Morgunblaðið - Sunnudagur - 27.10.2019, Síða 19

Morgunblaðið - Sunnudagur - 27.10.2019, Síða 19
Halldóra Sif, sem er menntaður fata-hönnuður, rekur eigið fylgihluta-merki, Sif Benedicta. Sif Benedicta sérhæfir sig í lúxus-leðurhand- töskum og skarti, þá helst eyrnalokkum, háls- menum, hárspennum og silkislæðum. Þessa dagana er í miklu að snúast hjá fjölskyldunni þar sem yngsta daman er einungis sex vikna gömul en þau fluttu inn þegar Halldóra gekk með hana. Fjölskyldan kann einkar vel við sig í Mosfellsbænum. „Við erum bæði úr Mosó og fjölskyldur okkar beggja megin búa þar, þannig að það kom enginn annar staður til greina. Það sem heillaði okkur við húsið sem við keyptum var gott skipulag og útsýni. Við vorum líka mjög spennt fyrir því að hanna og gera allt sjálf.“ Halldóra segist vera mjög hrifin af formum og litum frá art deco-tímabilinu. „Ég vil ekki hafa of mikið dót í kringum mig, þannig að hver og einn hlutur fær sitt pláss og sinn tilgang og nýtur sín.“ Spurð hvernig hún myndi lýsa stílnum á heimilinu segir hún hann mínímalískan en á sama tíma litríkan. „Ákveðin blanda af ítölskum og skandinavískum stíl. Svo er ég mjög hrifin af belgíska innanhússhönnuðinum Frederic Kielemoes.“ Fjölskyldan flutti inn í byrjun mars á þessu ári, en þau keyptu húsið á byggingarstigi 5. „Við máluðum og innréttuðum allt húsið sjálf en fengum sérfræðinga með okkur í lið, eins og pípara, flísara, rafvirkja og stálsmið. Ég fékk að hanna allt og maðurinn minn er mjög handlaginn og pabbar okkar beggja hjálp- uðu okkur mjög mikið. Það er mikilvægt að eiga handlagna menn.“ Halldóra segir að við innréttingu heimilis sé mikilvægt að fá innblástur áður en hafist er handa. Skoða og rannsaka hvað er hægt að gera úr hverju og einu rými þannig að rýmið þjóni til- gangi sínum en sé líka fallegt. „Mikilvægt er að gera grunninn góðan svo hægt sé að byggja ofan á hann. Fá prufur og máta hvaða efni passa vel saman. Finna út hvar er hægt að spara og hvar vill maður eyða. Hvað þarf að endast lengi og maður vill ekki að sjái á því. Sumt verður fallegt með tímanum, t.d. eins og flotaða gólfið það má alveg rispast og gefur bara sjarma finnst mér. Allir mega labba inn á hælum.“ Þá segist hún jafnframt vera lítið fyrir bráðabirgðalausnir. „Ég vil heldur gera hlutina vel og eins og þeir eiga að líta út og bíð þá frekar þangað til maður á efni á því.“ Spurð hvar hún versli helst inn á heimilið seg- ir Halldóra Snúruna og Módern vera eftirlætis verslanir sínar hérlendis. „En mér finnst líka mjög gaman að finna hluti á mörkuðum eins og Góða hirðinum og Rauðakrossbúðum. Einnig finnst mér gaman að fara í innanhúsbúðir þegar ég er að ferðast.“ Hjónin eru sammála um að borðstofan/ eldhúsið þar sem kaffið er drukkið á morgnana sé eftirlætisstaður þeirra á heimilinu en að griðastaður fjölskyldunnar sé við borðstofu- borðið. „Þar sitjum við öll saman og borðum bæði morgunmat og kvöldmat og ræðum hvern- ig dagurinn var hjá okkur. Einnig spilum við og teiknum mikið saman.“ Spurð að lokum hvort eitthvað sé á óskalist- anum inn á heimilið segir Halldóra að sig langi í barstóla. „Ég er mjög hrifin af Norman Copen- hagen barstólum. Þeir eru með fallegt, einfalt form og eru þægilegir. Þá er hægt að fá í alls konar litum en ég held að ég taki svarta með lát- únsfótum.“ Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Eldhúsið er opið og bjart. Svarti liturinn á innréttingunni er ein- staklega fallegur við látúnið. Mínímalískt og litríkt í Mosfellsbæ Halldóra Sif Guðlaugsdóttir og Kristinn Pétursson búa ásamt börnunum sínum þremur: Guðlaugi Benjamín, Ástu Maríu og Guðleif Klöru og hundinum Ronju í glæsilegu raðhúsi í Mosfellsbæ. Sigurborg Selma Karlsdóttir sigurborg@mbl.is Halldóra Sif segir stílinn mínímalískan en litríkan. 27.10. 2019 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 19

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.