Morgunblaðið - Sunnudagur - 27.10.2019, Blaðsíða 6
HEIMURINN
6 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 27.10. 2019
Stundum fær maður hugmyndir sem virkarosalega góðar við fyrstu sýn. Svo hugsarmaður aðeins og eftir smá stund kemst
maður að því að þetta væri sennilega eitthvað
sem væri ágætt að hugsa aðeins betur. Reyna
að átta sig á hvað gæti gerst og hvað gæti mögu-
lega farið úrskeiðis. Einfaldar lausnir eru nefni-
lega þegar á reynir ekki alltaf svo einfaldar.
Þetta hefði alveg verið pæling þegar stjórn-
endur Íslandsbanka fengu þá hugmynd að
hætta að auglýsa hjá fjölmiðlum sem eru ekki
með kynjahlutföll viðmælenda og fjölmiðla-
manna í lagi.
Sjálfur er ég algjörlega á því að það væri ósk-
andi að fjölmiðlar endurspegluðu nokkurn veg-
inn hlustendur sína, eða mögulega hlustendur,
því auðvitað er ekki útilokað að kynjahalli hafi
áhrif á það hver hlustar. Vissulega vitum við að
það eru fleiri karlar en konur í vinnu á að
minnsta kosti sumum fjölmiðlum. Það virðist
einnig nokkuð ljóst að karlar tala frekar við
karla, sem er óstuð, en á að vera hægt að laga
með því að hugsa kerfisbundið um að bóka kon-
ur og tala við fjölbreyttan hóp. Það er líka
örugglega farið að styttast í kröfuna um að
hausatalning snúist ekki bara um tvö kyn. Í
þeim veruleika sem við höfum búið í til þessa er
svo áhugavert að skoða myndasafn Hildar
Lilliendahl um það hvernig konur verða oft
nafnlausir aukaleikarar í fjölmiðlum.
Ef við tökum ljósvakamiðlana sem dæmi (því
það má einhvern veginn lesa það út úr þessu að
aðgerðunum sé fyrst og fremst beint að þeim),
þá getur fólk haft alls konar skoðanir á alls kon-
ar dagskrárgerðarmönnum, en ég held að við
getum verið sammála um að það er ekki
ákjósanlegt að hlusta bara á karla. Í raun er
skrýtið að það skuli enn vera svo að á vinsæl-
ustu útvarpsstöð landsins sé engin kona við
stjórnvölinn á venjulegum degi. Það er því
kannski ekki skrýtið að fólk verði þreytt á að
bíða eftir að eitthvað breytist og það er einmitt
ein af skýringunum sem gefnar voru á þessu út-
spili Íslandsbanka. Að þrátt fyrir markmið og
löggjöf og stefnur og hvað þetta nú allt heitir
hafi of lítið breyst á allt of löngum tíma.
En þá komum við að því sem er óþægilegt við
þetta. Almennt eiga fyrirtæki að ráða því hvort
þau auglýsa eða auglýsa ekki í einhverjum miðl-
um, af hvaða ástæðu sem er. En þarna ákveður
ríkisbanki (við megum ekki gleyma því að Ís-
landsbanki er í eigu ríkisins) að reyna að hafa
áhrif með því að beina viðskiptum sínum frá
fyrirtækjum sem eru honum ekki þóknanleg.
Sem er – og það er engin leið til að skilja það
öðruvísi – gert til að hafa áhrif á hvernig þessir
fjölmiðlar haga sér, en með lágmarksóþæg-
indum fyrir bankann samt.
Annars væri það örugglega þannig að bank-
inn hafnaði viðskiptum við fyrirtæki sem eru til
dæmis bara með karlmenn í vinnu eða ekki rétt
hlutfall karla og kvenna. Það væri sennilega
eðlilegt að þau fyrirtæki fengju ekki að græða á
viðskiptum sínum við bankann frekar en fjöl-
miðlar sem ekki haga sér eins og bankinn vill.
Ég held að
fæstum þyki sú
ákvörðun Donalds
Trumps aðdáun-
arverð að hvetja
ríkisstofnanir til
að segja upp
áskrift að NY
Times og Wash-
ington Post. Það
gerir hann til að
reyna að hafa áhrif á gagnrýna umræðu og lama
þá sem veita honum aðhald. Hjá bankanum er
þetta gert til að auka jafnrétti. Sem hljómar
miklu betur. En þegar öllu er á botninn hvolft er
þetta í raun aðferð til að hafa áhrif á fjölmiðla.
Mig langar ekki að vera með einhverja karl-
pungaskoðun, en ég er mjög hugsi yfir þessu.
