Fréttir - Eyjafréttir - feb. 2019, Síða 10
10 | Eyjafréttir | Febrúar 2019
nýverið sendi meirihluti um-
hverfis- og samgöngunefndar
frá sér nefndarálit um tillögu
til þingsályktunar um fimm
ára samgönguáætlun fyrir árin
2019–2023 og tillögu til þings-
ályktunar um samgönguáætl-
un fyrir árin 2019–2033.
en það eru nokkur atriði sem
tengjast Vestmannaeyjum
í þeirri samgönguáætlun.
Það sem helst ber á góma
er flugið og hin umtalaða
skoska leið. Þá er talað um
að hraða endurlögn flug-
brautirnar í Vestmannaeyjum.
að opna flugvöllinn fyrir
lendingu minni véla í milli-
landaflugi og svo áréttingar
um Reykjavíkurflugvöll. Þá
eru fjármagnaðar 800 milljón
króna kostnað við að rafvæða
Herjólf. Þá er einnig texti um
að gera óháða úttekt á land-
eyjahöfn. síðast en ekki síst er
áhersla lögð á að samráð sé
haft við sveitarfélög við útboð
Vegagerðarinnar eins og t.d.
með dýpkun.
Hér á eftir höfum við tekið
saman það helsta, í nefndar-
áliti meiri hlutans, sem tengist
Vestmannaeyjum.
Áréttingar í málefnum
flugsins.
Meiri hlutinn áréttar nokkur atriði
sem verði höfð að leiðarljósi við
framangreinda vinnu. Það þolir
enga bið að hefja vinnu við aukið
flugöryggi með eflingu varaflug-
vallanna og því mikilvægt að ná
áhrifum af breyttu fyrirkomulagi
eins fljótt og auðið er á árinu 2019
þó að þjónustugjöld verði ekki inn-
heimt fyrr en frá og með 1. janúar
2020. Jafnframt vill meiri hlutinn
að minni vélum í millilandaflugi
verði veitt heimild til að lenda
á Hornafirði, í Vestmannaeyjum
og á Ísafirði. Slíkt gæti hjálpað
mikið til við dreifingu ferðamanna
auk þess sem það minnkar álag á
Keflavíkurflugvelli og eykur öryggi
í flugi eins og rannsóknarnefnd
samgönguslysa hefur bent á í
skýrslum sínum. Reykjavíkurflug-
völlur gegnir mikilvægu hlut-
verki við mestallt sjúkraflug, sem
miðstöð innanlandsflugs og sem
varaflugvöllur í millilandaflugi.
Fram kom fyrir nefndinni að 15–20
ár tæki að byggja upp nýjan flug-
völl á öðrum stað, eins og lagt er
til m.a. í skýrslum um málefnið.
Meiri hlutinn leggur því áherslu
á að Reykjavíkurflugvelli verði
vel við haldið og hann byggður
upp að því marki að hann sinni
því hlutverki sem hann skipar á
öruggan og viðunandi hátt, þar til
sambærileg, fullbúin lausn finnst,
flytjist flugvöllurinn úr Vatnsmýri.
Það verður tryggt með hinu breytta
fyrirkomulagi þar sem rekstur
hans, viðhald og endurnýjun verður
á ábyrgð Isavia enda gegnir hann
mikilvægu hlutverki sem einn af
varaflugvöllum landsins.
yfiirborðsviðhald á flug-
vellinum í Eyjum
Meiri hlutinn beinir því til ráðherra
að hefja viðræður við Isavia um að
finna leiðir innan þjónustusamn-
ings til að bregðast við þörf á yfir-
borðsviðhaldi sem fyrirhugað var á
árinu 2018 á flugvöllunum í Vest-
mannaeyjum og á Ísafirði ásamt
því að finna leiðir til að greiða fyrir
móttöku aukins fjölda farþega í
millilandaflugi til Akureyrar.
