Fréttir - Eyjafréttir - feb. 2019, Síða 19
Febrúar 2019 | Eyjafréttir | 19
Sími 455 54 00
Fax 455 54 99
postur@byggdastofnun.is
byggdastofnun.is
Átt þú rétt á styrk til jöfnunar
flutningskostnaðar?
Þeir sem geta sótt um styrk eru einstaklingar
og lögaðilar sem:
• stunda framleiðslu á vörum sem falla
undir c-bálk ÍSAT2008
• stunda framleiðslu á vörum sem falla
undir flokk 01.1 og/eða flokk 01.2 í a-
bálk ÍSAT2008 enda sé varan fullunnin
í söluhæfar umbúðir.
Flytja þarf framleiðsluvöru meira en 150 km frá
framleiðslustað á innanlandsmarkað eða að
útflutningshöfn.
Opnað verður fyrir umsóknir 1. mars og
er umsóknafrestur til og með 31. mars.
Nánari upplýsingar má finna á heimasíðu
Byggðastofnunar og í síma 455-5400.
Styrkir
AÐALFUNDUR
Aðalfundur Rauða krossins
í Vestmannaeyjum verður haldinn
í Arnardrangi húsi félagsins
við Hilmisgötu
fimmtudaginn 7. mars
og hefst kl. 20:00
• Venjuleg aðalfundarstörf.
• Fjóla Einarsdóttir svæðisfulltrúi RKÍ á
Suðurlandi kemur á fundinn.
• Kaffi og léttar veitingar eftir fund.
Vestmannaeyingar, fjölmennið á fundinn.
ALLIR HJARTANLEGA
VELKOMNIR
Rauði krossinn
í Vestmannaeyjum
gera, heldur þarf maður virkilega
að gefa sér tíma og elju í það. Við
erum ekkert í neinu spretthlaupi.
Við viljum gera hlutina vel þannig
að varan eigi möguleika á að festa
sig í sessi hjá Íslendingum.“
Varan komin í sölu
Hópurinn hélt kynningarkvöld á
brugghúsinu The Brothers Brewery
núna í febrúar og í kjölfarið fór
varan í sölu á tveimur stöðum.
„Við ætlum að byrja hérna í Eyjum
og vörurnar okkar eru til sölu hjá
vinum okkar á Einsa Kalda og The
Brothers Brewery. Í mars stefnum
við síðan á að halda samskonar
kynningarkvöld í höfuðborginni
líkt og við héldum á The Brothers
Brewery. Eftir það verða vörurnar
til á vel völdum stöðum á höfuð-
borgarsvæðinu. Síðan til að byrja
með er hægt að hafa samband
við okkur á Facebook síðunni
okkar, Volcano Seafood og panta
í gegnum skilaboð hjá okkur þar.
Við stefnum síðan á að vera komin
með vefsíðu innan skamms þar
sem einnig verður hægt að panta
vörurnar hjá okkur.“
frábærar viðtökur
Hópurinn er mjög ánægður með
viðtökurnar sem þau og varan
þeirra hefur fengið. „Við erum
virkilega ánægð með viðbrögðin
hjá fólki sem hefur smakkað
þetta hjá okkur, sem er frábær
viðurkenning því við erum búin
að vera þróa þessar vörur okkar í
um eitt og hálft ár og vildum koma
með vörur sem við erum stolt af
og hefðum sjálf áhuga á að kaupa.
Einnig finnst fólki heildarhug-
myndin okkar svo skemmtilegt.
Að þú getur farið á bar og fengið
þér eitthvað hollt en gott snarl með
drykknum þínum. Snakkið okkar
kemur í myndarlegum öskjum sem
hægt er að rífa lokið af og hafa sem
skál.“
umhverfisvænir pokar
og fleiri sölustaðir
Framtíðaráformin hjá hópnum
eru að koma vörunni í sölu á öllu
landinu og vonandi víðar, „Við
viljum koma vörunum okkar í sölu
á vel valda staði út um allt Ísland.
Síðan styttist í vörurnar okkar fari
í aðrar umbúðir. Þar sjáum við
fyrir okkur umhverfisvæna poka
þar sem hægt er að loka þeim með
zip locki og hafa í meira magni.
Einnig viljum við skoða það að
fara út fyrir landssteinana ef það er
möguleiki, en það verður skoðað
betur í framtíðinni,“ sagði hópurinn
að endingu.
Gunnar Heiðar og Svanhildur kynna vöruna fyrir gestum The
Brothers brewery en snakkið þykir henta einkar vel með bjór.
Snakkið fæst í tveimur bragðtegundum og kemur í myndarlegum
öskjum þar sem hægt er að rífa lokið af og nota sem skál.
Vel var mætt á kynninguna og
voru viðtökurnar frábærar.