Morgunblaðið - Sunnudagur - 27.10.2019, Blaðsíða 28
28 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 27.10. 2019
LESBÓK
GLYS „Fólk klappar þegar ég kveðst vera 73 ára og ég
velti fyrir mér hvort það sé vegna þess að ég er ennþá á
lífi,“ segir hin síunga söngkona Cher á tónleikum sínum
um þessar mundir. „En alltént,“ heldur hún áfram.
„Hvað er amma þín að gera í kvöld?“
„Ég er ekki viss,“ svarar Alexis Petridis í um-
sögn um tónleika Cher í Lundúnum í breska
blaðinu The Guardian, „en hún stendur alveg örugg-
lega ekki uppi á vélknúnum fíl með uppljómaðar tennur
og augu að syngja eins konar fönkútgáfu af gamla sanskrít-
arsálminum Gayatri Mantra.“ Annars er Petridis hæstánægður
með tónleikana, gefur þeim fjórar stjörnur af fimm, og segir
Cher engu hafa gleymt, auk þess sem röddin sé eins og best
verður á kosið.
Hvað er amma þín að gera?
Cher á tónleikum
í Austurríki fyrr í
mánuðinum. AFP
HEILSA Aðdáendur gítargoðsins Eddies Van
Halens hafa vaxandi áhyggjur af heilsufari
hans eftir að bandaríski slúðurvefurinn TMZ
fullyrti að hann gengist nú undir meðferð
vegna krabbameins í hálsi. Talsmaður hljóm-
sveitar hans, Van Halens, vildi ekki tjá sig um
málið þegar eftir því var leitað. Langt er síð-
an Eddie hefur komið fram opinberlega og
fyrir skemmstu sagði David Lee Roth, söngv-
ari Van Halen, að hann teldi ólíklegt að upp-
runalegir meðlimir sveitarinnar myndu
koma saman á ný í fyrsta skipti í 35 ár, eins
og fyrirhugað var árinu. Eddie hefur glímt
við margvíslegan heilsubrest gegnum tíðina.
Hafa áhyggjur af heilsu Van Halens
David Lee Roth og Eddie Van Halen (t.h.)
Reuters
Cristina Scabbia rokkar feitt.
Virðingin fer
þverrandi
VIRÐING Cristina Scabbia, söng-
kona ítalska goþþmálmbandsins
Lacuna Coil, segir í samtali við
sjónvarpsstöðina Capital Chaos að
tónlist njóti ekki sömu virðingar
hjá alþýðu manna eftir að efnis-
veitur tóku við af gömlu góðu plöt-
unni. „Nú streyma menn öllu og
efni lekur út vegna þess að ein-
hverjir delar eru að dreifa því ólög-
lega án minnstu virðingar fyrir
listamönnunum þegar sérhvert lag,
sérhver plata hefur að geyma list
og hjarta listamannsins. Ég vildi
óska þess að virðingin væri meiri.
Það er allt og sumt,“ segir Scabbia
sem man tímana tvenna en Lacuna
Coil heldur upp á 25 ára starfs-
afmæli sitt á þessu ári.
Mér finnst þær leiðinlegar.Þær eru gerðar eins ogverslunarvara … eins og
hamborgarar … Þetta snýst um að
framleiða vöru sem færir stóru fyrir-
tæki gróða – þær eru kaldhæðnis-
legar æfingar. Þær eru markaðs-
æfingar og hafa ekkert með
kvikmyndalist að gera.“
Þær voru heldur kaldar kveðj-
urnar sem hinn gamalreyndi breski
leikstjóri Ken Loach sendi ofur-
hetjumyndum í samtali við dag-
blaðið The Guardian á dögunum
þegar hann var að kynna sína nýj-
ustu kvikmynd, Sorry We Missed
You, en hún fjallar um blásnauðan
sendibílstjóra í fásinninu í New-
castle-upon-Tyne á Norður-
Englandi. Lengra frá ofurhetjunum
er líklega ekki hægt að komast.
