Morgunblaðið - Sunnudagur - 27.10.2019, Qupperneq 12
Hringur eins og hosuklemma
Krummi er feginn að hann tók stökkið og lét
draum sinn rætast. „Áður vann ég fullan
vinnudag og klæjaði í puttana að komast í
handverk, sem ég gerði svo á kvöldin. Nú fæ
ég að vinna við það sem mér finnst skemmti-
legast að gera,“ segir Krummi en hann keypti
sig inn í gullsmíðafyrirtækið Vivaskart í jan-
úar. Þar halda þeir meðeigendur, Krummi og
Vífill Valgeirsson, námskeið í silfursmíði.
„Við höldum námskeið fyrir byrjendur og
allt upp í reyndara fólk. Það er mjög gefandi
að hjálpa fólki að smíða eitthvað sem er glans-
andi flott og fallegt. Það geta allir smíðað,“
segir Krummi en þess má geta að þeir halda
mörg námskeið í viku hverri.
„Svo er ég núna að koma út línu, undir
merkinu Laupur Design, en laupur er hreiður
hrafnsins. Ég var hálfpirraður að Krummi er
orðið svona mikið tískumerki og gat því ekki
notað það nafn,“ segir hann.
„Ég hef verið að hanna eldgosakertastjaka
og svo er ég að koma með línu þar sem ég
vinn hálsmen og eyrnalokka úr náttúru-
steinum og silfri. Meðfram þessu vinn ég að
nördalínunni minni. Ásamt þessu tek ég að
mér sérpantanir sem er oft það skemmtileg-
asta. Þá hanna ég skart í samvinnu við kaup-
andann.“
Hvað er það skrítnasta sem einhver hefur
pantað hjá þér?
„Einu sinni pantaði kona hring sem átti að
vera eins og hosuklemma, en hún vildi gefa
manninum sínum hann. Þetta er eins og
klemma sem er notuð til að festa garðslöngu á
stút. Ég smíðaði sem sagt hosuklemmu úr
gulli.“
„Mjög nýlega gekk ég til
liðs við klúbb eða félag sem
heitir 501. hersveitin, eða
501st legion, sem er fé-
lagsskapur karla og kvenna
sem eiga Star Wars-búninga.
Þetta eru alþjóðasamtök en
það er til Íslandsdeild og eru
þetta fyrst og fremst góðgerð-
arsamtök en við höfum safnað
fyrir Einstökum börnum til að
mynda. Og þegar tilefni er til
klæðum við okkur upp í bún-
ingana, en þeir verða að
vera alvöru,“ segir
hann.
„Ég á búning sem
heitir Royal Guard.
Í myndunum eru
þetta rauðu lífverðir
keisarans sem
standa þarna í rauð-
um kuflum með rauða
hjálma, ofboðslega flott-
ur. Hjálminn pantaði ég á
Amazon en búninginn lét ég sauma
á mig erlendis. Svo hannaði ég
hring með áletrun og merki fé-
lagsins,“ segir hann.
„Við erum um fimmtán
manns hér á landi en bróðir
minn er með mér í þessu. Við
nördumst mikið saman bræð-
urnir.“
Kanntu allar Star Wars-
myndirnar utanbókar?
„Já!“
Krummi bauð blaðamanni inn á vinnu-stofu sína þar sem úði og grúði af tól-um og tækjum sem notuð eru í gull-
smíði. Þar er Krummi í essinu sínu og segist
vera búinn er að finna sína hillu í lífinu.
„Mig langaði alltaf í gullsmíði. Ég hafði
aldrei prófað en ég er manískur handverks-
maður, og skiptir ekki máli hvort það er að
tálga, hnýta flugur eða að mála litla tindáta.
Ég hef líka smíðað hnífa, málað myndir og
prjónað peysur; ég elska allt sem heitir hand-
verk. Ég smíðaði mína eigin veiðistöng líka.
Ég fékk áhuga á handverki strax sem krakki.
Mamma er mikill handverkskona og hún
kenndi mér að prjóna, en hitt er sjálflært,“
segir Krummi og segist hafa eftir menntaskóla
valið praktískt háskólanám en í raun dreymt
um handverk.
Sálardrepandi að þýða dómskjöl
„Ég fór í viðskiptalögfræði af því að það var
það sem menn gerðu. Ég sá ekki handverkið
sem raunhæfan valkost. Það lá alltaf við að
fara í hefðbundið háskólanám en ég er úr aka-
demískri fjölskyldu. Ég á auðvelt með nám og
það lá ágætlega fyrir mér en ég hafði aldrei
mikla ástríðu fyrir því,“ segir Krummi og seg-
ist hafa farið að vinna við sitt fag að loknu
námi, fyrst hjá Umferðarstofu og síðar hjá
sendiráði Bandaríkjanna þar sem hann vann
sem efnahagsfulltrúi.
