að skipuleggja sig mjög vel og halda kostnaði niðri án þess að það komi niður á þjónustunni. Þar þarf sífellt að sækja fram til þess að orðsporið haldist gott. Það er stór- hættulegt að spara á því sviði en einnig í söl- unni því það er fljótt að koma niður á mönnum. En þetta hefur tekist enda hef ég verið hepp- inn með starfsfólk. Það skiptir öllu máli enda snýst þessi þjónusta ekki um eitthvert viðmót í tölvum, heldur persónulegt viðmót sem trygg- ir góða upplifun gesta, m.a. í tengslum við upp- lýsingagjöf um hvað er á döfinni eða það sem fólk vill skoða í nágrenninu.“ Stóru hóparnir hafa nær horfið Á hótelinu eru í dag um 25 stöðugildi en Pét- ur segir að þeim fækki nokkuð yfir vetrartím- ann. Hann segir að rekstrarumhverfið á lands- byggðinni hafi tekið miklum breytingum í hittiðfyrra. „Þá hættu þessir stóru hópar, sem töldu kannski 30 til 35 manns að koma. Þeir gufuðu bara upp. Það voru mjög mikilvægir hópar fyr- ir okkur sem rekum hóteli úti á landi. Þess í stað erum við meira með lausatraffík, fólk á bílaleigubílum og slíkt.“ Hann segir raunar að höggið sem hafi komið á ferðaþjónustuna hafi ekki komið réttilega fram í opinberum tölum um gistinætur. „Það var svo mikil svört atvinnustarfsemi í kringum þennan geira, ekki síst Airbnb og hvað það heitir nú allt saman. Sú starfsemi dróst held ég mjög harkalega saman og það kemur ekki fram í opinberum mælingum. Við fundum meira fyrir þessu með lækkandi verði á gistinóttunum.“ Pétur segir að atvinnurekendur þurfi ekki aðeins að takast á við mikinn launakostnað. Opinber gjöld séu einnig há og hafi hækkað, m.a. mótframlag atvinnurekenda í lífeyr- issjóði. Hann er ekki sérstakur áhugamaður um þær stofnanir. „Ég hef lengi haft fyrirvara á þeim og finnst þeir skila litlu til þeirra sem til þeirra greiða. Ég held að ég sé miklu betur í stakk búinn til að halda utan um mína peninga en að senda þá til einhvers annars sem týnir þeim.“ Keypti hótelið í Hólminum Lífeyrissjóðirnir hafa reyndar ekki þurft að hafa miklar áhyggjur af Pétri persónulega, enda er hann enn að störfum, átján árum eftir að hann gat farið á lífeyri. Hann segir raunar að samfélagið þrýsti á fólk að hætta að vinna. „Ég keypti Hótel Stykkishólm árið 2004 og tók það í gegn, byggði við það. En ég seldi það svo 2007 þegar ég var 72 ára og það var fyrst og fremst vegna þess að það var sífellt verið að segja mér að ég væri orðinn gamall og ætti að hætta að standa í þessu. Ég sé eftir því að hafa hlustað á það því ég seldi hótelið rétt fyrir upp- sveifluna miklu. En það kemst enginn í gegn- um lífið án þess að gera einhver mistök.“ Þegar Pétur er spurður nánar út í verkefnið í Stykkishólmi viðurkennir hann að hann hafi grætt nokkuð á því og hann undirstrikar um leið að hann þurfi ekki að gráta þær ákvarð- anir sem hann tók í Hólminum. Enn með stórtækar hugmyndir Pétur segir syni sína bera hitann og þung- ann af rekstrinum í dag og að hann sé smátt og smátt að læra að sleppa hendinni. En það er ekki þar með sagt að hann sé ekki með mörg járn í eldinum. Hann keypti fyrir nokkrum ár- um gamla mjólkursamlagshúsið í gamla bæn- um í Borgarnesi sem teiknað var af Guðjóni Samúelssyni og er með stórtækar hugmyndir um framtíðarhlutverk þess. „Mig langar til þess að byggja þar upp eins- konar veðurfarssafn sem yrði helgað pólunum í norðri og suðri. Mig langar til að nefna það Pourquoi-Pas? eða Hvers vegna ekki?“ Heiti safnsins myndi þar með vísa til franska rannsóknarskipsins sem fórst úti fyrir Mýrum í ofsaveðri árið 1936. Það steytti á skerinu Hnokka og fórust með því 40 leiðang- ursmenn en aðeins einn lifði af. „Það fer vel á því að nefna veðurfarssafn í höfuðið á þessu skipi. Öll veður á Mýrum voru í mínu ungdæmi miðuð við veðrið þegar skipið fórst. „Var það verra eða skárra en Pourquoi- Pas?-veðrið?“ spurði fólk.“ Pétur segist ekki viss um hvenær hann komi safninu á laggirnar en hann hefur m.a. kallað veður- og fjölfræðingana Trausta Jónsson og Þór Jakobsson til ráðuneytis við sig um upp- bygginguna. „Ég þarf eiginlega að ráða ein- hvern í þetta með mér. Ég er orðinn of gamall til þess að standa í þessu einn,“ segir Pétur. Hann er þó ekki af baki dottinn, og klæjar að komast í enn eitt krefjandi verkefnið, rétt eins og árið 1965, þegar hann festi kaup á Botns- skála fyrir hálfgerða tilviljun. ses@mbl.is Lengdi bara í sólarhringnum 851. sæti HÓTEL BORGARNES Meðalstórt 380. sæti Pétur Geirsson Pétur Geirsson keypti Hótel Borgarnes árið 1990. Morgunblaðið/Stefán Einar Stefánsson
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.