Fréttir - Eyjafréttir


Fréttir - Eyjafréttir - febr 2019, Qupperneq 21

Fréttir - Eyjafréttir - febr 2019, Qupperneq 21
Febrúar 2019 | Eyjafréttir | 21 ww Opnunartími / mánudaga-föstudaga kl . 7.30-21.00 / um helgar kl . 10-21 góð verslun í alfaraleið Ný tilboð vikulega Heimsendingarþjónusta. sushi frá Osushi kemur til okkar föstudaga kl. 17.30. tökum niður pantanir ! áætlun herjólfs *gildir frá og með 1. september til 14.september. áætlun getur tekið breytingum – nánar á saeferdir.is vestmannaeyjar - landeyjar Alla daga 08:30 11:00 - 16:00 18:45 21:00 Föstudag og sunnudag 13:45 landeyjar - vestmannaeyjar Alla daga 09:45 12:45 - 17:10 19:45 22:00 Föstudag og sunnudag 14:45 kjúklingaréttur: • Einn pakki af kjúklingabringum eða lundum • 1 stk Laukur • Ca. 2 hvítlauksgeirar • 1 lítill Blómkálshaus • 1 Spergikál • 1 bakki Sveppir ( smekksatriði ) • 1 rauð Paprika • Sataysósa • Teriyaki sósa • Kartöflumjöl • Sesamolía • Kasjúhnetur Aðferð: Fyrst saxa ég laukinn, hvítlaukinn og allt grænmetið. Síðan byrja ég á að steikja laukinn og hvítlaukinn upp úr sesamolíu. Þegar hann er orðinn pastlega brúnn þá set ég allt grænmetið út á pönnuna og steiki þetta allt vel saman. Þegar ég er búin að velta grænmetinu á pönnu í góðan tíma þá set ég það í skál til hliðar. Síðan sker ég kjúklingabringurnar (nota líka oft kjúklingalundir) í litla bita og steiki upp úr sesam- olíu. Þegar kjúklingur er tilbúinn helli ég öllu grænmetinu útá pönn- una og velti þessu öllu saman. Næst set ég sataysósuna út á og hræri saman. Á meðan þetta mallar allt saman á lágum hita tek ég u.þ.b. 1 msk af kartöflumjöli og u.þ.b 2 dl af teriyaki sósu og hristi það vel saman og helli yfir réttinn rétt áður en hann er borinn fram (þetta er til að þykkja réttin aðeins) í lokin strái ég kasjúhetum yfir, en það er bara smekksatriði því það eru ekki allir sem vilja hnetur, en mér finnst hneturnar nauðsynlegar, en þá er líka hægt að bera hann fram bara í sér skál . Meðlæti er síðan hrísgrjón og gott og ferskt salat. Gottsaums - kakan Botn: • 5 stk eggjahvítur • 100 gr döðlumauk • 100 gr saxaðar döðlur • 90 gr möndluflögur Aðferð : Ég byrja á að sjóða niður 100 gr döðlum (set þær í pott með svolítið vel af vatni og síðan þær þangað til að allt vatn er eiginlega farið og þetta orðið að mauk) læt það síðan kólna. Á meðan stífþeyti ég eggjahvíturnar. Þegar maukið er orðið kalt þá blanda ég því varlega saman við eggjahvíturnar ásamt döðlum og möndluflögum. Ég set þetta í hringlagað form (læt alltaf bökunarpappir undir) og baka í ca 17-19 mín við 150° . Set botninn á kökudisk og læt kólna. Ég rista pekanhnetur eða val- hnetur (smekksatriði) í ofni við 160° í u.þ.b 5 mín og raða því síðan á botnin og svo þar ofaná raða ég bönunum eða jarðaberjum/ bláberjum. Enda svo á að bræða súkkulaði og sletti því yfir. Ég hef stundum búið til karamellu og sett hana yfir í staðinn fyrir súkkulaði. Síðan er bara að bera hana framm með ís eða rjóma . Þessi kaka slær alltaf í gegn í gegn. Ég skora á Írisi Páls frænku sem næsta matgæðin því ég veit að hún er snillingur í eld- húsinu og lummar á girnileg- um Ketó uppskriftum. ljúffengur satay kjúklingaréttur og kaka sem slær í gegn í saumó MaTGÆðinGURinn Soffía Baldursdóttir matgæðingur

x

Fréttir - Eyjafréttir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.