Morgunblaðið - 09.11.2019, Blaðsíða 48

Morgunblaðið - 09.11.2019, Blaðsíða 48
VIÐTAL Árni Matthíasson arnim@mbl.is Í Fjölni 1. janúar 1837 er sagt frá komu ferðamanna utan af Frakk- landi, sjö að tölu, „til þess að rann- saka land vort“. Allir eru þeir nafn- greindir, en greinilegt að einn hefur vakið mesta hrifningu: „Dr. Gaim- ard, sá er firir var förinni, hefir áunnið sjer allra manna hilli, hvar sem hann kom, firir góðmennsku sína og elskusemi.“ Frönsku vísindamennirnir fóru víða og meðal annars upp á Heklu eins og rakið er í kvæði Jónasar Hallgrímssonar Til herra Páls Gaim- ard: „Þú stóðst á tindi Heklu hám / og horfðir yfir landið fríða, / þar sem um grænar grundir líða / skínandi ár að ægi blám.“ Það kvæði gerði Paul Gaimard Íslendingum ógleymanlegt eins og rakið er í bók Árna Snævars Maðurinn sem Ísland elskaði, Paul Gaimard og Íslandsferðir hans 1835- 1836. Einstæð innsýn í íslenskt samfélag Árni segir að það sé auðvelt að hrífast af Paul Gaimard, kannski þó frekar af persónuleika hans og ævin- týralegum æviferli en einstökum af- rekum. „En ef ég varð heltekinn af einhverju var það þó sú einstæða innsýn í íslenskt samfélag sem birt- ist manni í þeim gögnum sem ég komst á snoðir um í frönskum söfn- um. Ég rakst á Þorgeir Rúnar Kjart- ansson sagnfræðing og fréttaritara, sem ég þekkti lítið sem ekkert, á götu í París fyrir meira en 30 árum. Hann var á leið til Sigurðar Jóns- sonar líffræðings að skoða blað sem fundist hafði inni í einni bóka Gaim- ards-leiðangursins. Gaimard hafði notað það sem eins konar gestabók þegar Íslendingar héldu honum hóf í Kaupmannahöfn 1839 þar sem Jónas Hallgrímsson flutti honum til heið- urs kvæðið um vísindin sem efla alla dáð. Ég reyndi síðan að finna eitthvað um Gaimard þegar ég skrifaði BA- ritgerð í sögu á níunda áratug síð- ustu aldar en komst hvorki lönd né strönd. Þetta blundaði samt alltaf í mér og einhverju sinni þegar ég þurfti að bíða á línunni eftir svari hjá opinberri stofnun datt mér í hug að gúgla Gaimard. Áður en ég vissi hafði ég í höndunum uppskrift af miðilsfundi þar sem Frakkinn birtist vinum sínum skömmu eftir að hann kvaddi þessa jarðvist. Ég frétti síðan af tveimur bókum um Gaimard; annarri eftir ekkju Sig- urðar, Gisèle Jónsson, og hinni eftir ættingja hans Jean Lavie, og ætlaði að taka saman grein. En mér fannst vanta svolítið upp á að þarna væri sagan öll og heimsótti franska þjóð- skjalasafnið. Strax á fyrsta degi fann ég upplýsingar sem ekki voru í þess- um bókum – fyrst bréf frá Tómasi Sæmundssyni til Xaviers Marmiers og frásögn Gaimards um veisluna góðu í Kaupmannahöfn. Þetta hlóð svo enn upp á sig þegar ég fann dag- bækur hans úr Íslandsleiðangrinum og þá varð ekki aftur snúið.“ Marglofaðir mannkostir – Í bókinni kemur nokkuð vel fram hvers vegna menn hrifust af Gaim- ard – hann hefur verið glaðvær og galsafenginn, hjálplegur (þótt hann hafi iðulega verið ófær um að standa við loforð) og lífsglaður. „Ég held að Íslendingar hafi hrif- ist af Gaimard vegna marglofaðra mannkosta hans, kjarks og æðru- leysis og einstaklega léttrar lundar. En ekki síður vegna þess að hann byrjaði að læra íslensku um leið og hann sté af skipsfjöl. Gaimard, sem var annálaður kvennabósi, vildi geta farið á fjörur við konur eins og hver annar heimamaður og lét þýða fyrir sig úr latínu setningar eins og: „Ég er ástfanginn í yður, maddama góð.