Óháð úttekt á landeyjahöfn
Í fyrirliggjandi samgönguáætlun er
gert ráð fyrir framkvæmdum við
endurbótum á Landeyjahöfn. Fram-
lögum er ætlað að standa undir
kostnaði við rannsóknir, öryggis-
mál, gerð óháðrar úttektar og fram-
kvæmdum sem auðvelda eiga að
halda nægu dýpi í höfninni. Þá er
gert ráð fyrir að koma upp dælum
og lögnum við hafnarmynnið til að
dýpka yfir veturinn.
rafvæðing Herjólfs
Smíði Vestmannaeyjaferju er langt
komin og mun hún ganga fyrir
rafmagni. Viðbótarkostnaður vegna
raftengingar ferjunnar nemur 800
millj. kr. Með vísan til umhverfis-
sjónarmiða og áherslna í lofts-
lagsmálum leggur meiri hlutinn til
breytingu þess efnis að veitt verði
fjármagn í þessa mikilvægu fram-
kvæmd. Til að mæta kostnaði við
framkvæmdina lækkar fjárveiting
til framkvæmda við Hringveg,
Bæjarháls–Vesturlandsveg, um 400
millj. kr. og Skarhólabraut–Hafra-
vatnsveg um 400 millj. kr. árið
2019. Því verður síðan mætt með
auknum fjárveitingum á árunum
2020 og 2021.
samskipti sveitarfélaga og
Vegagerðarinnar
Á fundum nefndarinnar kom fram
að samráð Vegagerðarinnar við
sveitarfélög væri ekki nægilega
mikið og náið. Landshlutasamtök
sveitarfélaga væru í mörgum til-
vikum búin að sammælast um þau
samgönguverkefni sem brýnust
væru á svæðinu og móta sér sam-
eiginlega stefnu þar um. Miðað
við fyrirliggjandi samgönguáætlun
hefði Vegagerðin töluvert aðra sýn
á forgangsröðun verkefna í lands-
hlutum án þess að fyrir því væru
auðsjáanleg rök að mati sveitar-
félaganna.
Meiri hlutinn áréttar að brýnt er
að Vegagerðin eigi í nánu sambandi
við sveitarfélög um allt land. Það
eru jafnan íbúar svæðisins sem búa
yfir hve mestri þekkingu á staðnum
og nota samgöngumannvirkin
mest. Undirbúningur og vinnsla
fyrirliggjandi samgönguáætlana
hófst í ársbyrjun 2018 og var haft
samráð við landshlutasamtök
sveitarfélaga og aðra hagaðila víðs
vegar um landið. Á fundum með
samgönguráði kynntu landshluta-
samtökin samþykktir sínar og settu
fram sjónarmið sín um áherslur í
samgöngumálum. Við gerð sam-
gönguáætlunar þarf þó alltaf að
horfa til öryggissjónarmiða og
getur það í sumum tilvikum leitt til
þess að forgangsröðun á svæðinu
verður önnur en landshlutasamtök
sveitarfélaga á svæðinu hafa lagt
til. Meiri hlutinn ítrekar mikilvægi
náins samráðs milli Vegagerðarinn-
ar og sveitarfélaga og telur æskilegt
að Vegagerðin myndi fastmótaða
ferla fyrir samráð við sveitarfélög
og landshlutasamtök þeirra svo
að það verði markvisst og nýtist
sem best. Þá leggur meiri hlutinn
áherslu á að samráð verði haft
við sveitarfélög varðandi kröfur í
útboðslýsingum, t.d. fyrir veg-
þjónustu og dýpkunarframkvæmdir
við hafnir.
SæþóR Vídó
þoRbjARNARSoN
sathor@eyjafrett ir. is
Vestmannaeyjar koma víða við í nýrri samgönguáætlun:
Millilandaflug til eyja og
óháð úttekt á landeyjahöfn
Langstærstur hluti ríkisfjár sem
á að fara í sjósamgöngur í
samgönguáætlun fer í Landeyja-
höfn. Sérstök 800 milljóna
viðbótarfjárveiting er lögð til að
rafvæða nýjan Herjólf. Í Land-
eyjahöfn eiga að fara 3,3
milljarðar á næstu fimm árum,
þar af um 730 milljónir í
botndælubúnað 2019.