Morgunblaðið - Sunnudagur - 27.10.2019, Blaðsíða 19
Halldóra Sif, sem er menntaður fata-hönnuður, rekur eigið fylgihluta-merki, Sif Benedicta.
Sif Benedicta sérhæfir sig í lúxus-leðurhand-
töskum og skarti, þá helst eyrnalokkum, háls-
menum, hárspennum og silkislæðum. Þessa
dagana er í miklu að snúast hjá fjölskyldunni
þar sem yngsta daman er einungis sex vikna
gömul en þau fluttu inn þegar Halldóra gekk
með hana. Fjölskyldan kann einkar vel við sig í
Mosfellsbænum. „Við erum bæði úr Mosó og
fjölskyldur okkar beggja megin búa þar, þannig
að það kom enginn annar staður til greina. Það
sem heillaði okkur við húsið sem við keyptum
var gott skipulag og útsýni. Við vorum líka mjög
spennt fyrir því að hanna og gera allt sjálf.“
Halldóra segist vera mjög hrifin af formum
og litum frá art deco-tímabilinu. „Ég vil ekki
hafa of mikið dót í kringum mig, þannig að hver
og einn hlutur fær sitt pláss og sinn tilgang og
nýtur sín.“
Spurð hvernig hún myndi lýsa stílnum á
heimilinu segir hún hann mínímalískan en á
sama tíma litríkan. „Ákveðin blanda af ítölskum
og skandinavískum stíl. Svo er ég mjög hrifin af
belgíska innanhússhönnuðinum Frederic
Kielemoes.“
Fjölskyldan flutti inn í byrjun mars á þessu
ári, en þau keyptu húsið á byggingarstigi 5.
„Við máluðum og innréttuðum allt húsið sjálf
en fengum sérfræðinga með okkur í lið, eins og
pípara, flísara, rafvirkja og stálsmið.
Ég fékk að hanna allt og maðurinn minn er
mjög handlaginn og pabbar okkar beggja hjálp-
uðu okkur mjög mikið. Það er mikilvægt að eiga
handlagna menn.“
Halldóra segir að við innréttingu heimilis sé
mikilvægt að fá innblástur áður en hafist er
handa. Skoða og rannsaka hvað er hægt að gera
úr hverju og einu rými þannig að rýmið þjóni til-
gangi sínum en sé líka fallegt.
„Mikilvægt er að gera grunninn góðan svo
hægt sé að byggja ofan á hann. Fá prufur og
máta hvaða efni passa vel saman. Finna út hvar
er hægt að spara og hvar vill maður eyða. Hvað
þarf að endast lengi og maður vill ekki að sjái á
því. Sumt verður fallegt með tímanum, t.d. eins
og flotaða gólfið það má alveg rispast og gefur
bara sjarma finnst mér. Allir mega labba inn á
hælum.“ Þá segist hún jafnframt vera lítið fyrir
bráðabirgðalausnir. „Ég vil heldur gera hlutina
vel og eins og þeir eiga að líta út og bíð þá frekar
þangað til maður á efni á því.“
Spurð hvar hún versli helst inn á heimilið seg-
ir Halldóra Snúruna og Módern vera eftirlætis
verslanir sínar hérlendis. „En mér finnst líka
mjög gaman að finna hluti á mörkuðum eins og
Góða hirðinum og Rauðakrossbúðum. Einnig
finnst mér gaman að fara í innanhúsbúðir þegar
ég er að ferðast.“
Hjónin eru sammála um að borðstofan/
eldhúsið þar sem kaffið er drukkið á morgnana
sé eftirlætisstaður þeirra á heimilinu en að
griðastaður fjölskyldunnar sé við borðstofu-
borðið. „Þar sitjum við öll saman og borðum
bæði morgunmat og kvöldmat og ræðum hvern-
ig dagurinn var hjá okkur. Einnig spilum við og
teiknum mikið saman.“
Spurð að lokum hvort eitthvað sé á óskalist-
anum inn á heimilið segir Halldóra að sig langi í
barstóla. „Ég er mjög hrifin af Norman Copen-
hagen barstólum. Þeir eru með fallegt, einfalt
form og eru þægilegir. Þá er hægt að fá í alls
konar litum en ég held að ég taki svarta með lát-
únsfótum.“
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Eldhúsið er opið og bjart. Svarti
liturinn á innréttingunni er ein-
staklega fallegur við látúnið.
Mínímalískt
og litríkt í
Mosfellsbæ
Halldóra Sif Guðlaugsdóttir og Kristinn Pétursson búa ásamt börnunum sínum þremur: Guðlaugi
Benjamín, Ástu Maríu og Guðleif Klöru og hundinum Ronju í glæsilegu raðhúsi í Mosfellsbæ.
Sigurborg Selma Karlsdóttir sigurborg@mbl.is
Halldóra Sif segir stílinn mínímalískan en litríkan.
27.10. 2019 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 19