Morgunblaðið - 16.12.2019, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 16.12.2019, Blaðsíða 4
4 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 16. DESEMBER 2019 Bir tm eð fyr irv ar au m pr en tvi ll 595 1000 lur .H i sf r ir s ia i i . Verð frá kr. 114.995 RoqueNublo 2. janúar í 16 nætur Gran Canaria Guðni Einarsson gudni@mbl.is Skortur á varaafli hefur mikið verið ræddur eftir víðtækt rafmagnsleysi í kjölfar ofsaveðursins í síðustu viku. Pétur E. Þórðarson, aðstoðarfor- stjóri Rarik, segir að almenna regl- an sé sú að þar sem er aðeins ein raftenging sé í flestum tilvikum eitthvert varaafl tryggt. Vesturlína sér Vestfjörðum fyrir rafmagni. Pétur segir að á sínum tíma hafi verið at- hugað með aðra tengingu á móti henni en það reyndist vera óhemju dýrt. Þá var ákveðið að setja upp stóra varaaflstöð í Bolungarvík og hefur hún tryggt Vestfirðingum raf- magn á móti línunni. Sambærileg staða er á Vopnafirði þar sem er ein tenging og varaaflstöð á móti henni. Á Suðurlandi er hvergi varaafl nema í Vík í Mýrdal og í Vestmannaeyj- um. Varaafl á völdum stöðum „Á stöðum sem hafa tvær teng- ingar er yfirleitt ekki varaafl,“ sagði Pétur í samtali við Morgunblaðið. Hann segir að Rarik sé með varaafl upp á um 30 MW í heildina en heild- ar afltoppurinn sé um 200 MW. „Rafveiturnar á öllu höfuðborgar- svæðinu eru ekki með neina vara- vél,“ sagði Pétur. „Svo eru aðrir sem þurfa sérstaklega á varaafli að halda. Við erum til dæmis almennt með varaafl á hitaveitudælum.“ Sem kunnugt er varð rafmagns- laust á Siglufirði, þar á meðal hjá hitaveitunni. Pétur segir að tvær tengingar séu þangað og tvær teng- ingar að hitaveitudælunni. „Dalvík- urlínan bilaði og frá Dalvík er strengur til Siglufjarðar. Dalvíkur- lína var metin ein sterkasta línan í öllu dreifikerfinu og byggð eftir sama staðli og það sem sterkast er í byggðalínuhringnum. Það kom mjög á óvart að hún skyldi láta sig,“ sagði Pétur. Hinum megin er Skeiðsfoss- virkjun í Fljótum sem sér Siglufirði einnig fyrir rafmagni. Þar komu upp vandræði vegna krapa í ofsaveðrinu og tók tíma að koma virkjuninni aft- ur í gang. Varaafl tryggir öryggi notenda „Notendur sem eru mjög við- kvæmir fyrir rafmagnsleysi, eins og fjarskiptastöðvar, sjúkrahús og stór kúabú með mjaltaþjóna, eru margir búnir að koma sér upp varaaflvélum. Þær eru ekki stór kostnaðarliður í stórum atvinnurekstri. En þegar allt gengur vel lengi þá gleymist stund- um öryggið,“ sagði Pétur. Hann seg- ir t.d. að Landspítalinn í Reykjavík sé með vararafstöð sem fer í gang um leið og veiturafmagn bregst. Pétur segir að Rarik ráðleggi ekki formlega viðskiptavinum með við- kvæman rekstur að koma sér upp varaaflstöðvum, en oft sé bent á það í samtölum. Varaaflstöðvar seldar úr landi Víða voru dísilrafstöðvar á árum áður og árið 2014 seldi t.d. Lands- virkjun tvær varaaflstöðvar úr landi. Önnur þeirra var gufuaflsstöð við Straumsvík upp á 34 MW og hin 8 MW dísilrafstöð á Rangárvöllum við Akureyri. Pétur segir að ekki hafi verið gert mikið af því að selja vara- aflstöðvar úr landi. Stöðvarnar sem Landsvirkjun seldi 2014 hafi hvorug komið að notum nú. Stöðin í Straumsvík var hluti af samningnum við Ísal þegar aðeins ein lína lá frá Búrfelli að Straumsvík. Stöðin við Akureyri var frá því áður en byggðalínan kom norður og var varaafl á móti Laxárvirkjun á 8. ára- tugnum. Pétur segir að ofsaveðrið í síðustu viku hafi í sínum huga verið sam- bland af óveðrunum sem geisuðu í janúar 1991 og svo aftur í byrjun febrúar sama ár. „Þá fóru 530 staur- ar í kerfinu hjá okkur í janúarveðr- inu. Ef við hefðum verið með sam- bærilega uppbyggingu á kerfinu nú tel ég að það hefðu farið fleiri staur- ar nú en 1991,“ sagði Pétur. Munurinn á kerfinu nú og þá er að nú eru um 65% af 9.000 km há- spennukerfi Rarik komin í jarð- strengi. Sú strengjavæðing hófst á viðkvæmum stöðum í kjölfar óveð- ursins á viðkvæmustui stöðunum. Oft er varaafl ef það er bara ein raftenging  Tvær leiðir til Siglufjarðar brugðust Pétur E. Þórðarson Þyrla Landhelgisgæslunnar, TF- LIF, flaug á laugardag með nokkr- um raflínum á Norðausturlandi til að kanna ástand þeirra. Með í för voru Helgi