Ofurhetjumyndir hafa sem kunn-
ugt er farið með himinskautum und-
anfarin ár og misseri og ekkert lát
virðist á gerð slíkra mynda. Kannski
engin furða enda streyma áhorf-
endur sem aldrei fyrr á þær; þannig
varð Avengers: Endgame tekju-
hæsta kvikmynd sögunnar fyrr á
þessu ári. Fyrir á topp tíu voru þrjár
aðrar myndir úr seríunni sem allar
heyra til Marvel-merkinu sem einn-
ig hefur gert myndir á borð við
Black Panther, Iron Man, Captain
America, Deadpool, Guardians of
the Galaxy og hvað þær nú allar
heita.
En þetta er ekki bíó
Loach er ekki fyrsti leikstjórinn af
gamla skólanum til að hnýta í ofur-
hetjumyndirnar. „Ég hef reynt, þið
vitið,“ svaraði Martin Scorsese, sem
leikstýrt hefur myndum á borð við
Taxi Driver, Raging Bull og Good-
fellas, í samtali við Empire magazine
nýlega þegar spurt var hvort hann
hefði séð Marvel-myndirnar. „En
þetta er ekki bíó.“
Og Scorsese hélt áfram: „Satt
best að segja komast þær í mínum
huga næst því að vera skemmti-
garðaefni, eins vel gerðar og þær
eru og eins vel og leikararnir standa
sig miðað við aðstæður. Þetta er
ekki bíó þar sem manneskja reynir
að miðla tilfinningalegri og sál-
fræðilegri upplifun til annarrar
manneskju.“
Undir þetta sjónarmið tók enn
einn gamalreyndur verðlaunaleik-
stjóri, Francis Ford Coppola, þegar
hann veitti Lumière-verðlaununum
fyrir framlag sitt til kvikmyndasög-
unnar viðtöku í Frakklandi á dög-
unum. Og gekk raunar skrefinu
lengra.
„Þegar Martin Scorsese segir að
Marvel-myndirnar séu ekki bíó hefur
hann á réttu að standa vegna þess að
við göngum út frá því að við lærum
eitthvað af kvikmyndum; við reikn-
um með að koma ríkari út, hvort sem
það er fræðsla, þekking eða inn-
blástur,“ sagði Coppola og bætti við:
„Ég átta mig ekki á því hvort ein-
hver fær eitthvað út úr því að
horfa aftur og aftur á sömu
myndina. Martin var í raun
mjög almennilegur þegar hann sagði
Fjöldi ofurhetja kemur
við sögu í hinni vinsælu
Avengers: Endgame.
Ofurhetjur
eins og ham-
borgarar
Gamalreyndir verðlaunaleikstjórar skjóta föstum
skotum að ofurhetjumyndum sem tröllríða kvik-
myndahúsum þessa heims nú um stundir og líkir
Ken Loach þeim meðal annars við hamborgara og
Francis Ford Coppola segir þær auvirðilegar.
Orri Páll Ormarsson orri@mbl.is
Ken Loach James GunnMartin ScorseseFrancis Ford Coppola
Góð
heyrn
glæðir samskipti
ReSound LiNX Quattro
eru framúrskarandi heyrnartæki
Hlíðasmára 19 • 201 Kópavogur • Sími 534 9600 • heyrn.is
Erum flutt í
Hlíðasmára 19
Fagleg þjónusta hjá
löggiltum heyrnarfræðingi
Með þeim færðu notið minnstu smáatriða hljóðs sem berst þér til eyrna.
Í þeim er nýr örgjörvi með 100% meiri hraða, tvöfalt stærra minni og eru
sérlega sparneytin.
Tækin eru heyrnartól fyrir þráðlaust streymi úr síma og öðrum tækjum.
Hægt að stjórna allri virkni með appi eða með takka á tækjum. Eru með
rafhlöður, sem hlaðast þráðlaust á einfaldan hátt, eða með einnota rafhlöður.