Fréttablaðið - 17.02.2020, Page 13
KYNNINGARBLAÐ
Framhald á síðu 2 ➛
Lífsstíll
M
Á
N
U
D
A
G
U
R
1
7.
F
EB
RÚ
A
R
20
20
Hjónin Hrannar Hólm og Halla Benediktsdóttir segja Kaupmannahöfn vera lifandi, afslappaða og frábæra borg sem endalaust sé hægt að kanna.
Leiða Íslendinga um
kóngsins Köbenhavn
Hjónin Halla Benediktsdóttir og Hrannar Hólm hafa verið búsett í Kaup-
mannahöfn um árabil. Þau hafa verið saman í hartnær 40 ár og vita fátt
skemmtilegra en að kanna þessa merkilegu borg og kynna hana fyrir öðrum.
Hjördís Erna
Þorgeirsdóttir
hjordiserna@frettabladid.is
Óhætt er að fullyrða að hjón-in Halla Benediktsdóttir og Hrannar Hólm séu sam-
stíga í lífinu. „Við fæddumst bæði
og ólumst upp í Keflavík,“ segir
Hrannar. „Halla er umsjónarmað-
ur Jónshúss og hefur verið síðan
2015 og ég starfa sem ráðgjafi í
viðskiptaþróun, leiðsögumaður og
þjálfari í körfubolta.“
Heilluð af hygge og mannlífi
„Við höfum áhuga á fjölskyldu,
vinum og lífinu og eigum tvö börn,
þau Helenu Brynju og Helga Benna
en þau eru bæði uppkomin og búa
í Kaupmannahöfn,“ segir Halla.
„Við kynntumst fyrir alvöru árið
1983 og höfum verið saman síðan,
í 37 ár. Kynntumst einfaldlega af
því að við vorum bæði unglingar í
Keflavík á sama tíma. Þá er eigin-
lega útilokað að kynnast ekki.“
Halla og Hrannar hafa búið í
Kaupmannahöfn í rúman áratug
þrátt fyrir að það hafi ekki upp-
haflega verið áætlunin. „Það var
árið 2009, vegna starfa Hrannars
hjá félaginu Capacent, sem á þeim
tíma var með mikla starfsemi í
Kaupmannahöfn. Ætluðum að
vera í þrjú til fimm ár, en þau eru
nú að verða ellefu, og ekki sér fyrir
endann á dvölinni,“ segir Halla.
Ástæðurnar fyrir langdvölinni
eru ótalmargar. „Lífið í borginni,
aflsappaður lífstíllinn, lífsgæðin,
hygge, mannlífið, fjölbreytileik-
inn, gerólík hverfin, vera laus við
bílinn, hjólamenningin, hefðirnar,
julefrokost, útiveran, baðstrend-
urnar og bátarnir á sumrin, göt-
urnar, byggingarnar, sagan, söfnin,
maturinn, vertshúsin, árstíðirnar,
samfélag Íslendinga í borginni,
tenging Íslands við borgina, Jóns-
hús. Eiginlega allt. Kaupmanna-
höfn er frábær borg.“
Vildu kynnast borginni betur
Þau segja skoðunarferðirnar um
Kaupmannahöfn hafa byrjað eftir
að Halla var ráðin til starfa í Jóns-
húsi. „Við byrjuðum fljótlega eftir