„Þar fór allt starfið fram á ensku og út frá
því fór ég út í þýðingar. Ég þýði allt frá teikni-
myndasögum og bíómyndum yfir í lögfræði-
samninga og dómskjöl,“ segir Krummi en
hann þýddi einmitt Leðurblökumanninn yfir á
íslensku og segir það hafa verið skemmtilegt
verkefni. Einnig þýðir hann mikið af efni fyrir
Netflix, bæði bíómyndir og þætti.
„Ég tek enn að mér verk og verk ef eitthvað
skemmtilegt dúkkar upp.“
Er ekki ótrúlega leiðinlegt að þýða dóm-
skjöl?
„Hræðilegt. Algjörlega hræðilegt. Ég vann
við það í mörg ár, að þýða afleiðusamninga,
vitnaleiðslur, dómskjöl, dóma. Það er sálardrep-
andi, sérstaklega fyrir mann sem er með sköp-
unarþörf. En ég er hættur því meira og minna.“
Hápunktur handverksins
Þegar Krummi var kominn á fertugsaldurinn
fór gamli draumurinn á kreik; að verða gull-
smiður. „Ég var búinn að tuða síðan ég var í
menntó að ég yrði nú góður gullsmiður, en ég
lít á gullsmíðina sem hápunkt handverksins.
Mér finnst þetta vera töfrar og mig langaði
alltaf til að læra þetta, en þetta er eitt af því
sem maður lærir ekki sjálfur. Svo þegar ég var
svona 34, 35 ára þá sagði konan mín: „hættu
þessu tuði og prófaðu að sækja um“. Og ég
komst inn en það eru bara átta pláss í boði en
um hundrað umsækjendur. Ég elskaði þetta
strax. Námið er fjögur ár og svo komst ég á
samning hjá Jóni og Óskari, sem var algjör
lukka. Þar fékk ég að læra hjá Páli Sveinssyni
sem er einn flinkasti gullsmiður sem ég hef séð
til. Þar fékk ég að læra virkilega flotta hluti
eins og að vinna með demanta og gull en það
finnst mér skemmtilegast. Svo hef ég líka ver-
ið að gera nördaskart sem ég kalla. Þá vinn ég
með silfurplatta og gref út mynstur í þá. Það
er ofboðslega gaman.“
Krummi segist hafa svipt hulunni af nörda-
skartinu á nördaráðstefnunni Midgard
Reykjavík, sem haldin var nú í september.
„Ég hannaði línu og
var með bás á þessari
Miðgarðssýningu og
það seldist mjög vel. Í
kjölfarið hefur fólk verið
að panta, bæði það sem
ég á til og líka eitthvað
sem ég sérhanna fyrir fólk.
Sumir hafa beðið mig um skart
með íþróttamerki, eins og merki fót-
boltafélags eða sveitarfélags.“
Rauðu lífverðir keisarans
Ertu nörd?
„Já, það er ég með stolti. Að
vera nörd er að leyfa sér að gera
það sem manni finnst skemmti-
legt, algjörlega óháð því sem öðr-
um finnst. Ég þóttist vera töffari í
menntó en var um leið harður Star
Wars-aðdáandi. Það þótti mjög
púkó, og ég tala nú ekki um
að mála tindáta í War-
hammer-spili. Og vinna
til Íslandsverðlauna í
því. Það er vafasamt á
ferilskránni og fer ekki
vel með því að vera töff-
ari,“ segir hann og hlær.
Þess má geta að Krummi
skartar húðflúri sem er
mynd af Tie Fighter úr Star
Wars.
Stoltur að
vera nörd
„Mér finnst þetta vera töfrar og mig
langaði alltaf til að læra þetta, en þetta er
eitt af því sem maður lærir ekki sjálfur,“
segir Krummi, sem fór loks í gullsmíði.
Morgunblaðið/Ásdís
Krummi klæðir sig stundum upp sem rauður líf-
vörður keisarans úr Star Wars. Hann er í félagi
fólks sem á alvöru Star Wars-búninga.
Haraldur Hrafn Guðmundsson, ávallt kallaður Krummi,
fór krókaleið í átt að draumastarfinu, gullsmíðinni. Hann
segist vera nörd en hann á alvöru Star Wars-
búning og hannar nördaskart.
Ásdís Ásgeirsdóttir asdis@mbl.is
’ Ég þóttist vera töffari í menntó en var um leið harð-ur Star Wars aðdáandi. Það þótti mjög púkó, og égtala nú ekki um að mála tindáta í Warhammer-spili.
Undir merkinu Laupur design hannar
Krummi eldgosakertastjaka. Einnig hannar
hann það sem hann kallar nördaskart og
tengist það t.d. Star Wars og Star Trek.
Ljósmyndir/Krummi
VIÐTAL
12 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 27.10. 2019