Morgunblaðið - 09.11.2019, Blaðsíða 43
DÆGRADVÖL 43
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 9. NÓVEMBER 2019
Fjölskylda
Eiginkona Jóns Ármanns er Hild-
ur Sigurðardóttir, f. 21. febrúar 1968,
prestur. Foreldrar hennar eru hjónin
Sigurður Þráinn Kárason, f. 21. nóv-
ember 1935, byggingafræðingur, og
Kristín Guðmundsdóttir, fædd 3. júní
1940, hjúkrunarritari. Þau eru búsett
í Reykjavík.
Börn Jóns Ármanns og Hildar eru
Þorsteinn Gísli, f. 18. apríl 2004, og
Sigurður Kári, f. 3. janúar 2007.
Bróðir Jóns Ármanns er Þorsteinn
Björn Gíslason, f. 15. október 1963,
geðlæknir hjá Íslenskri erfðagrein-
ingu, búsettur í Reykjavík.
Foreldrar Jóns Ármanns eru hjón-
in Gísli Ásgeir Þorsteinsson, f. 28.
mars 1937, geðlæknir, og Lilja Jóns-
dóttir, f. 29. október 1935, hjúkrunar-
fræðingur. Þau eru búsett í Reykja-
vík.
Jón Ármann Gíslason
Guðrún Jóhannsdóttir
húsfreyja á Skíðastöðum í Skagafi rði
Jóhann Björnsson
bóndi á Skíðastöðum í Skagafi rði
Jóhanna Jóhannsdóttir
verkakona á Sauðárkróki
Lilja Jónsdóttir
hjúkrunarfræðingur, búsett í Reykjavík
Jón Á. Magnússon
verslunarmaður á Sauðárkróki
Sigríður Jónasdóttir
húsfreyja í Flögu
Magnús Oddsson
bóndi í Flögu í Hörgárdal, Eyj.
Birgir R. Rafnsson
útibússtjóri
Landsbankans á
Sauðárkróki
Arndís Jónsdóttir
húsfreyja á Sauðárkróki
Guðmundur Þorsteinsson fv.
dómprófastur í Reykjavík
Guðmundur Helgason
prestur á Bergsstöðum
í Svartárdal, A-Hún.
Guðmundur Benediktsson
prestur á Barði í Fljótum, Skag.
Guðrún Ólafsdóttir
húsfreyja á Hrafnabjörgum
Benedikt Helgason
bóndi á Hrafnabjörgum í
Svínadal, A-Hún.
Ólína S. Benediktsdóttir
húsfreyja í Steinnesi og organisti
Þorsteinn B. Gíslason
prófastur í Húnavatnsprófastsdæmi, bjó í Steinnesi í Þingi, A-Hún.
Guðrún Sigurrós Magnúsdóttir
húsfreyja í Forsæludal í Vatnsdal, A-Hún.
Gísli Guðlaugsson
bóndi í Forsæludal
Úr frændgarði Jóns Ármanns Gíslasonar
Gísli Á. Þorsteinsson
geðlæknir, búsettur í Reykjavík
Prófasturinn Jón Ármann.
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim UngerHermann
... að hanga saman.
VIÐ ÆTTUM AÐ
GERA EITTHVAÐ JAMM
EN GERUM
EKKERT
AF ÞVÍ AAAÐ? … VIÐ ERUM
KETTIR
GEMMÉR
FIMM!
PABBI, LÚTUR VILL AÐ ÉG HJÁLPI
HONUM MEÐ TÓNLISTARFERILINN!
ÞAÐ ER FLOTT!
… AUGLÝSINGA-
MÁL EÐA SEM
UMBOÐS-
MAÐUR?
NEI, ÉG GENG UM MEÐ SÖFNUNARBAUKINN
ÞEGAR HANN SPILAR ÚTI Á GÖTU!
„ÞAÐ ERU ÁTTA BITAR Í BÆTI - EN
FYRST SKALTU GELTA.”
„ÉG ER ÁNÆGÐUR MEÐ
ANDLITSLYFTINGUNA EN KONAN MÍN
SEGIR AÐ EYRUN Á MÉR SITJI OF HÁTT.”
Gátan er sem endranær eftirGuðmund Arnfinnsson:
Að hásæti nú hyggja ber.
Hérna biskupssetur er.
Fótastykki finn á rokk.
Floti skipa er í dokk.
Þetta er lausn Hörpu á Hjarð-
arfelli:
Kemur fyrstur konungsstóll.
Karl hér sat á biskupsstól.
Finnst á rokkum fótastóll.
Flotann nefni skipastól.
Sigmar Ingason svarar:
Rolurnar hafa jafnt sem hörkutól
hlotið sess á valdastól.
Gnoðir glæstar togara og trillur
tel ég víst að saman myndi skipastól.
Fremst á rokknum standa stólpar tveir
úr sterkum viði renndir eru þeir.
Auðsæld fylgdi alltaf biskupsstólum
eins hvort var að Skálholt́ eða Hólum.
Þessi er lausn Helga R.
Einarssonar:
Í upphafi var auðn og tóm,
ekki í hausnum glóra,
svo yfirgaf mig heimska og hjóm,
því hér á allt við stóla.
Sjálfur skýrir Guðmundur gát-
una þannig:
Að valdastóli hyggjum hér.
Á Hólum biskupsstóllinn er.
Stóll er fótastykki á rokk.
Stóll er floti skipa í dokk.
Þá er limra:
Með ferlegan rass var Fjóla,
sem fékkst við að sauma kjóla,
hún þreifst vel af mat,
og þegar hún sat,
þurfti hún tvíbreiða stóla.
Síðan er ný gáta eftir Guðmund:
Kári bítur kinn og nef,
kúrt um stund nú inni hef,
gátu samdi, hún er hér,
heldur léttvæg, sýnist mér:
Á sjávarbakka sjáum hann.
Sægur barna vera kann.
Kjarnyrt skáld á bænum bjó.
Býsna miklum eldur spjó.
Sigmar Ingason lét þessa limru
fylgja sinni lausn:
Ég ætla mér á það að stóla
í Hornbjarǵ að hanga á njóla
þrumaði Þorgeir
með þykkju og gorgeir
en Þormóður bjargaði drjóla.
Að lokum er gamall húsgangur:
Ég sá kind og hún var hyrnd,
horfði í vind með enga synd.
Hjá einum tind við lækjarlind
ljóðamynd ég saman bind.
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Margur situr fast
á stólnum