Morgunblaðið - Sunnudagur - 27.10.2019, Blaðsíða 10
LJÓSMYNDUN
10 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 27.10. 2019
Langar þig í ný gleraugu!
Það fyrsta sem Marilyn Monroe
leikkona tók eftir þegar hún
hitti Arthur Miller rithöfund,
voru gleraugun!
Smáralind – Sími 517 0317 – www.plusminus.is
PLUSMINUS | OPTIC
Velkomin til okkar
Landslagið hefur ávallt verið viðfangsefniljósmyndarans Christophers Lund semnú hefur gefið út bók með verkum sín-
um. Sum verkanna eru til sýnis í Gallerí Grá-
steini og lóðsar Christopher blaðamann um
sýninguna. Þar má sjá ýmis sjónarhorn hinnar
stórfenglegu íslensku náttúru.
„Bókin heitir Iceland, contrasts in nature og
mér fannst gaman að halda sýningu í leiðinni.
Bókin er kannski frábrugðin mörgum öðrum
ljósmyndabókum. Það er nánast enginn texti
og svo eru sumar myndanna meira abstrakt en
hefðbundnar landslagsljósmyndir,“ segir
hann.
Áður óséð svæði
Christopher er ekki einungis ljósmyndari,
heldur líka leiðsögumaður og vinnur einnig að
prentun ljósmynda fyrir fagfólk.
„Þetta er mín fyrsta bók og í sjálfu sér mín
fyrsta sýning, sem er frekar kostulegt þar sem
ég hef prentað ótal sýningar fyrir aðra,“ segir
Christopher sem mun gefa tíu prósent af
ágóða bókarinnar til Landverndar.
„Ég er mikill umhverfisverndarsinni. Það
knýr mig áfram í þessari ljósmyndum að sýna
fólki hvað er til hérna í landinu. Það er erfitt að
ætla að vernda landsvæði sem fólk veit ekki af
og því finnst mér gaman að fólk sjái á myndum
mínum svæði sem það hefur ekki áður séð.“
Nærmyndir af náttúrunni
Í bókinni má finna myndir frá öllum lands-
hlutum en Christopher segir hálendið vera í
sérlegu uppáhaldi. Hann segist ekki hafa beðið
eftir hinni fullkomnu birtu eða besta veðri
heldur látið slag standa í alls konar aðstæðum.
„Ég myndaði í mismunandi birtuskilyrðum,
mismunandi veðri og á mismunandi árstíma.
Myndirnar spanna alveg tíu ára tímabil. Strax
eftir að ég kláraði leiðsögumannsnámið fór ég
að leiðsegja ljósmyndurum um landið og hef
því myndað mikið víða um land. Ég finn að í
dag er ég farinn að huga meira að formum og
litum í landslaginu og eru sumar myndanna
mínímalískar. Eins konar nærmyndir af nátt-
úrunni,“ segir Christopher og segir af nógu af
taka þegar Ísland er annars vegar.
„Ísland er stundum ekki bara land heldur er
það meira eins og pláneta.“
Ísland er eins
og pláneta
Ljósmyndarinn Christopher Lund gaf út sína fyrstu bók nýlega
og opnaði sýningu í leiðinni í Gallerí Grásteini á Skólavörðustíg.
Ásdís Ásgeirsdóttir asdis@mbl.is
Íslensk náttúra hefur allt-
af heillað Christopher
Lund ljósmyndara.
Morgunblaðið/Ásdís
Í bókinni má finna fjölbreytt úrval landslags-
mynda. Sumar mynda Christophers eru míni-
malískar og er þar lögð áhersla á form og liti.