Fréttir - Eyjafréttir


Fréttir - Eyjafréttir - febr 2019, Qupperneq 12

Fréttir - Eyjafréttir - febr 2019, Qupperneq 12
12 | Eyjafréttir | Janúar 2019 ,,Ég hef verið á öllum þjóðhá- tíðum nema þremur frá því að ég fæddist. en ég fæddist einmitt í Reykjavík á sama tíma og þjóðhátíðin var sett árið 1985. fyrsta afmælið mitt var haldið í þjóðhátíðartjaldi í Dalnum. næsta ár var ég ekki á þjóðhátíðinni og þú verður að spyrja mömmu af hverju það var,´´segir Ólöf Ragnars- dóttir, eyjakona sem birtist reglulega á skjám landsmanna þegar hún flytur þeim fréttir á RÚV. Ólöf segir Þjóðhátíð eitt af aðal áhugamálum sínum. en hún hefur einungis sleppt tveimur þjóðhátíðum af sjálfsdáðun. einu sinni fór ég til Benidorm yfir þjóðhátíð og endaði á sjúkrahúsi með matareitrun en erfiðast var að sleppa þjóðhátíðinni þegar ég var í Palestínu, sérstaklega vegna þess að ég varð þrítug á þjóðhátíðarsunnudeginum. Það mun ekki gerast í náinni framtíð að ég sleppi þjóðhátíð segir Ólöf sem er fyrir löngu byrjuð að telja niður fyrir þá næstu. sjálfsmyndin tengd Eyjum Fyrir utan þjóðhátíðaráhugann, reyni ég að vera dugleg að hreyfa mig og hitta fjölskyldu og vini segir Ólöf sem bjó í Reykjavík með foreldrum sínum Margréti Elísabetu Kristjánsdóttur sem oftast er kölluð Magga Beta og Ragnari Hilmarssyni fyrstu fimm ár ævinnar. ,,Mamma og pabbi skildu þegar ég var um þriggja ára, mamma kláraði námið sitt í Reykjavík og fljótlega í kjölfarið fluttum við mamma svo til Eyja og bjuggum hjá ömmu á Kirkjuveginum. Ég bjó í Eyjum til sextán ára aldurs en flutti þá til Reykjavíkur til þess að fara í Versló og bjó þá hjá pabba,´´segir Ólöf. Þegar hún er spurð hver hún sé og hvað hafi mótað hana svarar hún því fyrst til að því verði aðrir að svara. En fljótlega segir hún að sjálfsmyndin tengist Vestmannaeyjum og það sem hafi mótað hana mest séu for- eldrar hennar. Hún hafi líka verið heppin með fósturföður, Sigurð Alfreðsson, Sigga sem hún segir að hún hefði kallað pabba ef hún hefði ekki átt góðan pabba fyrir. En Siggi sé búin að vera í hennar lífi frá því að hún var sjö ára gömul. flókin fjölskyldutengsl „Ég á engin alsystkini eins og það er kallað og fjölskyldan í kringum mig er frekar flókin. Ég á eina hálfsystur sammæðra og tvö systkini samfeðra og svo einn bónus bróður. Siggi á eina dóttur og einn son og konurnar sem pabbi á börnin með eiga önnur börn. Ég hef aldrei litið svo á að ég eigi hálf- eða aukasystkini fyrir mig erum við öll systkini þrátt fyrir að vera ekki blóðskyld. Við erum náin ekki síður en önnur systkini,“ segir Ólöf og bætir við að hluti hópsins hafi hist einu sinni að tilstuðlan Svenna heitins Matt og Hörpu þegar þau voru stödd í Eyjum á þjóðhátíð. „Svenni og Harpa buðu okkur í systkinaflækjuhumarsúpu. Það var yndisleg stund og svo gaman að við gleymdum að taka af okkur myndir öllum saman. Því miður varð Sveinni bráðkvaddur í brekk- unni um kvöldið sem var öllum mikill harmdauði,“ segir Ólöf og bætir við að á leiðinni úr systkina- flækjusúpunni hafi náðst ein mynd af henni, Hilmari bróður hennar og Steinari bróður hennar sem sé í raun ekki blóðskyldur henni en hálfbróðir Hilmars. foreldrarnir fyrirmyndir „Við bjuggum öll þrjú saman hjá pabba um tíma. Raggi er pabbi okkar Hilmars og við því systkini samkvæmt norminu og Hilmar og Steinar eru hálfbræður, synir Sæ- rúnar. En samband okkar Steinars er samt ekkert annað en alvöru systkinasamband,“ segir Ólöf sem er ekki frá því að systkinaflækjan hafi gert hana víðsýnni og um- burðarlyndari. Ólöf segir að hún sé þakklát for- eldrum sínum fyrir að hafa haldið góðu sambandi þrátt fyrir skilnað- inn og aldrei látið hana finna fyrir það ef þau voru ósátt. Hún segir mikilvægt að foreldrar leggi sig fram um að halda góðu sambandi. Hún dáist að mömmu sinni hvernig hún tók á skilnaðinum. „Þrátt fyrir að samband foreldranna hafi ekki endað vel þá gerðu þau eins gott úr hlutunum og þau gátu. Pabbi var aldrei slæmur pabbi þrátt fyrir að hafa átt við drykkjuvandamál að stríða og ég á erfitt með að koma því í orð hversu þakklát ég er fyrir að hann hætti að drekka fyrir rúmum 20 árum. Það hefði líklega ekki verið hægt fyrir mig að flytja Byrjuð að telja niður fyrir næstu þjóðhátíð :: Eyjaskvísa í ljósvakamiðlum GUðRÚN ERLiNGSdóttiR gudrun.erlingsdottir@gmail.com Þjóðhátíð Ólöf í þjóðhátíðarstuði á leið í hvíta tjaldið, mætt á sína fyrstu en langt í frá síðustu þjóðhátíð. ” Allt í einu var ég komin með mastersgráðu, hafði enga vinnu, átti ekki heimili, átti ekkert og vissi ekki hvað ég vildi. Ég flutti því aftur heim til mömmu 31 árs og fór að leysa af í Íslandsbanka.

x

Fréttir - Eyjafréttir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.