“ Ekki er vitað til að hann hafi haft erindi sem erfiði, en hann vildi vera við öllu búinn! Gaimard var ekki snobbaður aðalsmaður eins og flestir Bretar sem höfðu komið til Íslands; kom fram við Íslendinga af mikilli virð- ingu og fór ekki í manngreinarálit. Hann fór um allt land að Vest- fjörðum undanskildum og lét víðast hvar skrifa upp nöfn alls heimilis- fóks, hárra jafnt sem lágra, aldur og stöðu í dagbókina góðu. Gaimard var skipslæknir og vann fjölda læknis- verka meðan hann var á Íslandi, sjúklingum að kostnaðarlausu. Það er svo reyndar á ákveðnu augnabliki sem Gaimard einsetur sér að verða hinum „ágætu en fá- tæku Íslendingum að gagni“ eins og hann orðar það í dagbók sinni. Það er þegar hann heimsótti blint fjög- urra ára gamalt barn sem ólst upp við skelfilega fátækt innan um holdsveikisjúklinga í hjáleigu Kross- ness gegnt lúxusfangelsi hvít- flibbaglæpamanna á Kvíabryggju. Honum rann til rifja fátækt Íslend- inga en hann einsetti sér líka að koma því til leiðar að landar sínir hættu að nota dönsk örnefni um Ís- land. Það er sjálfsagt í þessu samhengi sem hann fékk samþykkt á æðstu stöðum að íslenskur námsmaður, Guðmundur Sívertsen, skyldi kost- aður til náms í læknisfræði í Frakk- landi. Þar skipti líka máli að Gaim- ard sá fyrir sér að hann gæti sinnt frönskum Íslandssjómönnum, sem áttu sér vægast sagt fáa málsvara á æðstu stöðum. Tvisvar sinnum í kringum hnöttinn En þótt hann hefði fengið sam- þykki æðstu manna og Guðmundur hitt sjálfan konunginn oftar en einu sinni var ekki staðið við neitt gagn- vart honum. Það var beinlínis átak- anlegt að komast að því hversu hart þessi bráðefnilegi og stórgáfaði ungi maður var leikinn og örlög hans hreinn harmleikur. Gaimard gerði svo sannarlega sitt besta og greiddi skólagjöld og uppihald hans úr eigin vasa. Þetta átti þátt í því að hann lést örsnauður maður og varð að efna til samskota svo hann hlyti sómasam- legan síðasta dvalarstað.“ – Ferð Gaimards í L’Uranie frá 1817-1820 var vendipunktur í lífi Maðurinn sem Ísland elskaði  Árni Snævarr hefur ritað ævisögu franska vísinda- og ævintýramannsins Pauls Gaimards, sem er flestum gleymdur í heimalandi sínu en minnst hér  Gaimard var lofaður fyrir kjark og létta lund Morgunblaðið/Árni Sæberg Elskusemi Árna Snævarr fannst vanta svolítið upp á að saga Gaimards væri sögð og lagðist því í rannsóknir. Vísindamaður Joseph Paul Gaimard. 48 MENNING MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 9. NÓVEMBER 2019 Heimildarmyndin Ljósmál verður frumsýnd í dag, laugardag, kl. 16 í Bíó Paradís, en í myndinni er vita- saga landsins rakin. Í tilkynningu kemur fram að saga íslenska vitans sé ekki gömul. „Árið 1878 blikkaði í fyrsta sinn vitaljós á Íslandsströnd- um. Það var á Valahnjúk á Reykja- nesi. Uppbyggingu vitakerfisins lauk með byggingu Hrollaugseyja- vita um miðja 20. öld. Þar með var ljósvitahringnum um landið lokið. Það voru einkum skipaeigendur sem sigldu með vörur á milli Ís- lands og Evrópu sem komu vita- væðingunni á rekspöl þó vissulega hafi hörmulegir mannskaðar ís- lenskra sjómanna einnig verið hvati til að bæta öryggi þeirra. Ljósvitar á Íslandi eru nú 104 og er þá ótalinn fjöldi innsiglingar- og hafnarvita.“ Saga íslenskra vita í heimildarmynd Hraunhafnartangi Einn af mörgum vitum landsins, en þeir eru nú samtals 104. Sólveig Thoroddsen hörpuleikari kemur fram í Hörpu- horni, á annarri hæð Hörpu á morgun, sunnudag, kl. 16. „Efnisskráin samanstendur af einstaklega áhugaverð- um, nýstárlegum og gullfallegum einleiksverkum fyrir hörpuna í öllum sínum stórkostlegu litbrigðum, með verkum eftir Félix Godefroid, Marcel Tournier, Henri- ette Renié og Maju Palser,“ segir í tilkynningu, en verk- ið atomer samdi Palser fyrir Sólveigu vorið 2013 og er því um frumflutning á Íslandi að ræða. Sólveig lærði fyrst á hörpu í Tónskóla Sigursveins D. Kristinssonar og lauk síðan bakkalárnámi í klassískum hörpuleik við Royal Welsh College of Music & Drama. Þá stundaði hún nám í sögulegum flutningi á eldri gerðir hörpunnar við Hochschule für Künste í Bremen í Þýskalandi og lauk þaðan meistaragráðu árið 2016. Hún starfar nú í Bremen og nágrenni, þar sem hún leikur með kammerhópum, m.a. með Capella Santa Croce og Trio Sernisol. Tónleikarnir eru hluti af Velkomin heim, sem er röð innan Sígildra sunnudaga, skipulögð af FÍT, klassískri deild FÍH, í samstarfi við FÍH. Aðgangur er ókeypis. Sólveig leikur á hörpu í Hörpu á morgun Sólveig Thoroddsen
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.