Hvað ef þetta er ekki nóg? Bankinn ákveður
líka að auglýsa ekki hjá fjölmiðlum sem eru ekki
með jafnlaunavottun eða eru ekki nógu um-
hverfisvænir. Eða gerast bara sekir um eitthvað
sem lýsir því hvað fjölmiðlamenn geta verið
ófullkomnir. Það er svolítið ónotaleg tilhugsun.
En ef þetta er eina skrefið sem bankinn ætlar
að taka getur hann alltaf huggað sig við að það
er jú til fjölmiðill sem er að mestu rekinn í jöfn-
um hlutföllum. Eigendurnir og aðaldag-
skrárgerðarfólk stöðvarinnar eru nefnilega
hjón og reka Útvarp Sögu.
’En þarna ákveður ríkis-banki (við megum ekkigleyma því að Íslandsbanki er íeigu ríkisins) að reyna að hafa
áhrif með því að beina við-
skiptum sínum frá fyrirtækjum
sem eru honum ekki þóknanleg.
Á meðan ég man
Logi Bergmann
logi@mbl.is
Ritstjórinn í bankanum
Elsku hjartans ástsæli
Pétur Jóhann minn,
samkvæmt útreikn-
ingum mínum ert þú á
ári eitt, sem þýðir nýtt
upphaf. Þessu nýja upphafi fylgir
ný tíðni og sterk orka. Þú stendur
frammi fyrir mikilli blessun í þinni
nánustu framtíð og ef þú lítur svo-
lítið í eigin barm og í kringum þig
þá held ég að þú áttir þig á því að
þú hefur aldrei verið jafn opinn við
sjálfan þig og fjölskyldu þína eins
og akkúrat núna árið 2019.
Þegar þú varst ungur þá treyst-
irðu fáum og hafðir það ekki í
orkunni þinni að leyfa ástinni að
næra þig. Þess í
stað varstu 200%
pabbi og sannur
vinur þeirra sem
þú eignaðist á þín-
um yngri árum.
Í dag er hins
vegar komin mjög
mikil ró yfir sálu
þína og þér líður vel í sjálfum þér
og í því sem þú ert að gera. Þú get-
ur svo sannarlega treyst því að ný
tilboð sem eru komin eða eru að
koma munu festa niður öryggi þitt
til framtíðar.
Það er svolítið gaman að segja
frá því að samkvæmt minni talna-
speki ertu talan átta. Áttan táknar
upphafið og endalokin eða eilífðina.
Drengir sem hafa þessa tölu er sér-
staklega heppnir, þar sem þeir eru
með bráðgeran huga og oft og tíð-
um með magnaða og mikla virkni
svo þeir þjóta í hugsunum á ljós-
hraða. Einmitt þess vegna hentar
það þér og öðrum sem eru blessaðir
með þessum krafti að vera sjálf-
stæður, starfa sjálfstætt, raða tím-
anum þínum sjálfur og skapa eigin
örlög.
Það er mjög algengt að strákar
með töluna átta hætti snemma í
skóla því þeir nenna ekki að sitja
kyrrir. Ég held því að það sé mikil
blessun að þú þrælaðist ekki í
gegnum leiklistarskólann því þá
hefðir þú ekki verið eins og magn-
aður og þú ert í dag.
Ég hef alltaf
haft þá sterku til-
finningu gagnvart
þér að við séum
svolítið lík þar
sem ég er tarfur
eins og þú og að í
þér búi tvær per-
sónur, grínistinn
og hellisbúinn sem elskar friðinn,
konuna, börnin og sunnudagssteik-
ina. Þetta góða jafnvægi þitt er að
gera það að verkum að fjölskyldan
er að dafna vel og stækka. Taktu
stundum áhættu og haltu áfram að
segja já – það kemur þér þráðbeint
á þann stað sem þú átt skilið að
vera á.
Ást, Sigga Kling
Stjörnumerki Pétur Jóhanns er naut
Morgunblaðið/Árni Sæberg
’Taktu stundumáhættu og haltuáfram að segja já – þaðkemur þér þráðbeint á
þann stað sem þú átt
skilið að vera á.
PÉTUR JÓHANN SIGFÚSSON
LEIKARI
21. APRÍL 1972
Með magnaða
og mikla virkni
DUXIANA Reykjavik | Ármuli 10 | Reykjavik | +354 5 68 99 50 | www.duxiana.is
GÆÐI OG ÞÆGINDI
SÍÐAN 1926
DUX 6006 - SVÆÐISMEÐFERÐ
Í örfáum einföldum skrefum geturðu sett upp rúmið þitt til að mæta þörfum þínum.