B. Þorvaldsson, sérfræðingur Landsnets í háspennulínum, og ljós- myndari Morgunblaðsins. „Við vorum að staðfesta það sem við höfðum fengið upplýsingar um frá björgunarsveitum og að ekki væri um frekara tjón að ræða. Björgunarsveitirnar voru búnar að fara með línunum á sleðum. Við sáum ekki frekari skemmdir en til- kynnt hafði verið um,“ sagði Helgi. Hann segir að 66 kV línan frá Laxárvirkjun til Akureyrar sé biluð. Að minnsta kosti tíu stæður eru brotnar og eitthvað um leiðaraslit. Talsverð vinna er við að laga það, að sögn Helga. Fram kom á facebook- síðu Landsnets í gær að beðið yrði með viðgeð um sinn meðan aðrar lín- ur væru lagfærðar. Húsavíkurlína frá Laxárvirkjun, sem er 33 kV, er biluð út undir Húsavík. Þar voru fjórir staurar brotnir eða laskaðir og leiðari slitinn á einum stað. Viðgerð er í undirbún- ingi og taldi Helgi að hún tæki lík- lega tvo daga. Á meðan fær Húsavík rafmagn um varatengingu við Bakka. Einnig var flogið að hluta til með Kópaskerslínu sem liggur frá Lax- árvirkjun og út á Kópasker. Tjón varð á henni útundir Kópaskeri og brotnuðu þar 14 stæður. Búist er við að viðgerð taki nokkra daga. Helgi segir að hægt hafi verið að hleypa á Kópaskerslínuna þannig að hún er tengd inn á kerfi Rarik í Kelduhverfi og liggur 11 kV strengur frá Silfur- stjörnunni og út á Kópasker. Ekki var mjög mikil ísing á lín- unum, að sögn Helga. Svolítil ísing var þó á Kröflulínu I inni í Eyjafirði. Einnig var ísing hér og þar á Lax- árlínunni. Sums staðar þarf að brjóta hana af. Björgunarsveitirnar hafa hjálpað til við það, að sögn Helga. gudni@mbl.is Sáu ekki frekari skemmdir  Skoðuðu raflín- ur á Norðaustur- landi úr þyrlu Morgunblaðið/Þorgeir Baldursson Kópaskerslína Tjón varð á línunni nálægt Kópaskeri þar sem 14 stæður brotnuðu. Búist er við því að viðgerð á línunni muni taka nokkra daga. Morgunblaðið/Þorgeir Baldursson Eftirlitsflug Helgi B. Þorvaldsson, sérfræðingur hjá Landsneti. „Það eru enn rafmagnstruflanir, raf- magnið hefur farið út og inn í dag. Það er mjög mikil selta enn á tengi- virkinu í Hrútafirði,“ sagði Ragn- heiður Jóna Ingimarsdóttir, sveit- arstjóri í Húnaþingi vestra. Von var á vinnuflokki í gærkvöld til að hreinsa tengivirkið í nótt. Hún segir ljóst að ofsaveðrið hafi valdið miklu tjóni en ekki sé búið að ná utan um hve víðtækt það er. „Þetta er landbúnaðarhérað. Kúa- bændur fóru mjög illa út úr þessu og ekki séð fyrir endann á því. Þegar ekki er hægt að mjólka kýrnar eru afleiðingarnar oft júgurbólga og minni nyt. Það þurfti að hella niður töluverðu af mjólk. Svo dráp- ust nokkuð mörg hross sem hafa verið grafin úr fönn,“ sagði Ragnheiður. Hún segir ljóst að byggja þurfi yfir tengivirkið í Hrútafirði og stækka spenni í tengivirki við Laxárvatn til að tryggja betur afhendingu raforku. „Það er ekkert varaafl á Hvamms- tanga. Það var fyrir einhverjum ár- um en ekki var talin þörf á því og það fjarlægt,“ sagði Ragnheiður. Hún sagði ekki heldur neitt varaafl við Heilbrigðisstofnun Vesturlands (HVE) á Hvammstanga. Stofnunin var bæði án rafmagns og síma- sambands í ofsaveðrinu. Ragnheiður segir að það sé HVE að sjá sér fyrir varaafli. „Við aðstoðum þau eins og við getum við að gera grein fyrir mikilvægi þess að hafa varaafl,“ sagði Ragnheiður. Taka þurfti rafmagn af í gærkvöld vegna hreinsunar á tengivirkinu í Hrútafirði. Búið var að útvega vara- aflstöð fyrir HVE á Hvammstanga svo hún yrði ekki rafmagnslaus á meðan. gudni@mbl.is Rafmagnið enn óstöðugt  Styrkja verður dreifikerfi rafmagns í Húnaþingi vestra til að tryggja þar afhendingaröryggi, að mati sveitarstjóra Ragnheiður Jóna Ingimarsdóttir Eftirköst óveðursins Vel gekk að gera við Dalvíkurlínu í gær. Viðgerð á vír- um var nánast lokið í gærkvöld, að sögn Steinunnar Þorsteinsdóttur, upplýsingafulltrúa Landsnets. Eftir var að reisa fjórar stæður eða átta staura og setja upp krossa og slár. Reiknað er með að viðgerð línunnar ljúki á miðvikudag. Vinnuhópar á vegum Landsnets voru einnig að störfum við tengivirki í Hrútafirði og Húsavíkurlínu. Viðgerð á Kópaskerslínu hefst í dag. Ljósmynd/Landsnet Gert við Dalvíkurlínu

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.