Morgunblaðið - Sunnudagur - 27.10.2019, Blaðsíða 29
að þetta væri ekki bíó. Hann sagði
ekki að þessar myndir væru auvirði-
legar, eins og ég segi að þær séu.“
Ekki allir afar okkar hrifnir
Aðstandendur ofurhetjumyndanna
hafa að vonum ekki setið
þegjandi og hljóða-
laust undir þess-
ari ádrepu.
Þannig svar-
aði James
Gunn, leikstjóri Guardians of the
Galaxy, fyrir sig á samfélagsmiðl-
inum Instagram og benti Scorsese
og Coppola á að ekki hefðu allir
„afar okkar“ verið jafn hrifnir af
glæponamyndunum, sem þeir fé-
lagar eru frægastir fyrir, og jafnvel
sagt þær „auvirðilegar“. Þá hafi
mörgum „langöfum okkar“ þótt allir
gömlu vestrarnir meira og minna
eins. „Ofurhetjurnar eru einfaldlega
glæpona/kúreka/geimævintýri
okkar tíma. Sumar ofur-
hetjumyndir eru hræðilegar,
aðrar fallegar. Það er eins
með vestrana og glæp-
onamyndirnar (og þar á
undan, bara MYND-
IR) það munu aldrei
allir kunna að meta
þær, ekki einu
sinni sumir snill-
ingar. Og það er
bara allt í lagi,“
skrifar Gunn.
Gamora hin ógur-
lega úr Guardians
of the Galaxy.
Marvel Studios
27.10. 2019 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 29
SÉRBLAÐ
NÁNARI UPPLÝSINGAR GEFUR:
Katrín Theódórsdóttir
Sími: 569 1105 kata@mbl.is
fimmtudaginn 28. nóvember
Við komum víða við í ár, heimsækjum
fjölda fólks og verðummeð fullt af
spennandi efni fyrir alla aldurshópa.
Morgunblaðsins kemur út
Jólablað
BÍÓ „Hve nakinn getur maður ver-
ið í Disney-mynd?“ spyr breski leik-
arinn Sam Riley í bráðskemmtilegu
viðtali í breska blaðinu The Indep-
endent. Tilefnið er að í fyrri Mal-
eficent-myndinni þá breytir að-
alsöguhetjan karakter hans,
Diaval, úr hrafni í mann. Snarpar
umræður spunnust um það hvort
atriðið kallaði ekki á nekt en á end-
anum var Riley mynstraður upp
með gervi „six-pack“ og leðju sem
huldi það allra heilagasta. „Ég hef
aldrei litið betur út,“ segir hann.
Hve nakinn getur maður verið?
Sam Riley fisléttur á rauða dreglinum.
AFP
BÓKSALA 16.-22. OKTÓBER
Listinn er tekinn saman af Eymundsson
1 Um tímann og vatnið Andri Snær Magnason
2 Hvítidauði Ragnar Jónasson
3 Helköld sól Lilja Sigurðardóttir
4 Ströndin endalausa Jenny Colgan
5 Friðbergur forseti Árni Árnason
6
Kjarval – málarinn sem
fór sínar eigin leiðir
Margrét Tryggvadóttir
7 Jólasysturnar Sara Morgan
8 Vinsælustu uppskriftirnar Gunnar Már Sigfússon
9
Rannsóknin á leyndar-
dómum Eyðihússins
Snæbjörn Arngrímsson
10 Aisha Jesper Stein
1 Friðbergur forseti Árni Árnason
2
Kjarval – málarinn sem
fór sínar eigin leiðir
Margrét Tryggvadóttir
3
Rannsóknin á leyndar-
dómum Eyðihússins
Snæbjörn Arngrímsson
4 Tvistur og Basta Roald Dahl
5 Múmínálfarnir – stórbók 2 Tove Janson
6 Bók um bý Piotr Socha
7 Frozen – sögusafn Walt Disney
8 Slæmur pabbi David Walliams
9 Toy Story – sögusafn Walt Disney
10 Villinorn 3 – hefnd Kímeru Lene Kaaberbøl
Allar bækur
Barnabækur
Ég er alltaf með bunka af bókum
á náttborðinu og skipti oft á milli
bóka eftir stuði og stemningu.
Þar sem ég starfa í bókasafni og
er að handleika bækur allan dag-
inn ber ég heim með mér alls
konar bækur og gauka líka að
heimilisfólkinu bókum sem mér
finnst þau ættu að lesa. Ég les
alltaf áður en ég fer að sofa og
finnst það vera mín afslöppun
þar sem ég hverf inn í sagnaheim
bókmenntanna.
Ég hef alltaf lesið mikið og sem
barn og unglingur las ég allar
bækur sem til voru á heimilinu,
hvort sem það voru sjómanna-
sögur, ævisögur, dulspeki eða
Öldin okkar eins og hún lagði sig.
Í dag er ég aðeins farin að fikra
mig áfram með
Rafbókasafnið og
sæki þangað bæk-
ur á ensku sem ég
hlusta svo á þegar
farið er í göngu-
túr. Ég myndi
segja að smekkur
minn á bókum
væri frekar fjölbreyttur því ég
stekk á milli skáldsagna, ævi-
sagna, fræðibóka og jafnvel ljóða-
bóka.
Þar sem ég er núna í námi í já-
kvæðri sálfræði litast skammt-
urinn á náttborð-
inu svolítið af því.
Má þar nefna
Positive Psycho-
logy eftir Kate
Hefferon og Ilonu
Boniwell, Í nánd-
inni eftir Guð-
brand Árna Ís-
berg og Enn meiri hamingja eftir
Tal Ben-Shahar. Svo var ég að fá
í hendurnar nýútkomna bók sem
heitir Nútvitund í dagsins önn
eftir Bryndísi Jónu Jónsdóttur
sem er einmitt einn af kennurum
mínum í nám-
inu. Gaman að
því hvernig nám
getur leitt
mann inn á nýj-
ar lestrar-
brautir.
Að mínu
mati hefðu allir gott af því að
lesa Fátækt fólk eftir Tryggva
Emilsson og Ver-
öld sem var eftir
Stefan Zweig.
Þetta eru bækur
sem ég les alltaf
reglulega og
minna mann á
hvað lífið getur
verið hverfult.
Ég les mikið af glæpasögum
eftir íslenska og erlenda höfunda.
Möguleg ástæða fyrir því gæti
verið forvitni mín en ef fléttan er
góð geta sögurnar stundum verið
svo spennandi að það er ekkert
staðið upp fyrr en bókin er búin.
Fram undan er einn skemmti-
legasti tími ársins í bókasafninu
þegar nýjar bækur streyma inn á
hverjum degi. Þá verður maður
mjög spenntur að
komast í nýju bæk-
urnar og sökkva
sér í töfraheiminn.
Ég ætla núna að
skella mér til
Kaupmannahafnar
og bækurnar Keðj-
an eftir Adrian
McKinty og Ströndin endalausa
eftir Jenny Colgan fá að fljóta
með.
STEFANÍA GUNNARSDÓTTIR ER AÐ LESA
Alltaf bunki á náttborðinu
Stefanía Gunn-
arsdóttir er
forstöðumað-
ur Bókasafns
Reykjanes-
bæjar.