Fréttablaðið - 17.02.2020, Qupperneq 2
Þetta á sér langa
sögu frá tíð fyrri
eiganda. Við eigum í góðu
samstarfi við borgina.
Rakel Þórhallsdóttir,
einn eigenda Hagavagnsins
Veður
Norðaustlæg átt, yfirleitt 8-13 m/s,
en hvassara á Vestfjörðum. Skýjað
með köflum, en él fyrir norðan.
Hvessir með snjókomu N-lands
seinni partinn. SJÁ SÍÐU 16
Brottvísun mótmælt
Vel á þriðja hundrað manns mótmæltu fyrir framan dómsmálaráðuneytið í gær brottvísun þriggja manna íranskrar fjölskyldu. Á miðri mynd sést
Maní, sem er 17 ára transstrákur, en til stendur að senda hann og foreldra hans til Portúgal þar sem þau óttast um afdrif sín. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR
SALTVATNSPOTTAR
HEITIRPOTTAR.IS
HÖFÐABAKKI 1
SÍMI 7772000
PLUG & PLAY
HITAVEITUSKELJAR
• Tilbúin til notkunar
• Tengja 2 rör
• Eyðir minna vatni
SAMFÉLAG Samkvæmt gildandi
deiliskipulagi er Hagavagninn, hinn
vinsæli veitingavagn við Vestur-
bæjarlaug, tíu fermetrum of stór.
Skipulagsyfirvöld eru jákvæð
fyrir því að breyta núverandi deili-
skipulagi en þó með þeim fyrirvara
að fjarlægja þarf skyggni af vagn-
inum ef ráðist verður í stækkun
Vesturbæjarlaugar í framtíðinni.
„Þetta á sér langa sögu og er frá tíð
fyrri eigenda,“ segir eigandi.
Hagavagninn við Hofsvallagötu
er eitt af gömlu táknum Vestur-
bæjarins. Baráttan um stækkun
hans á sér langa sögu eða allt frá
árinu 1998. Þegar nýtt deiliskipu-
lag var samþykkt árið 2004 vildi
fyrri eigandi stækka vagninn úr
18 fermetrum upp í 55 fermetra
en niðurstaðan varð sú að heimila
aðeins stækkun upp í 27 fermetra.
Sú ákvörðun var kærð til úrskurða-
nefndar skipulags- og bygginga-
mála en eigandinn hafði ekki erindi
sem erfiði.
Árið 2018 keyptu hjónin Rakel
Þórhallsdóttir og Jóhann Guð-
laugsson vagninn og tóku höndum
saman við rapparann Emmsjé
Gauta og veitingamanninn Ólaf
Örn Ólafsson um að opna metn-
aðarfullann skyndibitastað. Gamli
vagninn var rifinn og nýr byggður í
staðinn. Vagninn varð að endingu
37 fermetrar af stærð en sam-
kvæmt gildandi deiluskipulagi var
hámarksstærðin ennþá aðeins 27
fermetrar. Það skapaði ákveðinn
vandamál.
Lausn málsins var sú að í lok árs
2019 óskuðu eigendur vagnsins eftir
leyfi á áður gerðum breytingum og
lögðu fram teikningar á breyting-
unum til umhverfis- og skipulags-
sviðs borgarinnar. Málið var tekið
Hagavagninn reyndist
tíu fermetrum of stór
Veitingavagn í Vesturbæ Reykjavíkur reyndist of stór sé tekið mið af gildandi
deiliskipulagi. Verði Vesturbæjarlaug stækkuð þarf að fjarlægja skyggni sem
reist var við vagninn því það nær lítillega inn á byggingarreit laugarinnar.
Nýlega var ráðist í endurbyggingu veitingavagnsins og er hann vinsæll
áningarstaður í Vesturbænum, rétt við Vesturbæjarlaug. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
fyrir á afgreiðslufundi byggingar-
fulltrúa þann 14. janúar síðastlið-
inn. Niðurstaðan varð sú að bygg-
ingarfulltrúi er jákvæður fyrir því
að heimila stækkunina í vinnu við
nýtt skipulag. Ekki verði þó lagt til
að heimila lóð undir vagninn né
heimila frekari stækkanir.
Fram kemur að skýli á núverandi
vagni fer lítillega inn á byggingar-
reit fyrir mögulega stækkun Vestur-
bæjarlaugar. Ef af þeirri stækkun
yrði í framtíðinni þyrfti að fjar-
lægja skýlið. Gert er ráð fyrir að
breytingartillaga á deiliskipulaginu
verði samþykkt á næstu vikum eða
mánuðum. Í framhaldinu verður
hægt að samþykkja nýjar teikning-
ar fyrir Hagavagninn og festa áður
gerða stækkun í gildi.
„Þetta á sér langa sögu frá tíð fyrri
eiganda. Við eigum í góðu samstarfi
við borgina. Málið er í vinnslu og
það er í raun formsatriði að ljúka
þessu,“ segir Rakel Þórhallsdóttir,
einn eiganda Hagavagnsins. Það sé
allra hagur enda hafi Vesturbæing-
ar tekið nýjum Hagavagni opnum
örmum. bjornth@frettabladid.is
HEILBRIGÐISMÁL Sérstakri gáma-
einingu hefur verið komið upp
við bráðamóttöku Landspítalans í
Fossvogi. Þar verður hægt að taka
á móti og skoða sjúklinga sem
grunur liggur á að séu smitaðir af
kórónaveirunni. Uppsetning hófst
í lok janúar og er kostnaður áætl-
aður um sex milljónir króna.
Í minnisblaði Landspítalans
til heilbrigðisráðherra þar sem
farið var yfir viðbrögð spítalans
vegna kórónaveirufaraldurs segir
að umrædd aðstaða verði tíma-
bundin.
Mikilvægt sé að geta tekið á móti
sjúklingum þar sem aðkoma er
aðskilin bráðadeildinni. -sar
Gámaeining komin upp
hjá bráðamóttökunni
Gámaeiningin við bráðamóttökuna í Fossvogi.FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI
ORKUMÁL Búist er við raf magns-
truf lunum næstu daga og vikur á
Suður landi á meðan Ra rik vinnur
að því að laga bilanir í kerfi sínu
eftir ó veðrið sem gekk yfir landið
á föstu dag.
Þetta kemur fram í tilkynningu
frá Rarik. Þar segir að þó að allir séu
komnir með raf magn fái sumir það
með vara afli. „Það geta verið bilan-
ir í kerfinu sem Ra rik veit ekki um,
t.d. í sumar húsa byggðum og öðrum
stöðum þar sem ekki er föst bú seta,“
segir í til kynningunni.
Allt til tækt starfs lið fyrir tækisins
vinnur nú að því að laga bilanirnar
en rúm lega hundrað staurar brotn-
uðu í storminum. -ókp
Rarik býst við
truflunum á
Suðurlandi
1 7 . F E B R Ú A R 2 0 2 0 M Á N U D A G U R2 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð