Fréttablaðið - 17.02.2020, Qupperneq 38
Tryggðu þér áskriftKAUPTU STAKAN LEIK:
OLÍS DEILD KARLA
Í KVÖLD 19:15
Verkið Rythm of Poison eftir hina finnsku Elina Pirinen verður frumsýnt af Íslenska dansflokknum þann 28. febrúar. Nú lýsir
Íslenski dansflokkurinn eftir þrem
ur hundum til að taka þátt í verkinu.
„Við segjum aldrei nei við góðum
hugmyndum frá samstarfsfólki
okkar en danshöfundur verksins,
hún Elina Pirinen, er mikill dýra
vinur og hún er sannfærð um að
þátttaka þriggja hunda í sýningunni
eigi eftir að lyfta verkinu á annað
plan,“ segir Hlynur Páll Pálsson,
framkvæmdastjóri flokksins.
Dansmenntun ekki nauðsynleg
Hann segir enga eiginlega kröfu
um það að hundurinn þurfi að vera
dansmenntaður.
„Við setjum það ekki sem hæfni
skilyrði að hundarnir kunni nú
þegar að dansa, en það væri auð
vitað kostur ef um þjálfaða sýningar
hunda væri að ræða. Við erum opin
fyrir þátttöku hunda af f lestum
hundakynjum og þeir þurfa alls
ekki að vera hreinræktaðir. Ættar
bók þarf til dæmis ekki að fylgja með
umsókninni um þátttöku í verkinu,“
segir hann léttur í bragði.
Hlynur segir að þau séu
ekki með neina ákveðna
tegund í huga.
„Öryggisins vegna get smá
hundar því miður ekki tekið
þátt í sýningunni. Því biðjum
aðeins um að meðalstórir og
stórir sæki um þátttöku.
Einu skilyrðin eru að hund
arnir séu vingjarnlegir,
ófeimnir og að þeim líði vel í
margmenni. Svo væri auðvitað ekki
verra ef þeir eru sviðsvanir,“ segir
hann og hlær.
Hekla átti stórleik
Hann segir það ekki algengt að dýr
taki þátt í dansverkum sem þessum
en það gerist þó öðru hvoru.
„Já, það er svolítið skemmtilegt
að segja frá því að síðast þegar Elina
Pirinen sýndi verk á Íslandi þá sýndi
Golden retriever hvolpurinn Hekla
stórleik á sviði. Frábær frammistaða
hennar í þeirri sýningu átti eflaust
þátt í að Elina óskaði aftur eftir
hundum í þetta verk. Við reyndum
að fá Heklu til að taka þátt í verkinu
núna, en hún er því miður sest í helg
an stein og hætt að sýna opinberlega
af heilsufarsástæðum.“
Hann segir verkið vera fjöruga og
hrífandi tjáningarveislu.
„Ég vil ekki gefa of mikið upp, en
helstu þemu verksins eru kynhvöt,
villileiki og nánd. Sýningin krefst
þess að áhorfendur nýti óbeislað
ímyndunarafl sitt til þess að upplif
unin verði sem sterkust,“ segir hann.
Áhugasamir hundaeigendur eru
hvattir til að hafa samband við
Íslenska dansflokkinn með því að
senda þeim tölvupóst með mynd
og nafni hundsins, ásamt stuttri
lýsingu á skapgerð hans.
Frumsýning á Rhythm of Poi
son verður 28. febrúar á Nýja sviði
Borgarleikhússins. Miðafjöldi er
mjög takmarkaður þar sem sýningin
er hugsuð fyrir lítinn hóp áhorfenda.
steingerdur@frettabladid.is
Óska eftir
hundum
í dansverk
Hundurinn
Askur og Hlynur
Páll Pálsson,
framkvæmda-
stjóri Íslenska
dansflokksins.
FRÉTTABLAÐIÐ/
SIGTRYGGUR
Íslenski dansflokkurinn frumsýnir verkið
Rythm of Poison eftir Elina Pirinen þann
28. febrúar. Upp kom sú hugmynd að bæta
við þremur ferfætlinum í dansflokkinn
meðan á sýningu verksins stendur.
1 7 . F E B R Ú A R 2 0 2 0 M Á N U D A G U R22 L Í F I Ð ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð